Morgunblaðið - 23.10.2014, Blaðsíða 71

Morgunblaðið - 23.10.2014, Blaðsíða 71
UMRÆÐAN 71 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 2014 Full búð af nýjum vörum Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355 • www.selena.is • Póstsendum • Næg bílastæði • Selena undirfataverslun Undanfarna tvo ára- tugi hefur mikið verið fjallað um nauðsyn ný- bygginga við Landspít- ala – háskólasjúkrahús (LSH) með tilheyrandi nútíma læknatækjum. Svo virðist sem engin hreyfing verði á þess- um mikilvægu nýbygg- ingum á næstu árum vegna skorts á fjár- magni, þar sem sölu- tekjur af Landssímanum sem Al- þingi okkar samþykkti á sínum tíma að verja til þessara bygginga hafa annaðhvort ekki skilað sér eða verið notaðar í eitthvað annað. Undirrit- aður vill með grein þessari taka þátt í þessari almennu umræðu og setja fram eftirfarandi tvær tillögur um fjármögnun nýbygginga LSH sem áætlað er að kosti um 50 millj- arða króna svo og nauðsynleg tæki fyrir um 12 milljarða. Fjármögnun nýbyggingar LSH Staðan virðist vera svona haustið 2014 varðandi fjármögnun nýbygg- inga LSH: Læknar LSH telja að nýbygging megi ekki dragast leng- ur því stefni heilsugæslu lands- manna í voða svo og eðlilegri end- urnýjun lækna spítalans og starfsaðstöðu þeirra. Mikill áhugi er meðal flestallra alþingismanna á nýbyggingum við LSH. Ekki er gert ráð fyrir fjármagni til nýbygg- inga LSH á fjárlögum 2015, aðeins til að halda áfram teikni- vinnu. Ekki er vilji til að selja eignir okkar Íslendinga í Lands- banka, Landvirkjun o.fl. til að byggja spít- alann heldur til að niðurgreiða lán til að minnka vaxtagjöld og ekki er vilji til að taka lán til að fjármagna nýbyggingar spít- alans. Hvað er þá til ráða til að tryggja um 50 milljarða króna til nýbygginga LSH fyrir utan tækjabúnað og viðhald á eldri hluta spítalans? Leyfi mér að setja fram eftirfarandi tillögu: „Lífeyrissjóðir landsmanna taki þátt í fyrirtækinu „Landspítalinn ohf.“ með 50 milljörðum til að byggja fyrstu áfanga nýbygginga LSH sem fjármagnað er með „fyr- irframgreiðslu staðgreiðslu skatta“ af mánaðarlegum útborgun lífeyris frá lífeyrissjóðunum.“ Í sjóðum lífeyrissjóða lands- manna erum víst samtals um 3.000 milljarðar króna, þar af er sér- eignasparnaður um 240 milljarðar og um 500 milljarðar í erlendum hluta- og skuldabréfum. Til að fjár- magna þessa 50 milljarða vegna spítalans geta lífeyrissjóðirnir selt erlend hluta- og skuldabréf og kom- ið með til landsins gegnum „fjár- festingarleið“ Seðlabankans með álagi. Af þessum 3.000 milljörðum í lífeyrissjóðum okkar er ógreidd staðgreiðsla og útsvar um 30% eða samtals um 900 milljarðar sem greiðist á löngu tímabili í ríkissjóð við útborgun mánaðarlegra greiðslna sjóðanna til lífeyrisþega. Lagt er til að Alþingi Íslendinga setji „neyðarlög vegna lýðheilsu landsmanna“ sem skyldar lífeyr- issjóðina til að selja eignir til að greiða fyrirfram hluta af stað- greiðslu lífeyrisþega, sem verður síðan haldið eftir þegar lífeyr- issjóðir standa skil á staðgreiðslu skatta næstu 10 árin. Á þessum tíu árum eru lífeyrissjóðirnir eigendur „Landspítalans ohf.“ en eign- arhaldið yfirfærist til ríkissjóðs samkv. nánara samkomulagi þegar fyrirframgreidda staðgreiðslan með vöxtum er jöfnuð. Þó svo arðsemi sjóðanna verði hugsanlega ekki ásættanleg fyrstu árin þá er hún virkilega ásættanleg fyrir eigendur sjóðanna, þ.e.a.s. okkur landsmenn sem annt er um heilsu okkar. Hug- myndina má án efa útfæra á marg- an hátt til að leysa eitt mest aðkall- andi vandamál þjóðarinnar varðandi versnandi heilbrigðisþjón- ustu. Fjármögnun tækjabúnaðar LSH Í mörg ár hafa nútímalæknatæki verið á óskalista LSH en bíða nýs spítala með tilheyrandi aðstöðu, burðarþoli, o.fl. eins og: jóneinda- skannar (PET/CT), gamma- sneiðmyndaskannar (SPECT/CT), segulómunarskannar, Da Vinci skurðróbótar, o.fl. Eitt þessara tækja sem bráðvantar er PET/CT skanni sem getur greint staðsetn- ingu „virkra krabbameinsfruma“ mjög nákvæmlega með því að dæla sérstökum „positrons“ (jóneindum) í blóðið sem krabbafrumur taka upp. PET/CT er á óskalista LSH og átti að koma í „nýja spítalann“ eins og svo mörg önnur tæki en kostar núna um 900 milljónir miðað við 450 millj. árið 2008 fyrir gengisfellingu krónunnar. Danir eiga víst 24 svona PET/CT skanna þar af eru fjórir í Rikshospitalen í Kaupmannahöfn. Hvað er þá til ráða til að tryggja um tólf milljarða króna til nauðsyn- legs tækjabúnaðar LSH? Leyfi mér að setja fram eftirfarandi tillögu: „Lífeyrissjóðir landsmanna stofna fyrirtækið „Læknatæki hf.“ með aðeins þremur milljörðum króna í hlutafé til að kaupa og reka „hátæknibúnað“ fyrir LSH svo og alla spítala landsins og þær einka- læknastofur sem það vilja með til- heyrandi viðhalds- og viðgerð- arþjónustu.“ Öll dýru læknatækin verða keypt á kaupleigu til 10 ára með sér- stökum samstarfssamningum við framleiðendur tækjanna, svo aðeins þarf að borga um 20% út eða 2,5 milljarða fyrsta árið fyrir öll tækin sem kosta samtals um 12 milljarða. Síðan greiðist um einn milljarður á ári í kaupleigu/afborganir með reglulegri uppfærslu á stýri- og hugbúnaði. Sjúkratryggingar og sjúklingar borga reksturinn á næstu árum sem á að standa undir afborgunum, viðhaldi, varahlutum, o.fl. Eftir 10 ár eru tækin eign fé- lagsins og má þá hugsanlega skipta upp í ný tæki. Slíkir kaupleigu- samningar eru mjög algengir í við- skiptum aðila með gagnkvæma hagsmuni. Eftir Jón Hjaltalín Magnússon » Alþingi Íslendinga setji „neyðarlög vegna lýðheilsu lands- manna“ sem skyldar líf- eyrissjóðina til að greiða fyrirfram hluta af stað- greiðslu lífeyrisþega. Jón Hjaltalín Magnússon Höfundur er verkfræðingur, stofn- félagi í „Spítalinn okkar“ og fyrrver- andi karabbameinssjúklingur. Látum lífeyrissjóði okkar fjármagna nýbyggingar Landspítala
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.