Morgunblaðið - 23.10.2014, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 23.10.2014, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 2014 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Nýr sporðamælingavefur Jöklarann- sóknafélags Íslands sýnir hvernig margir helstu jökulsporðar landsins hafa breyst frá því að byrjað var að mæla þá. Vefurinn var kynntur á haustfundi Jöklarannsóknafélagsins á þriðjudaginn var. Slóðin á vefinn er http://spordakost.jorfi.is. Vefurinn byggist á kortavefsjá sem sýnir breytingar á 64 mælistöðvum við 50 jökulsporða. Hægt er að skoða línurit sem sýnir þróunina, hvernig jökulsporðurinn hefur hopað eða gengið fram, við hverja mælistöð frá því að mæl- ingar hófust á hverjum stað. Til er gríðarlega mik- ið af mæligögnum sem eru aðgengi- leg á síðunni. Eins eru gefnar nánari upplýsingar um jökulinn sem mælistöðin tilheyrir, hvenær mælingar hófust þar og hver annast þær nú. Þá er hægt að skoða ljósmyndir sem sýna umræddan jökulsporð. Í nokkrum tilvikum eru ljósmyndaraðir sem sýna breytingar sporðanna. Ljósmyndirnar eru flest- ar eftir Odd Sigurðsson og Snævar Guðmundsson. Eins og sést á meðfylgjandi skjá- skoti af vefnum er hægt að kalla fram og skoða útlínur jöklanna frá árunum 1890 (rauð), 1946 (græn) og 2000 (blá) og bera saman við nýjasta kortið. Þá er hægt að lesa á síðunni ársskýrslur um jöklabreytingar sem birst hafa í tímaritinu Jökli allt frá 1950, skoða yfirlitsmyndir sem sýna marga jökla saman og þar verða einnig aðgengi- legar vísindagreinar um jökla. Sporðamælingavefurinn var settur upp á liðnu sumri í verkefninu Sporðaköst sem Vinir Vatnajökuls styrktu. Andrea Björk Björnsdóttir, nemi í stærðfræði og tölvunarfræði við HÍ, forritaði vefinn. Verkefninu stýrðu þeir Hálfdán Ágústsson, dokt- orsnemi í veðurfræði, og Tómas Jó- hannesson, fagstjóri á sviði jökla- rannsókna, báðir hjá Veðurstofu Íslands. Þróun vefjarins er ekki lokið. Merkilegir mælistaðir Oddur Sigurðsson, jarðfræðingur og sérfræðingur á sviði jöklarann- sókna hjá Veðurstofunni, hefur haft umsjón með jöklamælingum frá árinu 1987. Hann sagði að sér þættu sumir mælistaðirnir við jökulsporðana vera mjög merkilegir. „Ég hef mikið dá- Sporðaköst jöklanna á netinu  Nýr vefur Jöklarannsóknafélags Íslands sýnir hvernig margir helstu jöklar landsins hafa breyst frá því að mælingar á jökulsporðum hófust  Sjálfboðaliðar fara á hverju hausti að mæla sporðana Oddur Sigurðsson Kaldalónsjökull Jökullinn hljóp í september 1998. Indriði Aðalsteinsson, bóndi á Skjaldfönn, hefur mælt jökulsporðinn í meira en aldarfjórðung. NÝ UPPLÝSINGASÍÐA UM FJÁRMÁL Á LÍFEYRISALDRI Íslandsbanki | Kirkjusandi | 155 Reykjavík | Sími 440 4900 | vib@vib.is facebook.com/VIB.stofan | @vibstofan | www.vib.is HOLLRÁÐ VIÐ STARFSLOK Fjármál flækjast til muna þegar taka lífeyris hefst. Starfsfólk VÍB hefur sérhæft sig í fjármálum í aðdraganda og kjölfar starfsloka. Við höfum sett upp einfalda vefsíðu þar sem leitast er við að svara áleitnum spurningum er kunna að brenna á fólki á þessum tímamótum. » Hvernig eru greiðslur og skerðingar Tryggingastofnunar? » Hvernig og hvenær ætti ég að taka út séreignarsparnaðinn minn? » Hvað þarf ég að vita varðandi skattkerfið? » Hvaða áhrif hefur ávöxtun sparifjár? Kynntu þér málið á vib.is/60 eða bókaðu fund þér að kostnaðarlausu í síma 440 4900.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.