Morgunblaðið - 23.10.2014, Blaðsíða 96
96 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 2014
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Enn og aftur ertu að sætta mann-
eskjuna sem þú ert og þá sem þig langar
til að vera. Gakktu úr skugga um hver
staða þín er, hvað þú átt og hvað þú skuld-
ar.
20. apríl - 20. maí
Naut Einhver sem þú ert í sambandi við
kynnir þig fyrir nýjum möguleikum. Mundu
bara að það þarf tvo til að slást. Vandaðu
mál þitt og mundu að hverju orði fylgir
mikil ábyrgð.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert venju fremur ástríðufullur
núna. Efasemdir þínar og óöryggi gera þig
tortrygginn í garð annarra.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Notfærðu þér þann hæfileika þinn
að vera fundvís á missmíðir. Næst er að
ákveða framhaldið, en það gæti falið í sér
mikla ábyrgð.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Nú skiptir öllu máli að halda þétt ut-
an um budduna ef ekki á illa að fara. Sólin
er í merki þínu og þú verður að nýta það.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þér gefast mörg tilefni til upplyft-
ingar en vertu vandlátur og veldu þér
skemmtun við hæfi. Fáðu vin þinn í lið með
þér því hann hefur góða dómgreind í fjár-
málum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú hefur miklar áætlanir varðandi út-
gáfumál, menntun og ferðalög. Ekkert er of
mikil fyrirhöfn um þessar mundir.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Taktu hliðarskref í vinnunni
sem gagnast þér betur til langtíma á
framabrautinni. Besta leiðin til þess að
komast í gegnum félagslegt annríki dags-
ins er að taka einn hlátur í einu.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Aukið álag í vinnunni gæti
komið niður á þér seinna. Ef hugurinn reik-
ar, beindu honum þá aftur að því sem ást-
vinirnir eru að segja.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Líklegt er að vinkona þín vilji
tala við þig í trúnaði í dag. Hafðu hugfast
að allt á sér sinn stað og sína stund.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Hugur þinn er dálítið í fortíðinni
núna og líklegt að þrá eftir liðinni tíð grípi
þig annað veifið á næstunni. Stutt ferðalag
gæti orðið þér til ánægju.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Forðastu að lenda í deilum um
stjórnmál og trúmál í dag. Bættu nokkrum
sterkum litum við, til dæmis rauðum eða
fjólubláum, með málningu, hillum eða nýj-
um púðum.
Bandaríska fyrirtækinu NaturalWay, sem flytur íslenskar
vörur til Bandaríkjanna, hefur verið
gert að innkalla þrettán tonn af
hráu íslensku lambakjöti vegna mis-
taka í innflutningi.
Að öllum líkindum hefur lamba-
kjötið þó að mestu leyti verið selt –
og borðað,“ kom fram í tilkynnn-
ingu frá bandaríska landbún-
aðarráðuneytinu. Þetta fór ekki
framhjá Davíð Hjálmari Haralds-
syni, eða eins og hann segir á Leirn-
um:
Kanarnir bönnuðu ketið frá Fróni
því Kaninn er dóni
og stöðvuðu allt það sem ekki var metið
en átu fyrst ketið.
Gagaravilla heitir sá háttur, sem
Davíð Hjálmar yrkir undir í þessu
sögulega kvæði, – og er vel kveðið:
Egill Skall – á Borg hann bjó –
býsna snotur var að sjá.
Drukkinn yfir aðra spjó,
eins og Hulk varð kappinn þá.
Saga ein um Gunnar gekk
garpinn – öll varð Fljótshlíð klökk:
Fjórtán tommu fólksbílsdekk
fullur varla yfir stökk.
Bær er nefndur Bergþórshvoll.
Bar þar skarn á hóla Njáll.
Hífaður um heitan poll
hentist’ann sem rafmagnsáll.
Grettir líkt og belj’um burð
brjálaðist þá hreifur varð.
Ölvaður hann yfir skurð
asnaðist og griðku sarð.
Þjóðin oft í þynnku hraut,
þunnur eftir skátamót
fólið Árni beiskur braut
bak á Snorra, haus og fót.
Freyfaxi hlaut feigðarskell,
fékk sér gerjað byggkornssull.
Þéttur hátt af hömrum féll;
hélt þar meri klippa gull.
– – –
Svona birtist sagan öll,
sú hin fyrri – eintómt bull.
Landsmenn orðnir tæknitröll,
tölvustýrð – en ennþá full.
„Allar lögreglubifreiðar á landinu
verða búnar MP5-hríðskotabyssu og
Glock 17-hálfsjálfvirkri skamm-
byssu“ var frétt í DV sem ekki fór
framhjá Ármanni Þorgrímssyni:
Ekki vil ég efla róg
en alltaf gera sumir skyssur
Ætti að vera alveg nóg
að þeir fengju teygjubyssur.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Kaninn er dóni, söguleg
gagaravilla og teygjubyssur
Í klípu
„ÉG ER MJÖG HRIFINN AF ÞESSUM – EN
ÞAÐ ER OF SNEMMT. ÉG VIL EKKI VERA
SÆRÐUR AFTUR.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ERTU EKKI MEÐ HÁRBURSTA?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að bjóða
tengdafólkinu þínu út
að borða.
SPURNING: ER ALLT BETRA
MEÐ BRÁÐNUM OSTI Á?
EINN ÍÞRÓTTA-
SOKKURINN MINN
ER TÝNDUR
SVAR: „NEI“.
AÐ RÁÐAST Á
KASTALA ER MJÖG
HÆTTULEGT!
HVAÐ ER
LÆKNIRINN
AÐ GERA
HÉRNA?
HANN ER AÐ BJÓÐA NÝJUM
VIÐSKIPTAVINUM AFSLÁTT!
Fyrsti snjórinn kom til Reykjavíkurdegi á eftir áætlun. Víkverji telur
nú fullvíst að langflestir hefðu nú kos-
ið það að snjórinn hefði tafið komu
sína enn frekar og jafnvel sleppt því
að mæta þetta árið, nema svona rétt
fyrir klukkan sex á aðfangadags-
kvöld. Því miður eru nú litlar líkur á
að slíkar óskir verði uppfylltar, hvað
sem hlýnun jarðarinnar líður.
x x x
Það vekur þó furðu Víkverja að allt-af virðast yfirvöld einhvers stað-
ar vera jafnhissa á þeirri eðlis-
fræðilegu staðreynd að vatn undir
frostmarki frjósi og myndi ís, og að
ofankoma breytist þá í snjókomu við
vissar aðstæður. Þessar staðreyndir
hafa verið þekktar síðan á forsögu-
legum tíma, en engu að síður sefur
alltaf eitt bæjarfélag á verðinum og
klikkar á snjómokstursviðbúnaði sín-
um. Að þessu sinni var það Kópavog-
ur og eiga starfsmenn þar alla samúð
Víkverja.
x x x
Klúðrið í Kópavogi var þó ekkert ávið þá upplifun Víkverja að vera
námsmaður í London. Þar heyrði það
til undantekninga ef snjó festi á göt-
um og þegar það gerðist var hann
aldrei meira en ökklahár. Engu að
síður fékk Víkverji frí í skólanum
einn daginn, því að allar samgöngur
stórborgarinnar lágu niðri. Þegar
hann horfði í forundran út um
gluggann sá hann þunnt lag af snjó,
sem var um einn sentimetri á þykkt,
ef þá það.
x x x
Með komandi vetri nálgast hinsvegar jólin, hátíð kaupmanna á
öllum aldri, og er það aldeilis að sann-
ast í ár. Ekki bara er Thule búið að
koma jólabjórnum sínum á veit-
ingastaði, heldur er Ölgerðin farin að
selja jólaöl og appelsín í dósum. Vík-
verji hefur eflaust haft orð á því áður í
kvörtunartón, að nú sé byrjað of
snemma að skreyta fyrir jólin. Engu
að síður finnst Víkverja sem viss
þröskuldur hafi brostið, þegar jóla-
vertíðin byrjar í október í staðinn fyr-
ir nóvember, hvað þá desember! Á
endanum mun Víkverji ekki einu
sinni hafa fyrir því að taka jólaskraut-
ið frá því í fyrra niður.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Ég veit að lausnari minn lifir og hann
mun síðastur ganga fram á foldu.
(Jobsbók 19:25)
Since 1921
Við höfum notað lífræna jurtaolíu í vörur okkar í meira en 90 ár. Þær hafa
marga frábæra eiginleika og næra húðina m.a. með vítamínum, andoxunar-
efnum og fitusýrum. Vörurnar okkar eru prófaðar af óháðum aðila* og eru
vottaðar NaTrue vörur. Olíurnar veita vellíðan styrkja og vernda þurra húð
- í samhljómi við mann og náttúru. www.weleda.is
Það er ekkert jafn
rakagefandi og olíurnar okkar
Vertu vinur okkar á facebook
www.facebook.com/weledaísland
*Derma Consult Concept GMBH
Útsölustaðir:
Apótek og Heilsuverslanir um allt land