Morgunblaðið - 23.10.2014, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 23.10.2014, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 2014 Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is Opið:Mán. - föst. kl. 09-18 Laugardaga kl. 11-15 INNRÉTTINGAR DANSKAR Í ÖLLHERBERGIHEIMILISINS FJÖLBREYTTÚRVALAFHURÐUM, FRAMHLIÐUM,KLÆÐNINGUMOGEININGUM, GEFAÞÉR ENDALAUSAMÖGULEIKAÁ AÐSETJASAMANÞITTEIGIÐRÝMI. STERKAR OG GLÆSILEGAR SVIÐSLJÓS Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is „Þrátt fyrir að í heildina sé örlítill samdráttur þá horfum við fram á mjög sterk bókajól,“ segir Bryndís Loftsdóttir hjá Félagi íslenskra bókaútgefenda, spurð hvernig líti út með bókaútgáfuna fyrir komandi jól. Félagið gefur út Bókatíðindi fyr- ir hver jól og lauk skráningu í þau nýverið. 619 titlar eru skráðir í Bókatíðindi í ár og eru þeir ívið færri en síðustu ár, reyndar varð sú breyting á uppsetningunni að nú eru hljóðbækur og rafbækur settar undir titilinn á einum stað en áður gat sami titill birst allt að þrisvar á síðum tíðindanna. Bryndís tekur fram að ekki skrái allir bækur sínar í Bókatíðindi, gera megi ráð fyrir að það komi út um 10% fleiri bækur á ári hverju en eru skráðar þar. Fáir vilja ævi sína út gefa 65 titlar eru skráðir í flokk ís- lenskra skáldverka í Bókatíðindum 2014 og er það fjölgun frá því í fyrra þegar þeir voru 52. „Fjölg- unin felst í nýjum skáldverkum, í fyrra var aðeins minna en venju- lega af þeim en nú er aftur gefið í í þeim flokki,“ segir Bryndís. „Það eru sveiflur í flokkum á milli ára. Í ár er jafn mikið af matreiðslubók- um og í fyrra en ívið minna af ís- lenskum barnabókum. Þýdd skáld- verk voru 82 í fyrra en eru 50 í ár. Það má rekja til þess að Upp- heimar hafa dregið saman í út- gáfu.“ Fækkunin er mest í flokki ævi- sagna og endurminninga. Þar eru 19 titlar í ár og hafa aldrei verið færri. „Þetta hefur farið dalandi en aldrei verið jafn fátt og nú. Það voru 28 bækur í þessum flokki 2012 og 37 í fyrra. Breytingarnar sem hafa orðið á ævisögunum eru þær að þetta eru vandaðri og stærri út- gáfur núna um fólk sem gengið er en ekki sjálfsævisögur lifandi fólks sem voru vinsælar á tímabili,“ seg- ir Bryndís. Meðal þeirra stóru höfunda sem gefa út skáldverk í ár eru Yrsa Sig- urðardóttir, Arnaldur Indriðason, Steinar Bragi, Stefán Máni, Oddný Eir Ævarsdóttir, Guðrún Eva Mín- ervudóttir, Gyrðir Elíasson og Steinunn Sigurðardóttir. Bryndís segir að ljóst sé að um svolítil kanónujól sé að ræða og það sé til- hlökkunarefni að fara að kíkja í bókabúðir. „Gæðin eru í lagi, það eru flottir titlar að koma út þótt úrvalið sé ekki alveg það sama og hefur ver- ið,“ segir Bryndís. Prenta hálfa milljón eintaka Stór hluti jólabókanna er prent- aður hjá prentsmiðjunni Odda. Jón Ómar Erlingsson, framkvæmda- stjóri Odda, segir að þar sé allt komið af stað og magnið sé enn sem komið er á svipuðu róli og í fyrra. Jón segist þó sjá þá breyt- ingu að titlunum sé að fækka en þá sé jafnvel meira selt af hverj- um titli. „Í þessari jólabókavertíð er þetta svona hálf milljón eintaka sem við prentum. Það geta verið prentuð frá 500 og upp í nokkra tugi þúsunda eintaka af hverjum titli,“ segir Jón. Prentunin fór af stað í sept- ember og nær hámarki í október og nóvember. Síðan fer það eftir sölu hvað er mikið að gera í des- ember en þá er aðallega um end- urprentun á vinsælum titlum að ræða. „Það er mesti hamagang- urinn í kringum endurprentanir, þá er komið í ljós hvað selst og þarf að fylla í hilluplássið mjög hratt. Megnið af jólabókavertíðinni er verið að vinna bækur allan sólar- hringinn hjá okkur og við erum að sigla inn í þann tíma núna. Það er alltaf heilmikil stemning í kring- um þetta,“ segir Jón. Færri bókartitlar gefnir út í ár  Samdráttur í bókaútgáfu  619 titlar í Bókatíðindum  Aldrei verið jafn fáar ævisögur og þýddum skáldverkum fækkar verulega  Íslenskum skáldverkum fjölgar þó frá því í fyrra  „Kanónujól“ Morgunblaðið/Kristinn Freistandi Jólabækurnar eru farnar að tínast í verslanir. Um 619 titlar koma út í ár en hluti af þeim eru endur- útgáfur á eldri titlum í kiljur, hljóðbækur og rafbækur. Íslenskir skáldsagnahöfundar hafa verið duglegir í ár. Bókatíðindi 2014 » 619 titlar eru skáðir í Bókatíðindi 2014. » Endurútgáfur á eldri bók- um sem kiljur, rafbækur eða hljóðbækur eru líka í Bókatíð- indum. » 75 íslenskar barnabækur eru gefnar út í ár og 65 ís- lensk skáldverk. » Ævisögur og endurminn- ingar eru aðeins 19 og hafa aldrei verið færri frá því sam- antektin hófst árið 1991. » Bókatíðindum verður dreift á hvert heimili í landinu um miðjan nóvember. Bóksala hefur dregist saman um 19% að raunvirði frá árinu 2008. „Kreppan 2008 hitti bókaútgáfuna ekki jafn hart og hratt og aðrar greinar en áhrifanna gætir mun lengur. Við erum enn að súpa seyðið af kreppunni. Þess vegna erum við að óska eftir að bækur fari í 0% virðisaukaskatt eins og t.d. leiksýn- ingar og íþróttaviðburðir. Við eigum undir högg að sækja.“ Bryndís segir að nýjar íslenskar bækur geti aldrei orðið jafn ódýrar og bækur á ensku út af markaðs- svæðinu. „Þær eru ef eitthvað er ódýrari m.v. framleiðslukostnað og hlut höfunda. Verð á íslenskum bókum er mjög viðkvæmt og við finnum það, þær þola ekki hátt verð.“ Súpa enn seyðið af kreppunni BÓKSALA DREGIST SAMAN FRÁ 2008 Bryndís Loftsdóttir Plötuútgáfan í ár dregst töluvert saman hjá Senu en virðist vera svip- uð og áður hjá minni útgáfum. „Við erum að fækka útgáfum á milli ára frá rúmlega 40 titlum í fyrra niður í 25 í ár. Fyrir jólin núna gefum við út um 15 geisladiska og plötur,“ segir Ísleifur B. Þórhallsson hjá Senu. Ástæðan er minnkandi sala að sögn Ísleifs en þó sé bransinn í þeirri stöðu að líflínan er ennþá geisla- diskasalan. „Salan fer minnkandi og á móti fer stafræn tónlistarsala vax- andi en vöxturinn í stafrænu sölunni er samt hægari en niðursveiflan í diskunum eins og staðan er núna.“ Ísleifur segir að safnplötur og fer- ilsplötur seljist best og mun útgáfa Senu fyrir jólin einkennast af því þó nýjar plötur frá innlendum lista- mönnum komi líka út. Fimm plötur koma út frá útgáf- unni Record Records í ár. Haraldur Leví Gunnarsson segir þrjár þegar komnar út og von sé á tveimur í nóv- ember. „Þetta er tölvert minna en í fyrra en þá fór allt úr böndunum og við gáfum út 14 plötur. En árið í ár er í takt við það sem við höfum verið að gera síðustu ár sem eru 4 til 7 plötur á ári. Það lítur út fyrir að það komi út færri plötur í ár en áður en það er bara af því að það eru færri bönd með plötur, þá verður næsta ár kannski öflugra í staðinn,“ segir Haraldur. Lárus Jóhannesson hjá 12 Tónum segir að þeir séu að gefa út heldur fleiri titla í ár en áður. Tvær plötur komi út fyrir Airwaves og þá séu þeir nýlega búnir að gefa út þrjá titla. Hann býst við því að það verði mikið að gera í plötusölu kringum Airwaves. „Það verða í raun og veru jól á undan jólunum.“ Matthías Árni Ingimarsson hjá dreifingarfyrirtækinu Kongó, sem dreifir tónlist fyrir fjölda sjálfstæðra útgefenda og einstaklinga, segir að svo virðist sem það séu alltaf fleiri og fleiri sem velji að gefa út sjálfstætt. „Ég hef ekki tilfinningu fyrir því að þetta dragist saman í ár hjá okkur. Við erum búin að dreifa 44 titlum, þá diskum, plötum og bókum, það sem af er árinu, af því eru rúmlega 30 titl- ar nýir. En í fyrra dreifðum við yfir allt árið 58 titlum,“ segir Matthías. Lítur út fyrir sam- drátt í plötuútgáfu Morgunblaðið/Árni Sæberg Sena Raggi Bjarna 80 ára kemur út á geislaplötu fyrir jólin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.