Morgunblaðið - 23.10.2014, Blaðsíða 108
FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 296. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Hvað kostar að fljúga til Ameríku?
2. Kaldur veruleiki Pistorius
3. Nennti ekki að skafa
4. Tólf ár að byggja bílskúr
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Hljómsveitin Vök samdi nýverið við
útgáfufyrirtækið The Musebox Re-
cords og hefur nú sent frá sér
þröngskífuna Tension á erlendri
grundu. Vök, skipuð Margréti Rán
Magnúsdóttur, Andra Má Enokssyni
og Ólafi Alexander Ólafssyni, fór með
sigur af hólmi í hljómsveitakeppninni
Músíktilraunum í fyrra og hefur nú
vakið athygli vestanhafs. Fjallað hef-
ur verið um hljómsveitina í tónlistar-
tímaritinu Noisey, þar sem tónlist
hennar er líkt við Sade og Fever Ray
og í dagblaðinu New York Times þar
sem blaðamaðurinn Jon Pareles fer
fögrum orðum um hana.
Vök vekur athygli ut-
an landsteinanna
Höfundakvöld
verður haldið í
annað sinn í
Gunnarshúsi í
kvöld kl. 20 og
mæta að þessu
sinni rithöfund-
arnir Kristín
Steinsdóttir og
Sverrir Norland
og fjalla um nýútkomnar bækur sínar,
Vonarlandið og Kvíðasnillingana.
Kristín og Sverrir á
höfundakvöldi
Allir lesa, landsleikur í lestri, hófst
á föstudaginn var og á vefnum all-
irlesa.is má finna ýmsar töl-
fræðilegar upplýsingar um gagn
keppninnar, m.a. í hvaða sveitar-
félögum mest er lesið, í klukkustund-
um talið. Um miðjan dag í
gær tróndi Garður á
toppnum og næst kom
Djúpavogshreppur. Þá
mátti einnig sjá að konur
höfðu lesið í 7.196 klst.
en karlar öllu skemur, í
2.116 klst.
Garður í efsta sæti
Á föstudag Breytileg átt 3-8 m/s en austan 5-10 m/s á Vest-
fjörðum. Slydda eða snjókoma með köflum fyrir norðan en annars
úrkomulítið. Hiti nálægt frostmarki en víða vægt frost til landsins.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og snjó-
koma með köflum norðantil en vestlæg átt, 3-10 m/s og dálítil
rigning eða slydda syðra. Frost víða 0 til 5 stig inn til landsins.
VEÐUR
„Þeir sýndu áhuga í sumar en
ég fékk að heyra það í júlí að
þeir hefðu ekki átt pening fyrir
mér. Það breyttist, þeir
hringdu í mig á þriðjudegi og
ég var farinn út á föstudegi,“
sagði Sigurður G. Þor-
steinsson, landsliðsmaður í
körfubolta, sem hefur
strax fengið stórt hlut-
verk hjá Solna Vikings í
Svíþjóð þrátt fyrir að
hafa komið til liðsins rétt
áður en leiktíðin hófst. »3
Fundu fé og fengu
Ísafjarðartröllið
Þegar saga Meistaradeildarinnar og
Evrópukeppni meistaraliða í knatt-
spyrnu er skoðuð kemur í ljós að lið
frá mörgum fjölmennustu borgum
álfunnar hafa ekki unnið bikarinn. Má
þar nefna Istanbúl, Moskvu, París og
Róm auk þess sem London fékk ekki
bikarinn með stóru handföngunum á
hliðunum til sín fyrr en árið 2012
þegar Chelsea sigraði. » 4
Vinsælustu liðin ekki í
stærstu borgunum
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Ég vildi ekki taka reynsluna og fróð-
leikinn með mér í gröfina,“ segir
Reynir Eyjólfsson lyfjafræðingur um
bókina Design and Manufacture of
Pharmaceutical Tablets, sem hann
skrifaði á skömmum tíma í vor og
kemur út í kilju 29. október en er nú
fáanleg á rafrænu formi hjá Amazon-
.com.
Það eru ekki margir sem taka upp
á því að skrifa bók 77 ára gamlir.
„Bara þeir hörðustu,“ áréttar Reynir
og bætir við hann hafi ekki verið lengi
að skrifa hana, loks þegar hann hafi
byrjað á verkinu. „Ég var búinn að
ganga með bókina í höfðinu í mörg,
mörg ár og var því í raun búinn að
semja hana áður en ég byrjaði að
skrifa.“
Í lyfjaþróun í 40 ár
Reynir vann við lyfjaþróun hjá
Pharmaco, Delta og Actavis í 40 ár,
einkum hvað varðar venjulegar töflur
og töflur sem losa lyf hægt úr sér.
Hann segir að bókin, sem fjallar um
hönnun og framleiðslu á lyfjatöflum,
eigi mikið erindi í lyfjafræðina og
lyfjaiðnaðinn. „Mér fannst vanta bók
um þetta efni sem tekur á þessum
praktísku hlutum og bókin er skrifuð
fyrir allan heiminn,“ segir Reynir.
Hann bendir á að margar, ágætar
bækur séu til um þetta efni, en þær
séu allar því marki brenndar að vera
mjög teoretískar. „Í þeim eru mjög fá
dæmi um raunverulegar samsetn-
ingar og framleiðslu-
aðferðir, sem ég legg
áherslu á í minni bók.
Teorían er ágæt og mað-
ur getur ekkert án henn-
ar en mér fannst vanta
bók sem tekur á þessum
praktísku atriðum.“
Reynir bætir við að flest-
ar bækur um hönnun og
framleiðslu á lyfjatöflum
geri of lítið úr kerfis-
bundnum aðferðum við lyfjahönnun,
en nálgast megi hönnunina á vísinda-
legan, kerfisbundinn hátt með því að
beita tölfræðilegum aðferðum. Sama
eigi við um blöndun á lyfjadufti.
Bókaútgáfan Elsevier gefur bókina
út. Reynir segir að um sé að ræða
stærstu bókaútgáfu á sviði lyfjafræði
og læknisfræði í heiminum. Hann hafi
sent inn sýnishorn af efni bókarinnar
og sérfræðingar útgáfunnar hafi lagt
blessun sína yfir verkið. „Ég er mjög
stoltur af þessu verki enda ekki
hlaupið inn á þennan markað,“ segir
Reynir, sem hefur verið afkastamikill
þegar kemur að ritun fræðigreina og
annarra greina. „Ég skrifaði bókar-
kafla 1970 og svo var það doktors-
ritgerðin en þetta er í raun fyrsta
bókin.“ Þá liggur beinast við að
spyrja hvort önnur bók sé væntanleg.
„Það er aldrei að vita,“ segir hann,
„en heilsan ræður því.“
Skrifaði bók fyrir heim allan
77 ára lyfja-
fræðingur lætur
til sín taka
Morgunblaðið/Ómar
Fræðimaðurinn Reynir Eyjólfsson með rafræna útgáfu af bókinni, sem kemur út í kilju 29. október.
Doktor Reynir Eyjólfsson lyfjafræð-
ingur er 77 ára, fæddur 19. mars
1937 í Haugum, Skriðdalshreppi í
Suður-Múlasýslu. Fyrir um
tveimur árum fékk hann
heiðursviðurkenningu Verk-
fræðingafélags Íslands fyr-
ir að þróa lyfjafræðilegar
lausnir sem gerðu Delta
hf., síðar Actavis Group,
kleift að hasla sér völl með
samheitalyf á alþjóðlegum
markaði.
Reynir var lyfjafræð-
ingur í Lyfjaverslun rík-
isins 1964-1965 og stundaði síðan
framhaldsnám, kennslu- og rann-
sóknastörf við Lyfjafræðiháskólann
í Kaupmannahöfn áður en hann
varð forstöðumaður rannsókna- og
gæðaeftirlitsdeildar Pharmaco
1971-1975. Hann starfaði síðan hjá
Lyfjamáladeild heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytisins, Lyfja-
eftirliti ríkisins og Lyfjaverðlags-
nefnd til 1982, var deildarstjóri
lyfjaþróunardeildar Delta hf., síðar
Pharmaco og svo Actavis 1983-
1999 og starfsmaður sömu deildar
2000-2010.
Víðtæk og mikil reynsla
REYNIR EYJÓLFSSON DOKTOR Í LYFJAFRÆÐI
„Ég er að renna út á samningi og er
að skoða mín mál. Lilleström vill
halda mér og er búið að tilkynna mér
það en fjárhagsstaða félagsins er erf-
ið og það er ljóst að framundan er
niðurskurður. Við höfum ekkert farið
út í neinar viðræður enda
á félagið eftir að ráða
þjálfara,“ sagði Pálmi
Rafn Pálmason, knatt-
spyrnumaður hjá
Lilleström.
Vel get-
ur ver-
ið að
hann
flytji heim
haldi hann ekki
áfram hjá Lille-
ström. »1
Óvissa hvað tekur við
hjá Pálma Rafni