Morgunblaðið - 23.10.2014, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 23.10.2014, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 2014 www.rekstrarland.is Mörkinni 4 | 108 Reykjavík | Sími 515 1100Rekstrarland er byggt á fyrrum rekstrarvörudeild Olísog er dótturfyrirtæki Olíuverzlunar Íslands hf. Samsettir fjáröflunarpakkar eða sérsniðnir eftir óskum hópsins Öflug fjáröflun fyrir hópinn Hafðu samband við sérfræðinga okkar í Rekstrarlandi í síma 515 1100 eða næsta útibú Olís og leitið tilboða. Það nýmæli er í lögum um menn- ingarminjar sem samþykkt voru á árinu 2012 að einungis þarf form- legt leyfi Minjastofnunar til að stunda fornleifarannsóknir sem hafa jarðrask í för með sér. Til- kynna þarf aðrar rannsóknir, þótt ekki sé grafið upp. Þá er það spurningin hvað maðurinn með málmleitartækið gerir þegar hann fær svörun um að eitthvað sé undir. Hann má ekki grafa eftir forn- leifum. Hann má sjálfsagt grafa ef hann telur að undir sé járnadrasl yngra en 100 ára. Þetta hlýtur að vera erfið samviskuspurning. Hitt er svo annað mál að forn- leifafræðingar nota lítið málmleit- artæki við rannsóknir sínar hér á landi. Hefðbundnari aðferðir henta þeim betur. Þá má geta þess að járninnihald bergs er hátt hér á landi og getur truflað tækin. Málmleitartæki eru notuð við ýmislegt fleira en að leita að jarð- sprengjum og silfursjóðum. Þau eru til sölu í verslunum, bæði tæki sem henta atvinnumönnum í fram- kvæmdum og áhugamönnum. Þau kosta frá fáeinum tugum þúsunda en draga þá skammt. Tæki eins og Skotinn var með kosta hér um 130 þúsund krónur, samkvæmt upplýs- ingum frá versluninni Íhlutum. Málmleitartæki er einnig hægt að fá leigð í áhaldaleigum. Hentugt getur verið að grípa til þeirra ef skartgripur hverfur í sandinn í Nauthólsvík. Ekki margir sjóðir hér Ekki eru miklar líkur á að stórir silfursjóðir liggi hér í jörðu. Það er ef til vill heppilegt fyrir forn- leifaverndina. Freistingarnar eru minni. Mjöll Snæsdóttir, fornleifa- fræðingur hjá Fornleifastofnun Ís- lands, nefnir þrjá sjóði frá síðustu öld en þeir fundust í Gaulverjabæ, Ketu á Skaga og Miðhúsum á Hér- aði. Sá síðastnefndi fannst 1980. Auk þess hafa fundist minni sjóðir og stakir silfurpeningar. Allir sjóð- irnir fundust fyrir tilviljun, vegna einhverra framkvæmda. Gaulverja- bæjarsjóðurinn hefur sérstöðu því hann er eini hreini peningasjóð- urinn. Í honum eru um 350 pen- ingar frá ýmsum löndum. Uppi- staðan er enskir og þýskir peningar frá því um 1000 eða fyrr. Mjöll segir það rökrétt að hér séu fáir sjóðir miðað við nágranna- löndin. Líklegt sé að fleiri sjóðir hafi verið grafnir þar sem fleira fólk bjó. Því má bæta við að faldir fjársjóðir hafa gjarnan verið tengd- ir hernaði. Menn hafi átt þá til að kaupa sig frá ófriði eða verið að fela fjármuni sína vegna hernaðar og síðan fallið sjálfir. Þótt oft hafi verið ófriður á milli höfðingja hér á landi var það þó talið friðsamt og ekki eins mikil ástæða til að fela sjóði og í nágrannalöndum þar sem barist var um yfirráð. Silfur Egils eign ríkisins Ef einhver dettur í lukkupottinn, til dæmis með því að finna silfur Egils Skallagrímssonar í Mosfells- dal, er sjóðurinn eign íslenska rík- isins og ber að tilkynna fundinn tafarlaust til Minjastofnunar og skila honum til Þjóðminjasafnsins. Raunar má ekki hagga kistunum, hvað sem kann að vera eftir af þeim, eða fjarlægja lausa hluti vegna þess að fornleifafræðingar vilja geta rannsakað ummerkin ná- kvæmlega. Áhugamaðurinn fær fleira en heiðurinn af fundi sjóðsins því hann á rétt á að fá greiðslu sem svarar til helmings af verðmæti hans og landeigandinn hinn helm- inginn. Amast við fjársjóðsleit  Ekki gert ráð fyrir aðkomu áhugamanna að leit að fornminjum  Ekki lengur bannað að nota málmleitartæki en ekki má hreyfa við jarðvegi í leit að forngripum  Skylda að tilkynna um gripi Leit Það er vaxandi áhugamál í ná- grannalöndum að leita að silf- ursjóðum með málmleitartækjum. Ljósmynd/Úr bókinni Kuml og haugfé Silfurpeningar Um 350 peningar frá því um og fyrir árið 1000 eru í sjóðnum sem fannst í Gaulverjabæ 1930. Silf- ursjóðurinn er á Þjóðminjasafni, eins og aðrir sjóðir og stakir peningar sem fundust hér á landi á síðustu öld. BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ekki er gert ráð fyrir aðkomu áhugamanna við leit að fornminjum í lögum um menningarminjar. Þeir geta leitað á yfirborðinu, til dæmis með málmleitartækjum, en mega ekki róta í jarðvegi til að fá svar við því hvort forngripir eru undir. For- stöðumaður Minjaverndar ríkisins veltir því fyrir sér hvort ekki ætti að gera ráð fyrir samstarfi við áhugafólk við þá stefnumörkun sem nú er framundan. Fréttir berast oft af því frá ná- grannalöndunum að áhugamenn um fornminjar hafi rambað á merka forngripi með notkun málm- leitartækja. Áhugamenn hafa til dæmis fundið merka fjársjóði frá víkingaöld, bæði í Danmörku og Bretlandi. Nýjasta dæmið er Skot- inn Derek McLennan sem fann fal- inn fjársjóð frá víkingaöld í Dum- friesskíri í síðasta mánuði. Telja sérfræðingar þetta merkasta fjár- sjóð sem fundist hefur á Skotlandi. McLennan og félagar hans voru að leita með málmleitartækjum. Hann datt líka í lukkupottinn í fyrra þeg- ar hann fann stærsta sjóð silf- urpeninga frá miðöldum sem fund- ist hefur í Skotlandi. Erfið samviskuspurning Leit að forngripum er áhugamál fjölda fólks í nágrannalöndunum, ekki síst í Bretlandi. Þar eru reglur um slíka leit rýmri en á Norð- urlöndunum og svipar til reglna í Bandaríkjunum. Íslenskar reglur taka mið af norrænum rétti þar sem þeir eru tortryggðir sem leggja það á sig að leita að forn- gripum. Óttast fornleifafræðingar að fólk hirði sjálft gripina og valdi tjóni á fornleifum. Þannig var al- menningi bannað að nota málmleit- artæki við fornleifarannsóknir en búið er að taka það ákvæði út úr ís- lenskum lögum. „Þetta er skemmtilegt hobbí fyrir stráka sem hafa áhuga á sögu. Það er einhver Indíana Jones-tilfinning sem fylgir. Enginn er að þessu til að græða, frekar að finna skemmti- lega hluti í jörðu,“ segir Sigurður Helgi Pálmason, kaupmaður í Safn- aramiðstöðinni við Hverfisgötu. Hann telur að nokkrir ungir menn séu með málmleitartæki að reyna að finna hluti. „Það hefur enginn hringt í mig og sagst hafa fundið eitthvað í jörðu. Það hefur ekkert af því tagi komið sem einhverju máli skiptir,“ segir Sigurður. Hann segist viss um að þessir menn séu ekki að leita á friðuðum fornleifastöðum. Þeir þekki regl- urnar. Hins vegar geti það alltaf gerst að menn komi óvart niður á eitthvað merkilegt sem teljist forn- leifar. Sigurður segist hafa reynt að ræða málið við starfsfólk Þjóð- minjasafnsins til að sýna því fram á að það borgi sig að vinna með áhugafólkinu. Það hafi ekki borið árangur. Safnið hafi litið svo á að allir væru að þessu til að stela þeim gripum sem þeir hugsanlega kæmu niður á. Hann bendir á að í Bretlandi og Bandaríkjunum séu haldin nám- skeið fyrir áhugafólk og því síðan beint á staði sem fornleifafræð- ingar fari ekki á. Það hafi borið ár- angur. „Ég tel að stjórnvöld ættu að nýta áhugann og líta á hann með jákvæðum huga en ekki nei- kvæðum.“ Kristín Huld Sigurðardóttir, for- stöðumaður Minjastofnunar Ís- lands, segir að nokkrir menn hafi sýnt þessu áhuga. Það hafi verið fyrir nokkrum árum, þegar bannað var að nota málmleitartæki nema með sérstökum leyfum. Ekki hafi orðið meira úr af þeim ástæðum. Einn maður hafi þó haft mikinn áhuga á minjum úr seinni heims- styrjöldinni. „Við fengum hann í lið með okkur og hann leitaði með okkar vitund og vilja,“ segir Kristín. Hún segir að fyrir dyrum standi ný stefnumörkun. „Það mætti al- veg velta því fyrir sér hvort við tækjum meira höndum saman við áhugafólk á þessu sviði.“ Skemmtilegt hobbí fyrir ungt fólk með áhuga á sögu NOKKRIR MEÐ MÁLMLEITARTÆKI Sigurður Pálmason Kristín Huld Sigurðardóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.