Morgunblaðið - 23.10.2014, Blaðsíða 78

Morgunblaðið - 23.10.2014, Blaðsíða 78
78 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 2014 JÓLAtónleikar Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is J ólaandinn mun svífa yfir vötn- um á árlegum Hátíðartón- leikum Karlakórs Reykjavík- ur. Í ár falla tónleikarnir á laugardaginn 13. desember og sunnudaginn 14. desember. Á laug- ardeginum hefjast tónleikarnir kl. 17 og klukkan bæði 17 og 20 á sunnu- deginum. Friðrik S. Kristinsson er stjórn- andi kórsins og segir hann rösklega 20 ára hefð fyrir jólatónleikunum. „Mikil helgi og hátíðleiki er í kring- um þessa tónleika. Efnisskráin hefur á sér trúarlegt yfirbragð og við hæfi enda fara tónleikarnir fram í Hall- grímskirkju. Syngjum við falleg að- ventu- og jólalög í bland við kirkju- leg verk.“ Eru þetta jafnt íslensk lög og söngvar frá enskumælandi þjóðum, en að auki syngur kór- inn hluta tón- leikanna á latínu. „Hefð er fyrir því að syngja inn- göngusálm á lat- ínu. Gengur kór- inn þá í fylkingu inn kirkjuna og syngur þennan fallega söng um hina heilögu þrenningu,“ útskýrir Frið- rik. Fullt hús af gleði Á tónleikunum verður jólastemn- ingin nánast rafmögnuð. „Öll þessi ár hefur kórinn sungið fyrir fullu húsi og alltaf hef ég skynjað bæði mikla eftirvæntingu, gleði og þakk- læti meðal áheyrenda.“ Einn af hápunktum jóla- tónleikanna er hefðbundinn fjölda- söngur. Í tveimur eða þremur lögum fá gestir að syngja með og eru út- prentanir á textum í öllum sætum. Þó að Íslendingar séu margir feimn- ir að eðlisfari segir Friðrik að þátt- takan í fjöldasöngnum sé undantekn- ingalítið góð. „Allir standa upp og syngja með. Vitaskuld er alltaf einn og einn sem bara stendur en lætur hinum eftir að syngja og er það í góðu lagi, en enn skemmtilegra er að taka undir með skaranum þegar kirkjan öll ómar í voldugum söng. Er um að ræða skemmtileg jólalög sem allir ráða við og gaman er að syngja.“ Englarödd og óperustjarna Að vanda fær karlakórinn til sín einsöngvara og hljóðfæraleikara sem gera tónleikana enn magnaðri. Einsöngvarar í ár eru Helga Rós Indriðadóttir sópran og Benedikt Gylfason drengjasópran. Á hljóðfæri leika Ásgeir H. Steingrímsson og Eiríkur Örn Pálsson trompetleik- arar en Eggert Pálsson leikur á páku. Lenka Mátéová leikur á org- elið. „Benedikt er 11 ára meðlimur í Drengjakór Reykjavíkur og syngur í tveimur lögum. Hann er með gull- fallega rödd og vakti mikla ánægju og aðdáun tónleikagesta þegar hann söng með okkur í fyrra. Er ekki síð- ur mikill fengur í Helgu Rós sem nú er að gera garðinn frægan í sýn- ingum Íslensku óperunnar á Don Carlo í Hörpu. Þar fer Helga með hlutverk Elísabetar drottningar.“ Að sögn Friðriks eru tónleikar karlakórsins fyrir löngu orðinn fast- ur og ómissandi liður í jólaundirbún- ingi margra gesta. Í huga sumra marki tónleikarnir að jólin eru alveg á næsta leiti og ekki seinna vænna að komast í hátíðarskap. „Að fara á tónleika í Hallgrímskirkju getur verið fullkominn endir á ánægju- legum degi í miðborginni. Margir nota tækifærið fyrir tónleikana og skoða miðbæinn í jólaskrúða, kaupa jólagjafir handa ástvinum og kíkja kannski inn á kaffihús til að drekka eitthvað hlýtt og narta í eitthvað ljúf- fengt.“ Heldur starfinu gangandi Ekki má heldur gleyma að tónleik- arnir eru mikilvægasta tekjulind kórsins. Til að fjármagna öflugt kór- starfið árið um kring þarf miðasalan að ganga vel. Þá fer ómæld vinna í undirbúning þessa stóra viðburðar. „Æfingar fyrir jólatónleikana hefjast strax í september samhliða æfingu á öðrum verkum. Er haustið nær allt undirlagt og hittist kórinn tvisvar í viku til að syngja saman, tvo tíma í senn, og oftar þegar styttist í stóra daginn. Er þá eftir að bæta við allri þeirri þjálfun og æfingum sem með- limir kórsins stunda heimafyrir.“ Þeir sem vilja styrkja sérlega vel við starf kórsins geta, auk þess að sækja tónleikana, keypt einn af jóla- diskum kórsins. „Höfum við gefið út tvenna jóladiska, og annar þeirra tekinn upp á jólatónleikum kórsins í London árið 2004 og eru diskarnir seldir við innganginn.“ Miðasala á Hátíðartónleika Karla- kórs Reykjavíkur fer fram á www.midi.is og á heimasíðu kórsins, www.kkor.is. ai@mbl.is Ljósmynd / Ernst Backman Fríðir Tónleikar á borð við þá sem Karlakór Reykjavikur heldur hver jól eru afrakstur mikillar vinnu og langra æfinga sem hefjast snemma að hausti. Kórinn um síðustu jól. Kirkjan ómar öll í voldugum söng  Jólatónleikar Karlakórs Reykjavíkur fara fram röskri viku fyrir jól  Benedikt Gylfason drengjasópran og Helga Rós Indriðadóttir eru einsöngvarar að þessu sinni  Fastur liður að gestir syngja með í nokkrum lögum Friðrik Kristjánsson Morgunblaðið/Árni Sæberg Samvera Mörg hundruð raddir tónleikagesta taka undir í fjöldasöngnum og heyrist eflaust söngur kórs og gesta langt út fyrir kirkjuna. Draghálsi 14 - 16 110 Reykjavík Sími 4 12 12 00 www.isleifur.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.