Morgunblaðið - 23.10.2014, Blaðsíða 58
REYKJAVÍK2014Á FERÐ UMÍSLAND
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 2014
Íslenski sjávarklasinn heitir sam-
starfsvettvangur fyrirtækja í sjáv-
artengdri starfsemi á Íslandi. Mark-
miðið er að auka virði þeirra fyrir-
tækja sem starfa í klasanum.
Hlutverk sjávarklasans er að
tengja saman fólk og fyr-
irtæki og knýja áfram nýjar
hugmyndir og verkefni. Sjáv-
arklasinn er til húsa á Granda-
garði 16 í Reykjavík. Þar innan-
dyra hafa um þrjátíu aðilar komið sér
fyrir og vinna að margvíslegum þró-
unar- og nýsköpunarverkefnum. Er
þar jafnt um að ræða lítil nýsköp-
unarfyrirtæki sem eru að stíga sín
fyrstu spor yfir í útibú stórra og
rótgróinna fyrirtækja sem starfa
á alþjóðavísu. Starfsemi sjáv-
arklasans hefur fengið góðar
viðtökur. Þar hefur myndast
þekking og kunnátta sem nýt-
ist í verkefnum á sviði klasa-
stjórnunar, ráðgjafar og nýsköp-
unar sem á einn eða annan hátt
tengist hafinu. gudmundur@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nýsköpun Hús Íslenska sjávarklasans á Grandagarði í Reykjavík.
Þrjátíu nýsköpunarfyrirtæki eru
í Íslenska sjávarklasanum
Árið 2011 var Reykjavík útnefnd ein
af bókmenntaborgum UNESCO, sú
fimmta í heiminum til að hljóta þá
nafnbót og sú fyrsta utan ensks mál-
svæðis. Titillinn er varanlegur og
núna í október stendur yfir svokölluð
lestrarhátíð í Bókmenntaborg sem er
haldin í þriðja sinn og er að þessu
sinni helguð smásögum, örsögum og
ritlist undir yfirskriftinni Tími fyrir
sögu.
Í tengslum við lestrarhátíðina má
finna forvitnilegt svæði á vefsíðu
Bókmenntaborgarinnar sem nefnist
Nestisboxið og er safn stuttra sagna
sem eru nógu stuttar til að hægt sé
að lesa þær í matar- eða kaffihléum.
Þar eru alls konar sögur eftir ólíka
höfunda, t.d. Svövu Jakobsdóttur,
Þórarin Eldjárn og Sigurbjörgu Þrast-
ardóttur, og kemur ný saga inn á degi
hverjum. annalilja@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Bækur Reykjavík var mikill sómi sýndur með að vera útnefnd Bókmenntaborg.
Óvíða í heiminum eru gefnir út eins margir bókatitlar á íbúa og á Íslandi.
Nestisbox, sneisafullt af sögum
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Tvisvar í viku kemur hópur
drengja og karla á aldrinum 13-33
ára saman til að spila amerískan
fótbolta. Þar eru á ferðinni liðs-
menn Einherja, sem æfa íþróttina
á veturna á hinum ýmsu íþrótta-
völlum í Reykjavík og fá svo inni í
Fífunni í Kópavogi yfir köldustu
vetrarmánuðina.
Einherjar komu fyrst saman
árið 2009, síðan þá hefur þeim
fjölgað jafnt og þétt og nú stend-
ur til að koma starfseminni í fast-
ari skorður að sögn Bergþórs
Phillips Pálssonar, varaformanns
Einherja.
Eina starfandi liðið
Bergþór fékk ungur áhuga á
íþróttinni, er hann fékk amer-
ískan fótbolta að gjöf, fór þá að
horfa á NFL-deildina í sjónvarp-
inu og í framhaldinu sjálfur að
spila. „Það eru átökin og hvernig
þessi leikur hentar fjölbreyttum
Íþróttin er ekki bara
fyrir einhverja jaka
Einherjar spila amerískan fótbolta
Ljósmynd/Einherjar
Vel varðir Einherjar klæðast brynjum og bera hjálma þegar þeir keppa innbyrðis á æfingakappleikjum.
VIÐTAL
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Hljómburðurinn hér er góður eða
eins og í sálminum segir: Kirkjan
ómar öll. Okkur finnst því mikið
vanta að hér sé ekki orgel, enda
skapar það einstakan hljóm þegar
flutt eru trúarleg verk. Því efnum
við til þessarar hátíðar og af eðlis-
lægri bjartsýni ætla ég að okkur
leggist til þeir peningar sem duga
til orgelkaupa,“ segir Lovísa Guð-
mundsdóttir, kirkjuvörður í Guð-
ríðarkirkju í Grafarholti í Reykja-
vík.
Kórar, Pétur Örn
og Bjarni Ara
Klukkan 17 næsta laugardag,
25. október, verða í Guðríðar-
kirkju tónleikar og rennur ágóð-
inn af þeim til tónlistarsjóðs kirkj-
unnar. Allir listamenn sem fram
koma gefa vinnu sína og það sem
safnast fer í orgelið. Er Björgvin
Tómasson, orgelsmiður á Stokks-
eyri, nú að leggja lokahönd á
smíði þess.
Á tónleikunum kemur fram
Stormsveitin, tuttugu manna
karlakór ásamt fimm manna rokk-
hljómsveit sem syngur í fjórum
röddum. Pétur Örn, kenndur við
hljómsveitina Buff, tekur lagið
með kórnum. Efnisskráin er fjöl-
breytt, íslensk karlakórs- og þjóð-
lög svo og músík með sveitum eins
og Queen og Metallica. Storm-
sveitin hefur verið starfandi í
rúmt ár og verið gerður góður
rómur að leik hennar og söng. Þá
kemur Karlakór Kjalnesinga fram
með Bjarna Arasyni, sem syngur
nokkur laga sinna með kórnum.
Hljóðfæri fyrir
fermingarmessurnar
Guðríðarkirkja í Grafarholti
var byggð á mettíma. Hafist var
handa um framkvæmdir vorið
2007 og hún vígð 7. desember
2008. Í september það ár var sam-
ið við Björgvin Tómasson um
smíði á orgeli og út var greiddur
þriðjungur þess verðs sem hann
setti upp. En svo kom október
með hruni og kreppu og þá stopp-
aði allt. Flygill hefur því verið
notaður við allan tónlistarflutning
í kirkjunni. Það hefur þótt ágætt,
svo langt sem það nær, en orgelið
vantar enn og því þykir nokkuð
skorta á.
„Orgeltónlist færir andann of-
ar. Sum tónverk, svo sem Faðir-
vorið eftir Malotti, gerir sig aldrei
betur en í flutningi á orgel. Ég
vona að tónleikarnir um helgina
skili okkur því að orgel verði kom-
ið í kirkjuna fyrir fyrstu ferming-
armessurnar sem verða 12. apríl,“
segir Hrönn Helgadóttir, organisti
og kórstjóri í Guðríðarkirkju.
Kórinn er hverfið
Alveg frá því Grafarvogssöfn-
uður var stofnaður árið 2008 hefur
Hrönn sinnt tónlistarstarfi þar, en
fyrstu árin fór kirkjustarfið fram í
sal í fjölbýlishúsi eldri borgara við
Þórðarsveig. Fluttist svo í full-
gerða og vígða í kirkjuna og þar
hefur tónlistarlífið eflst og dafnað.
Hrönn bætir við að kirkjan hafi
Morgunblaðið/Kristinn
Söngur Kórinn er fólkið í hverfinu sem kemur og syngur, segir Hrönn organisti, hér með Lovísu kirkjuverði.
Færir andann ofar
Safnað fyrir orgeli í Guðríðarkirkju Halda tónleika
næstkomandi laugardag Hljómburðurinn þykir góður