Morgunblaðið - 23.10.2014, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Ég er ekki bjartsýnn á að þetta
réttist að öllu leyti við á innanlands-
markaði. Grillvertíðin hefur veruleg
áhrif og hún kemur ekki til baka,“
segir Sigurður Eyþórsson, fram-
kvæmdastjóri Landssamtaka sauð-
fjárbænda og Markaðsráðs kinda-
kjöts, um möguleika þess að vinna
til baka þann samdrátt sem orðið
hefur í sölu lambakjöts á þessu ári.
Lambakjötið hefur heldur látið
undan síga á síðustu mánuðum og
misserum. Ef litið er til síðustu tólf
mánaða er samdrátturinn 9,2%.
Hann var raunar meiri í september,
miðað við sama mánuð í fyrra, eða
um 22,3%.
Ingvar Már Gíslason, markaðs-
stjóri Norðlenska, viðurkennir að
sala á lambakjöti hafi ekki verið
auðveld í ár. Framleiðsla sé mikil og
markaðurinn teljist kaupendamark-
aður. „Það er mikill verðslagur og
neytendur njóta þess. Ætli verð á
lambakjöti sé ekki hagstæðara en
það hefur nokkru sinni verið? Það
hefur drifið söluna áfram að und-
anförnu,“ segir Ingvar. Sigurður
vekur athygli á því að hægt sé að fá
lambalæri á verði sem er undir 1.000
kr. á kílóið út úr búð og á þá við
frosið lambakjöt frá sláturtíð 2013.
„Ég tel það gott verð.“
Svínakjötið heldur sínu
Sigurður telur að skýra megi mik-
inn samdrátt í sölu í september að
hluta til með því að sláturtíð hófst
örlítið seinna en venjulega. Þess ber
að geta að tölur um sölu kindakjöts
á innanlandsmarkaði eru miðaðar
við sölu frá afurðastöðvum til kjöt-
vinnslna og verslana og telur Ingvar
að sveiflu í september megi ef til vill
skýra með því að kjötvinnslur hafi
verið vel birgar af kjöti og haldið að
sér höndum við frekari kaup.
Ef litið er til annarra innlendra
kjötafurða má sjá að samdráttur er í
öllum greinum á síðustu tólf mán-
uðum, nema svínakjöti. Sala á því
eykst um 1,7% á milli ára.
Tölurnar af innanlandsmarkaði
þurfa þó ekki að endurspegla sam-
drátt í kjötneyslu í landinu því inn-
flutningur á kjöti hefur aukist.
Þannig voru flutt til landsins 1.820
tonn af kjöti fyrstu átta mánuði árs-
ins, eða tæpum 800 tonnum meira
en sömu mánuði í fyrra. Mest mun-
ar um stóraukinn innflutning á
nautakjöti, sem nemur 757 tonnum
á móti 115 tonnum þessa mánuði í
fyrra. Innflutningur á kjúklingum
hefur einnig aukist og nemur 686
tonnum.
Samdráttur í sölu á lambakjöti á innanlandsmarkaði þrátt fyrir verðlækkun á
markaði Flutt hafa verið inn tæp tvö þúsund tonn af kjöti það sem af er ári
Kindakjötssala eykst ekki
Morgunblaðið/RAX
Skrokkar Lömbin eru þyngri í
haust og framleiðslan eykst.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Háhyrningurinn Keikó drapst vegna þess að tilfinningar
og óskhyggja náðu yfirhöndinni, en þekking og reynsla
fékk að sitja á hakanum. Svo segir í nýrri bók, Killing
Keiko, eftir Mark A. Simmons, sérfræðing í atferli dýra
og einn af þeim sem sáu um þjálfun Keikó og tilraunir til
þess að koma honum á ný í náttúrulegt umhverfi.
Í bók sinni lýsir Simmons ýmsum ágreiningi sem
varð á milli hans og félaga hans, Robins Friday, annars
vegar og yfirstjórn samtakanna Ocean Futures Society,
sem hafði veg og vanda af verkefninu hérlendis, hins
vegar. Segir Simmons að reynt hafi verið að þrýsta á um
að Keikó yrði sleppt út í náttúruna fyrr en æskilegt væri.
Lifðu í „Hollywood-veruleika“
Simmons lýsir ítarlega í bók sinni fyrstu tilrauninni
til þess að kynna Keikó fyrir öðrum villtum háhyrningum
og endaði hún með þeim ósköpum að Keikó flúði, og
tókst með herkjum að fá hann til baka til Klettsvíkur.
Gagnrýnir Simmons mjög yfirstjórn verkefnisins, sem
hann segir hafa lifað í þeim „Hollywood-veruleika“ að
trúa því að Keikó myndi bara þurfa þetta eina tækifæri
til þess að verða frjáls. Tilefnið hafi því orðið að hálf-
gerðum fjölmiðlasirkus, sem hafi ekki orðið til að róa
taugar Keikó. Sögðu Simmons og Friday sig í kjölfarið
frá verkefninu.
Simmons ber Íslandi og Íslendingum að mestu vel
söguna, og segir til dæmis á einum stað að hann hafi orð-
ið stoltur af Landhelgisgæslunni fyrir hönd Íslendinga.
Eftir því sem á leið kvarnaðist hins vegar úr sérfræð-
ingahópnum frá Bandaríkjunum sem fenginn var til þess
að sjá um Keikó og þurfti að draga úr kostnaði, sem um
tíma var orðinn 26 milljónir króna á mánuði. Yfirstjórn
verkefnisins hafi þá brugðið á það ráð að ráða heima-
menn til starfa. Simmons segir að Ísland hafi ekki haft
innviði til þess að fylla í skörðin með eigin fólki. Segir
Simmons það ekki meint sem móðgun gagnvart þjóðinni,
heldur hafi þekkingin sem þurfti til þess að sleppa há-
hyrningi út í Atlantshafið á ný verið það sérhæfð að hana
hafi ekki verið að finna hér á landi.
Simmons greinir einnig frá því í bók sinni að Jim
Horton, einn af þjálfurum Keikó, með víðfeðma reynslu
úr skemmtigarðinum SeaWorld, hafi greint lungnasýk-
ingu í hvalnum. Þessari staðreynd hafi hins vegar verið
sópað undir teppið, því að í henni fælist viðurkenning á
því að Keikó myndi aldrei spjara sig í náttúrunni.
Segir Keikó hafa drep-
ist vegna óskhyggju
Aðbúnaður háhyrningsins gagnrýndur í nýrri bók
Morgunblaðið/Kristinn
Keikó Háhyrningnum komið fyrir í innsiglingunni í Eyjum í september 1998, eftir flutning frá Bandaríkjunum.
Ford 450
Sjálfskiptur.
Árg. 2006, ekinn 18 þús. km.
Bíllinn er útbúin 1,5 tonna vöru lyftu.
Einnig er Stöðvarleyfi hjá Nýju sendíbílastöðinni til sölu
hjá sama aðila og getur það selst sér.
FORD sendibíll til sölu
Nánari upplýsingar veitir Sæberg í síma 557 9229
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Átján starfsmönnum var sagt upp í
gær hjá Arion banka. Þar á meðal
eru einu tveir starfsmenn bankans á
Hólmavík en í kjölfarið verður úti-
búinu þar lokað. Fólki sem átt hefur
í viðskiptum við útibúið er bent á
næsta útibú í Borgarnesi, sem er í
um 160 kílómetra fjarlægð. „Þetta
er búið að vera í gangi frá vorinu ár-
ið 2008 til dagsins í dag. Það hefur
varla liðið mánuður án þess að komið
hafi til uppsagna. Það er þessi enda-
lausa svokallaða hagræðing sem
kemur fyrst og fremst fram í því að
það er verið að loka afgreiðslu-
stöðum, bæði í Reykjavík og um allt
land,“ segir Friðbert Traustason,
framkvæmdastjóri Samtaka starfs-
manna í fjármálaþjónustu. Hann ótt-
ast að frekari uppsagna sé að vænta
í bankakerfinu. „Við erum komin
niður fyrir þann fjölda sem vann í
viðskiptabankakerfinu öllu fyrir 25
árum,“ segir Friðbert. Um 3.300
manns starfa í viðskiptabönkunum.
Haraldur Guðni Einarsson, for-
stöðumaður samskiptasviðs hjá Ar-
ion banka, segir
að þeir, sem hafi
verið sagt upp,
séu allir á við-
skiptabankasviði.
Hann segir að
útibúi í Borg-
arnesi sé ætlað að
sinna kjarna-
starfsemi á Vest-
urlandi og því sé
viðskiptavinum á
Hólmavík beint þangað. „Af þeim
sem eru með sín viðskipti á Hólma-
vík, þá er um helmingurinn með bú-
setu á höfuðborgarsvæðinu,“ segir
Haraldur Guðni.
Andrea K. Jónsdóttir, sveit-
arstjóri í Strandabyggð, segist afar
hissa á þessari ákvörðun. „Ég er
mjög vonsvikin yfir þessu. Þetta er
tap á störfum úr sveitarfélaginu og
það er mjög alvarlegt. Sérstaklega í
ljósi þess að nú er sýslumaður að
hverfa á brott og að auki eru blikur í
sjávarútvegi. Línuívilnun og skertur
ýsukvóti er í raun aðför að þeirri
grein. Þegar þetta er tekið saman þá
er þetta mjög alvarleg staða,“ segir
Andrea.
Næsta útibú í
160 km fjarlægð
Arion segir upp 18 starfsmönnum
Andrea Kristín
Jónsdóttir
Enn er mikil skjálftavirkni og sig í
Bárðarbungu. Rúmlega 50 skjálftar
hafa mælst þar frá miðnætti og var
sá stærsti 4,9 að stærð kl. 11.09. Í
gær mældist stór skjálfti 5,3 stig að
stærð við norðanverða brún
Bárðarbunguöskju.
Nokkuð hefur dregið úr virkni
eldgossins í Holuhrauni, en gas-
mengun er helsta vandmálið sem
það skapar. Veðurstofan varar við
gasmengun á norðanverðu landinu
í dag, frá Jökuldalsheiði fyrir aust-
an, vestur í Hvammsfjörð.
Gasmengun á norð-
anverðu landinu
Fimm rútur á leið til Seyðisfjarðar í
Norrænu lentu í vanda á Fjarðar-
heiði í gærkvöldi vegna mikillar
hálku. Komust þær aftur af stað
eftir að keðjur voru settar á dekkin.
Lögreglan ítrekar mikilvægi þess
að nota keðjur í svona færi og segir
að fleiri stórir bílar hafi komist í
hann krappan á heiðinni vegna van-
búnaðar.
Fljúgandi hálka
á Fjarðarheiði