Stígandi - 01.10.1944, Side 49

Stígandi - 01.10.1944, Side 49
STÍGANDI HÁSKÓLANÁM í BANDARÍKJUNUM 287 Yfirstjórn skólans er falin sérstakri nefnd manna, og er ríkis- stjóri Kaliforníu að jafnaði formaður hennar. Nefnd þessi skipar svo þá embættismenn, er fara með beina stjórn skólans, en þar á ég við eftirlit með kennslunni, tilliögun hennar, prófum og aga stúdenta. Æðstur þeirra er forsetinn (the President). Starf hans er þó aðallega í því fólgið að koma fram út á við fyrir hönd skólans, en sér til aðstoðar hefir hann svonefnda deans, en það eru for- stöðumenn hinna ýmsu stofnana eða skóla (schools eða colleges) innan háskólans. Slíkir skólar ná oft yfir margar greinar eða deildir (faculties), t. d. er algengt að mál, stærðfræði, félagsleg fræði og náttúruvísindi séu innlimuð í hina sömu háskólastofnun og hafi sameiginlegan forstöðumann (dean), þó að hver deild hafi auðvitað sjálfstæða tilveru, þar sem prófessorarnir ráða lögum og lofum. Menntaskólar í Bandaríkjunum eru yfirleitt fjögurra ára skólar og starfa um það bil níu mánuði ársins. Inntöku í háskólann geta svo allir fengið, sem eru brautskráðir úr menntaskólunum. Við, íslenzkir stúdentar, er véstur höfum leitað, höfum staðið betur að vígi, þar eð við höfum að baki okkur sex ára menntaskólanám. Veitti Kaliforníuháskóli okkur nokkrar ívilnanir þess vegna, og losnuðum við við sumt af hinu almennara undirbúningsnámi í háskólanum. Háskólaborgararéttindi geta menn enn fremur öðlazt með því að standast sérstök inntökupróf, sem háskólanefnd ein (College Entrance Examination Board) efnir til árlega. Allir nýir háskólaborgarar verða svo að ganga undir og stand- ast skfiflegt próf í ensku (Subject A). Þar eru menn látnir gera ritgerð um eitthvert fremur létt efni, auk þess sem leysa verður úr spurningum um málfræði, stafsetningu og setningaskipan enskrar tungu. Þar að auki þurfa svo allir útlendingar að taka annað próf í ensku bæði skriflegt og munnlegt, sem sýni það, að þeir geti fyllilega hagnýtt sér þá kennslu, er háskólinn lætur í té. Þetta próf er öllu léttara en hið fyrrnefnda, en má þó segja, að íslenzk- um námsmönnum hafi gengið heldur vel í þeim báðum. Venjulegt háskólaár er um níu mánuðir (ágúst— maí), og er því skipt í tvö missiri (semesters). Jólaleyfið kemur svo á milli missira, eins og siður er við Háskóla íslands. Síðastliðin tvö ár hefir þó reglulegt háskólanám staðið allt árið og verið skipt í

x

Stígandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.