Stígandi - 01.10.1944, Page 51
STÍGANDI HÁSKÓLANÁM í BANDARÍKJUNUM
289
aflað sér þekkingar í skyldum efnum, t. d. getur sagnfræðistúdent
samhliða sérnámi sínu lagt stund á þau atriði mannfræði, stjórn-
skipunarfræði og landafræði, sem liann lystir, og hagnýtt sér þau
við sagnfræðinámið. í sumum deildum eru menn þó að mestu
bundnir einu aðal-aukafagi, sem þá nefnist minor.
Námið er mælt í sérstökum einingum (units). Einingar þessar
eru í rauninni miðaðar við, hve mikinn tíma álitið er að stúdent-
inn þurfi að verja til námsins. Þó má segja, að alltjend séu mönn-
um veittar 3 námseiningar í lok missiris fyrir námsskeið, þar sem
verið liafa 3 fyrirlestrar á viku. Algengt er, að teknar séu 15 ein-
ingar á missiri, en þó er hægt að taka dálítið minna eða meira,
eftir því sem á stendur og liver telur sér fært.
I lok hvers missiris taka menn próf í hverju námsskeiði, sem
þeir hafa sótt. Þó er Jnað oft, að ritgerðir, reistar á niðurstöðum
tilrauna eða rannsókna, eru látnar koma í stað prófa Jjessara.
Þegar lokið er námi, sem svarar að minnsta kosti 120 náms-
einingum, öðlast menn nafnbótina Bachelor of Arts (A.B.) eða
Bachelor of Science (B.S.), eftir því, hvaða fag þeir hafa stundað.
Veiting nafnbótar Jaessarar er að mestu leyti byggð á lokaprófum
missiranna, en stundum jmrfa menn að taka próf í sérgrein sinni,
og nær það yfir flest, sem þeir liafa í henni lesið.
Allur Jaorri þeirra, er ameríska háskóla sækja, láta sér nægja
A.B. eða B.S. próf, þó að hægt sé að komast tveimur þrepum
hærra í liinum akademiska stiga.
Þeir sem lilotið hafa A.B. gráðu nefnast graduate students, og
geta, ef svo býður við að horfa, haldið áfram námi og tekið Master
of Arts (M.A.) eða meistarapróf. Stendur það nám yfir í eitt eða
tvö ár, og er veiting meistararéttinda oftast byggð á skriflegum
prófum og ritgerðum um sérstök rannsóknarefni. Við suma am-
eríska háskóla eru einnig hafðar munnlegar yfirheyrslur. Meist-
araprófsnámið er að miklu leyti fólgið í allsjálfstæðum rannsókn-
um, en hver graduate student nýtur þó leiðbeininga og ráða á-
kveðins prófessors, sem liefir eftirlit með verkinu.
Hæsta próf, sem amerískir liáskólar veita, er doktorspróf
og nefnt á enskunni Doctor of Philosopliy (Ph.D.). Eins og við
Norðurálfuháskóla, þá er gráða slík veitt fyrir sérstaka vísinda-
lega og fræðilega ritgerð, er kandidatinn hefir samið, og liann
leggur fyrir dómnefnd prófessora. Ef ritgerðin þykir tæk, fara
fram umræður um efni hennar milli prófessora og doktorsefnis.
Við það tækifæri er kandidatinn ýtarlega yfirheyrður í fræðigrein
19