Stígandi - 01.01.1945, Blaðsíða 45
STIGANDI
BERSÖGLISMÁL
35
hvern hátt liinni óhjákvæmilegu skriffinnsku verður fyrirkomið
með sem allra minnstum mannafla.
Mér finnst ógurlegt til þess að hugsa, hve mikill hluti æskunn-
ar, karla og kvenna, eyðir beztu árum ævinnar lokaður inni á
skrifstofum við að rita dauðar töl nr, sem aldrei eru lesnar nema
af endurskoðendum og fylla þykka doðranta, sem rykfalla um
aldur og ævi. Má ekki fækka þessu fólki, tæma sumar skrifstof-
urnar og færa þær saman, hleypa unga fólkinu út í Ijósið og úti-
loftið að frjóum störfum uppi í sveitum og úti á hafi?
Er ekki margur forstjórinn óþörf „toppfígúra"? Efalaust þarf
margt að lagfæra í rekstri hins opinbera, ríkisins og allra þess
stofnana, bæjarfélaganna og starfsgreina þeirra, þar þarf alls
staðar að beita vinnuvísindum, sem fækka mönnum við hin ó-
frjóu störf og gera allan opinberan rekstur einfaldari. Margur
starfgefinn bóndi eða sjómaður verður óstilltur, ef liann þarf
eitthvað að erinda við opinberar stofnanir. Þær eru Jrreytandi
allar hinar miklu göngur milli ýmissa Heródesa og Pílatusa, senr
um hvert smámál þurfa að fjalla, stundum margir í sömu stofnun,
stundum í mörgum skrifstofum og fjarlægum.
Hér þarf lagfæringar á. Það þarf að henda öllu gamla bóta-
draslinu og sníða nýjan stakk, nýtt reksturskerfi ríkisbúsins, byggt
á sparnaði og hagsýnum vinnuvísindum, og hvergi að hika, þótt
fjöldi rnanna verði að hverfa úr skrifstofum að frjórri störfum.
En Jressi endurskoðun fæst aldrei, meðan meirihluti þingmanna
eru skrifstofumenn sjálfir og telja liin frjóu framleiðslustörf böl
og áþján.
VL
Onnur meginstétt þingsins eru fjáraflamenn og verzlunarmenn,
Jreir, sent vörur kaupa og selja eða kaupa vinnu annarra og selja
afurðir hennar sér til fjárgróða, svo senr útgerðarmenn og iðn-
rekendur. Nokkrir lifa á sölu fasteigna og annarra stærri verð-
mæta, selja greiða, skemmtanir eða annað, sem fólk girnist. For-
ystumenn í þessum greinum eru oft verkasmáir, stritast við að
sitja og Iiugsa snjöll ráð til fjárafla, en öll stéttin er stór og mann-
mörg, ef með eru taldir allir skrifstofumenn og annað þjónustu-
lið.
Hvernig sjá hinir mörgu fulltrúar þessara fjáraflamanna í
þinginu fyrir sínum hag?
3'