Stígandi - 01.01.1945, Blaðsíða 80
70
JAKOB Á BREIÐUMÝRI
STÍGANDI
Heyrnardeyfa, hálsbólga,
hörundssviði, támeyra,
tungubólur, tannpína,
taugaveiki og grátskæla.
Ingibjörg var ferleg ásýndum; sagt var, að hún væri frítt barn,
en andlit hennar umhverfðist, er hún lá í vatni lengur en dæmi
eru til, að menn hafi gert án þess að drukkna. Ingibjörg flakkaði
annað veifið. Um för hennar um Bárðardal, orti Jakob langan
brag. Þar eru m. a. þessar vísur:
— Á Ljósavatni leikið fékk
lyndi með ótrauðu.
Út í kirkjugarðinn gekk
og grenjaði upp þá dauðu.
Fann ég móðurföðúrinn,
fóstra og tengdabræður,
Þorkel hák og Þorgeir minn,
þá sem nefna ræður.
Þorgeir fór að finna mig,
fannst hann glaður vera.
Jafnar gáfur sá við sig
sagði ég mundi bera.
Gengum við svo tvö á tal,
tengdumst handfestinni.
Um bændur spurði í Bárðardal
og busl í landstjórninni.
„Helzt frá þessu hermdu mér,
hér þó nöfnin geymi,
hvernig manna ástand er
eftir líf í Iieimi?“
Þorgeir mynda svo nam sögn
svipinn meður djarfan:
„Ekkert nema þar er þögn“. —
Þar næst burtu hvarf hann.--------