Stígandi - 01.01.1945, Qupperneq 75
JAKOB Á BREIÐUMÝRI
(F. á Stóru-Laugum í Reykjadal, 10. okt. 1790, — D. á Breiðumýri 1885, 94 ára.)
Eftir HELGA JÓNSSON
[Þáttur sá, er hér birtist, er úr óprentuðu safni Helga Jónssonar frá Þverá, er
hann kallar Skáldatal Suður-Þingeyinga 1750—1850. Er þátturinn nokkru fyllri í
handritinu en hér, t. d. Imbubragur allur, sem hér er aðeins birt brot úr. — Ritstj.l
Jakob Pétursson, (Helgasonar á Fjalli, Illugasonar) hefir, að
sögn dr. Jóns Þorkelssonar, búið um skeið á íshóli inn af Bárðar-
dal, og verið haldinn styrktarmaður Eyvindar og Höllu. Sögn er,
að hann hafi verið vel gerður maður og skáld gott, sem þeir
frændur hans margir. Sonur hans hét Pétur. Haft er eftir sýslu-
manni þeim, er hann vann fyrir við skriftir, að engan ungan
mann þekkti hann jafnvel gerðan og Pétur.
Pétur bjó um tírna í Naustavík undir Víknafjöllum. Jakob hét
sonur hans, sá er hér verður að nokkru getið. Þeir feðgar reru yfir
Skjálfanda til Húsavíkur í verzlunar-erindum. Mun verzlun
þeirra ekki liafa gengið að óskum. Þegar þeir létu frá landi, kvað
Pétur:
Húsavíkur-hreysi,
helvítis bæli skíta,
sneyðir mann öllum auði,
áður en hann þess gáði.
Botnaði Jakob son hans vísuna síðar þannig:
Skvaldra síðan um skuldir,
skellir á margri hrelling.
Vild’ eg að verka-gjöldin
veldust af hefndar-eldi.
Síðar bjó Pétur á Stóru-Laugum í Reykjadal. Kona hans var
Kristlaug, dóttir Gríms bónda á Stóru-Laugum. Móðir hennar
var Hallfríður, dóttir Einars sterka. Faðir hans var Ingjaldur
bóndi á Kálfaströnd, Jónsson, Ólafssonar í Brekku í Aðaldal.
Jón mun hafa verið bróðir Arnþórs Ólafssonar á Sandi.