Stígandi - 01.01.1945, Blaðsíða 108
STÍGANDI
íslenzkar þjóðsögur og ævintýri
EINAR ÓL. SVEINSSON, tók samcm.
Með 70 myndum eftir Ásgrím Jonsson, Einar Jónsson,
Eggert Guðmundsson, Eggert Laxdal, Guðmund Thor-
steinsson, Jóhannes Kjarval, Kristinn Pétursson og
Tryggva Magnússon.
Bókin er yfir 500 bls. að stærð í stóru broti og inniheld-
ur ekki aðeins úrval úr Þjóðsögum Jóns Ámasonar,
heldur er hér um að ræða úrval úr íslenzkum þjóð-
sögum yíirleitt. Bókinni er skipt í þessa 12 kaila:
Huldufólkssögur, Sæbúar, Tröll, Draugar, Ófreskisgóf-
ur» Galdrar, Úr nóttúrunnar ríki, Helgisögur, Úr sögu
lands og lýðs, Útilegumenn, Ævintýri Gamansögur.
Það er óþarft að hafa mörg orð um þessa bók. Ef til
vill hefur aldrei verið gefin út bók, sem í jafnríkum
mæli er hold af holdi íslenzku þjóðarinnar og blóð af
hennar blóði eins og þetta þjóðsagnaúrval doktors
Einars Ól. Sveinssonar.
í þjóðsögunum felast sumar okkor fegurstu
bókmenntaperlur.
Því miður er upplag bókarinnar svo lítið, að ekki er
þess að vænta, að hún komist inn á hvert heimilL en
þeir fá hana, sem fyrstir koma í bókabúðimar.
Bókin er bundin í mjög vandað skinnband. •
H.f. Leiftur
1