Stígandi - 01.01.1945, Page 50
40
BERSÖGLISMÁL
STÍGANDI
VII.
Þegar þetta er ritað, hefir ný stjórn setzt á laggirnar og ræðir
hún mjög um „nýsköpun“. En það er hvort tveggja, að reynslan
af þeinr ráðamönnum, sem að stjórninni standa, gefur eigi góðar
vonir um efndir loforða, enda eru loforðin sjálf eigi svo glæsi-
leg sem virðist í fljótu bragði. Eftir mánaðarsetu bólar ekki á
skötfunum, en farið að tala um nýja tolla (nefskatta) eða eyðslu-
lán. Ekki er heldur rætt um að hefta hinn óhemjulega verzlunar-
gróða né endurskoða rekstur ríkisbúsins. Ný launalög eru sett,
sem auka þann bagga á alþjóð um margar miljónir. Enda er
þessa ekki að vænta af þeim stéttum, sem að standa.
„Nýsköpun“ stjórnarinnar virðist nær eingöngu vera falin í
efling sjávarútvegs. Fimm sjöttu hlutar. af nýsköpunar-fénu eiga
að fara til þess að auka útveg og iðnað, sem byggir á sjávarafla.
Frá þjóðhagslegu sjónarmiði er þessi einhliða efling útvegsins
meir en hæpin, hún er stórháskaleg. Skulu að því færð nokk-
ur rök:
E Fullyrða má, að fiskur falli fyrr í verði en flestar vörur, er
stórþjóðir hefja veiðar á miðum, sem hvílzt liafa öll ófriðar-
árin.
2. Þegar skipasmiðjur losna úr herþjónustu og skip frá herferð-
um, hljóta skip að falla í verði meir en flest annað, svo að illa
mundu skip, sem keypt væru ófriðarverði, þola samkeppni við
önnur, sem keypt væru eða byggð eftir stríð.
3. Árni Friðriksson og aðrir \ ísindamenn liafa sannað, að fisk-
stofnar eru yfirleitt að ganga til þurrðar, vegna þess að sjórinn
er „ofsóttur". íslandsnrið eru engin undantekning.
4. Það er hyggilegra að byggja „nýsköpun“ atvinnuveganna á
náttúrugæðum, sem eru ótæmandi, svo sem vaxandi ræktun,
auknu frjómagni moldar, beizlun nýrra fallvatna, lieldur en
rányrkju hins ofsótta sjávar.
5. Hið mikla gum, að allt byggist á útveginum, er að talsverðu
leyti blekking. Að vísu gefur hann meginútflutningsmagnið.
En meginið af verði þeirra vara, sem framleiddar eru til neyzlu
í landinu sjálfu, stafar frá búnaði og iðnaði. Og mjög mikill
hluti af gjaldeyri fiskaflans fer til þess að greiða erlendar
vörur, er útgerðin þarfnast.
6. Stórútgerð hefur að undanförnu skapað misræmi í efnahag
meir en aðrir atvinnuvegir. Ef hún vex, en sveitirnar tæmast