Stígandi - 01.01.1945, Qupperneq 79
STÍGANDI
JAKOB Á BREIÐUMÝRI
69
Þegar þessi tíðindi spurðust, orti Jakob:
Amtmann Bjarna keyrði á koss
kíminn Andrés forðum.
Sagði síðan: „Sæli veri oss!“
Söng í tannaskorðum.
Minnir þessi sendiför Andrésar á tilburði Smjörhrings, með
sviðna sauðarhöfuðið, er Vémundur kögur sendi til að ljósta
Steingrím.
Héldu sumir, að þessi sendiför Andrésar hefði verið gerð í
þeirn tilgangi einum að spita amtmanni, er þótti stoltur í meira
lagi.
Þegar Jakob heyrði níðvísurnar um sig, er voru ávöxtur félags-
samtaka margra hagyrðinga á allstóru svæði (eins og segir í þætt-
inum af Jóni gapa), orti hann þessar vísur:
Þessa hefur „Gapi“ gert,
get ég til að vonum,
í öllum skömmum opinbert
er það líkast honum.
Þér, sem hafa þykist sál,
þessi ráð ég kenni:
Vandaðu bæði verk og mál,
ef viltu borgið henni.
Ingibjörg hét kerling á Breiðumýri. Orti Jakob um hana
langan brag og margar lausavísur. Þessa sjúkdómslýsingu santdi
Jakob fyrir Ingibjörgu:
Sjúkdómslýsing einföld er
Ingibjargar Jónsdótter.
Elli þunga byrði ber,
Breiðumýri á tórer:
Herðarígur, hjartveiki,
hósti, svimi, aflleysi,
kláði, hrollur, kýl-sýki,
kveisa, velgja, harðlífi.