Stígandi - 01.04.1945, Blaðsíða 20
ÆSKUMINNINGAR
Eftir SIGURJÓN FRIÐJÓNSSON
AÐ, sem ég man fyrst í lífi mínu, ætla ég að liafi verið fugla-
sr söngur á vorcfegi. Ég er fæddur að Sílalæk í Suður-Þingeyjar-
sýslu 22. sept. 1867 og fluttist með foreldrum mínurn að Sandi
vorið 1873 — á 6. ári. Mér er enn í ljósu minni ýmislegt, sem bar
við þetta vor og árið áður. Og fuglakliðurinn af vatninu við Síla-
lækjarbæinn, fyrst og fremst.
Bæirnir Sandur og Sílalækur standa fyrir botni Skjálfandaflóa
og eru ásamt Hraunkoti, er stendur nokkru sunnar, einangraðir
frá aðalbyggð sveitarinnar af mikilli hraunbreiðu, sem liggur
þvert yfir Aðal-Reykjadal milli Laxár og Skjálfandafljóts. Nær
hraunið þvínær til sjávar að austanverðu, en að vestan — við
Skjálfandafljót — er alllangt frá hrauninu til liafs, og á því svæði
mýrlendi, vatn, sem nefnt er Miklavatn, og sandar með nokkrum
gróðri milli vatnsins og hafsins. A mýrlendinu norðan við hraunið
eru bæirnir Sandur og Sílalækur; Sandur vestar og rétt við jaðar
hraunsins, Sílalækur austar og lengra frá hrauninu, nálægt Mikla-
vatni. — Hraunkot er í hrauninu suður frá Sandi og þeir bæir
báðir skammt frá Skjálfandafljóti.
í björtu sumarveðri er mikið og fagurt útsýni á þessum bæj-
um og einkum frá Sandi. Til norðurs sér yfir allan Skjálfanda-
flóa og norður til Grímseyjar, þegar skyggni er bezt. Til suðurs
sér yfir Aðaldalshraun — sem víða er með allmiklu skógarkjarri
— daladrög, heiðalönd, fell og fjöll langt inn til öræfa. í austri
blasa við fjallgarðar Reykjaheiðar og í vestri Kinnarfjöll, há og
tíguleg. Með suðaustlægum hlývindum — en þau veður verða
fegurst í Þingeyjarsýslu — sendir Laxá einatt mjúka, milda tóna
niður yfir Aðaldalshraun. Með hásunnanvindum berst þungur
dynur frá Goðafossi. Og í Kinnarfjöllum hrynja straumharðar
smáár alla daga, sumar og vetur. En þegar haustar og vetrar að
— og reyndar ósjaldan á sumrin líka — verður þarna oft drunga-
legt, rigningasamt og snjóasamt. Brimasamt haust og vetur. Og
ofsahvassir útsynningar standa þar oft af Kinnarfjöllum.
En dásemdir lífsins eru það, sem fyrst segja til sín í skýjarofum