Stígandi - 01.04.1945, Page 39

Stígandi - 01.04.1945, Page 39
STÍGANDI VEÐMÁLIÐ 133 Hvort hann hefir nokkru sinni farið eftir þessari ráðleggingu minni, get ég ekkert fullyrt um. En það eitt er víst, að ekki breytti liann eftir henni. Nei, liann Níels er ekki þannig gerður maður, að liann haldi einu fram í dag og öðru á morgun. Um tíma vildi hann helzt ekki sjá eða tala við nokkurn mann, en nú er það orðið öfugt, nú finnst honum, að hann nái aldrei til nógu margra til þess að segja þeinr sannleikann. * En örlögin, eða hvað á að kalla það, hafa hagað því svo til, að áheyrendahópur hans er ekki stór, sem betur fer vil ég segja. Og því fer líka betur, að skilningur þeirra á boðskap hans er miklum takmörkum háður. Það er að verða nokkuð langt, síðan ég hefi séð Níels og talað við hann, og hálft í hvoru er ég íeginn, þó að mér renni alltaf til rifja, þegar mér dettur hann í hug og þetta bölvaða veðmál, sem ég þó vann. Engan hundrað kallinn hefi ég þó fengið enn þá, og ég mun ekki gera mér ferð til Níelsar til þess að ganga eftir honum. Fjarri því. Ég hefi samt stundum verið að velta því fyrir mér, livort ég ætti ekki að heimsækja hann, en ég hefi alltaf kiknað á því. Hver veit, nema honum kynni að detta í hug að vilja liafa mig út í annað veðmál um eitthvað enn þá fjarstæðukenndara en veðmálið góða um sannleikann í þjónustu lífsins. Það kvað líka vera dálítið erfitt að umgangast hann. Hann er núna í órólegu deildinni á Kleppi.

x

Stígandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.