Stígandi - 01.04.1945, Blaðsíða 75
STÍGANDI
BÚENDATAL SANDS í AÐALDAL
169
Þetta, að hann væri ekkert annað en venjulegur, mennskur mað-
ur, livorki hálfguð né hálftröll, en að vísu svolítið frábrugðinn
því allra hversdagslegasta, veitti mér hugdirfð að ganga nær hon-
um, þrátt fyrir ofbirtuna, sem um hann lék. Enda fóru mér nú
smám saman að berast gögn í hendur um þennan einstaka mann,
og með athugun þeirra og samanburði ávannst sitt af hverju.
Arnþór á Sandi á samkvæmt fornri ættartölugrein að liafa verið
bróðir Elínar, konu Helga á Fjalli, Illugasonar. En þau voru for-
eldrar Péturs á Fjalli, föður Vigfúss, föður Þórkels, föður Guðrún-
ar húsfreyju á Sílalæk.1 2) Þetta var fyrsta vitneskjan urn ætterni
Arnþórs, og hún var mikilsverð, það sem hún náði. Nú getur þess
á einum eina.sta stað, svo að vitað sé, að Elín væri Ólafsdóttir. Þar
með var ekki sagt, að Arnþór væri Ólafsson, því að þau Elín gátu
verið hálfsystkini aðeins og þá sannnæðra. En væri þessi sögn
tekin gild, að þau Arnþór á Sandi og Elín á Fjalli væru systkin,
þá var spor stigið í þá átt að ákveða aldur Arnþórs og livenær
hann hefði uppi verið. Þegar það er athugað, að Helgi á Fjalli,
maður Elínar Ólafsdóttur, var sonur séra Illuga Helgasonar prests
á Stað í Kinn 1608—1654, þá er líklegt, að hann sé fæddur
um 1620 eða jafnvel heldur fyrr. Þegar þess er og gætt, að
Helgi virðist ekki liafa átt aðra konu en Elíni, og þau áttu allmörg
börn saman, þá varð að álíta, að nær væri um aldur þeirra hjóna,
og gera ráð fyrir, að þau væri fædd á áruntun 1615—1625. Og því
þá ekki að telja Arnþór á svipuðu reki, gera ráð fyrir, að þau væri
alsystkini án verulegs aldursmunar, úr því að engin fleiri systkini
eru talin?
Þegar þessi líkindi voru fengin, kom til skjalanna Halldór
heitinn Þorgrímsson.-) Honum sagði smádreng í Garði í Aðaldal
Jón Árnason, móðurfaðir hans, þá vel níræður, eftir Þorláki
bónda á Sandi, móðurbróður og fósturföður Jóns, er hreif piltinn
úr heljargreipum móðuhallærisins 6—7 vetra að aldri og ól upp
síðan, að milli sín og Arnþórs hefði búið á Sandi langa ævi tveir
Þórðar. Þessi sögn hefir ekki farið margra á milli og var því senni-
leg. Þetta var gott spor í þá átt að kreppa að Arnþóri.
Nú kemur manntal þeirra Árna Magnússonar og Páls Vídalíns
til sögunnar titi í Kaupmannahöfn nálægt aldamótunum, það er
menn hugðu löngu glatað. Það var gert á útmánuðum 1703. Voru
þar allir landsmenn skráðir með fullu nafni, aldri, stöðu og heim-
1) Guðrún á Sílalæk var amraa þeirra Guðraundar og Indriða. — I. I.
2) Halldór var lengi bóndi í Hraunkoti í Aðaldal, f. 1861. — I. I.