Stígandi - 01.04.1945, Side 81

Stígandi - 01.04.1945, Side 81
STÍGANDI UM BÆKUR 175 bók, hlýtur það fyrst og fremst að vekja athygli, hve vel höfundur kann að fara með bundið mál, hvað ytri búning snertir. Líking eða orðanotkun er mjóg sjaldan hæpin cða smekklaus, þó að ei- laust megi finna, t. d. virðist hæpið að segja „úr myrkri og sorta skín*) svana- flug“ (í Úlfdölum) eða tala unr briin- grátt* (Þjófadalir), þó að verst lítist manni á „ylskin*) elskaðs inunns" (Svefnrof). En allt eru þetta smámunir. Ahrifa frá innlendum skáldum virð- ist lítið sem ekki gæta í kvæðum Snorra og gerir það bókina nýstárlegri sem byrjandaverk. Á einum stað rakst ég þó á ljóðlínur, sem ósjálfrátt köll- uðu fram aðrar eftir annað skáld: — til hafs, í ölduföngin kvik og glji, fer már með hvítum, hægum vængjatogum, hugar míns fleyga vökudreymna þrá. Svo kveður Snorri í Hvítum vængjum. — ,.Á eirðarlausum flótta um auða hafsins vegi á undan nýjnm degi fer stakur már um miðja vetrarnótt," segir Tómas Guðmundsson í Haustnótt. Meðal beztu ljóðanna í Kvæðum, vil ég nefna: Haustið er komið, Sumarnótt og Þjóðlag, en það er eina kvæðið, sem segja mætti um „að dansi upp í fang" lcsandans. Einnig má nefna kvæðið í Úlfdölum, sem er eins konar einkunnar- kvæði allrar bókarinnar: orðfagurt og nýstárlegt, cn lætur þó ekki liafa hendur á sér, svo að lesandinn spyr eftir þriðja eða fjórða lestur: Hvað er á bak við þetla? Skortir skáldið tilfinningahita, eða skortir það reynslu? Tekst því ekki að tjá það, sem það ætlar sér, eða et það óvenjulega dulúðugt? Er þetta að- eins listiðnaður, vantar í kvæðin neist- ann, listareldinn? En hvað um það, les- endum leikttr vafalaust forvitni á að *) Leturbr. mfn. Br. S. sjá næstu bók höf., mun hún færa þeim heim sanninn um, að hann sé þróttugt og djúpúðugt skáld, sem gæðir kvæði sín lifsfyllingu auk fagurs bún- ings og kann að slá á marga strengi? Halldór Kiljan Laxness: Hið ljósa man. Helgafell. Rvík 1944. Svo kynlega virðist komið um rit- höfundinn Halldór Kiljan Laxness, að hann sé hjá suinum hafinn yfir alla gagnrýni, en hjá öðrum fyrir neðan. alla. Það er undantekning, að sjá „rit- dóm“ um sögu eftir Kiljan, sem ekki er annað hvort háalof eða skefjalaust last. Þctta kemur líka allmjög fram í dómum venjulegra, grcindra lesenda, sem liaía sitt álit á bókum, þótt ekki skrifi þeír ritdóma. Annað hvort finnst þeim flest- um Kiljan dásamlegur eða viðbjóðsleg- ur. Oft liefir mér verið skemmtan að því að lasta hann við þá, sem ekki sjá „sólina fyrir honum", en hæla lionum við hina, sem geta ekkert séð í bókum hans nema „lús og mórauð hundkvik- indi", svo furðulegur munur getur verið á mati manna á skáldskap hans. Ekki er mér grunlaust um, að Kiljan hafi um skeið vísvitandi stuðlað að því að cspa þetta misræmi, „af hagkvæmnisökum' eins og hann breytti heiti þessarar bókar frá titli hennar í handriti. En nú er svo komið skáldfrægð hans, að þess vegna mætti hann leggja allar „tiktúrur" niður, bækur hans mundu öðlast óskipta athygli samt, þótt p.er hneyksluðu ekki „heiðvirða" lesendttr. En kannske kærði enginn sig uin það, sumir gætu þá ekki lcngur notið þess að hneykslast, en aðrir misstu þess, „h/að liann Halldór getur verið neyðarlegm “ Annars er það fljótsagt, að Hið ljósa man cr athyglisverð bók. Persónulýsing- ar eru mjög skýrar og höf. tekst snilldar- lega að láta persónurnar tjá sig sjálfar í orðum og gcrðum. Ég tel vafasamt, að við eigttm margar kvenlýsingar snjallati í bókmenntum okkar en mynd þá, sem

x

Stígandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.