Stígandi - 01.03.1949, Blaðsíða 33
hefði hann afsalað sér allri sálnhjálparvon. „Það er búið.“ „Guð
hjálpi þér,“ hvíslaði stúlkan og livarf burt.
Næsta dag var myndin 'aftur eins og hún var áður og liefir verið
það síðan. En koma brezka herliðsins var upphafið og tilefnið til
atburða, sem nefndir hafa verið blóðbaðið í Boston. Sagan segir,
að á dauðastund Hutchinsons, langar leiðir frá jDeim stað, er þessi
saga gerðist, austan við Atlantshafið, hafi hann kveinað yfir því,
að hann væri að drukkna í blóði Bostonbúa, landa sinna, og
frændi hans, Lincoln virkisstjóri, sem stóð hjá banabeðinum,
sagði, að svipur lians hefði minnt sig á málverkið af Játvarði Rand-
ólf. Fann andi hins deyjandi manns til þess, að yfir honum hvíldi
bölvun þjóðar lians?
[Flutt á fundi Þjóðvarnarfélagsins í Reykjavík þ. 27. febrúar 1949].
Varðhaldsenglarnir.
Olafur mér í augum vex,
illa hjá þjóðar vegi* settur,
hefir á búi hunda sex,
hver þeirra er gestadjöfull réttur;
rífa þeir hesta, fólk og fé,
freyðir grimmdin úr opnum ginum.
Eigandinn er þó sagt að sé
sjöfalt skæðari öllum hinum.
Bólu-Hjálmar.
i
STÍGANDl 103