Læknablaðið - 15.05.2004, Page 17
FRÆÐIGREINAR / HAGKVÆMNI BÓLUSETNINGAR
við viðmiðunarrannsóknina en þar er hlutfallið metið
10%.
Kostnaðarþættir við meðferð meningókokka C
eru því að stærstum hluta sjúkrahúskostnaður og
kostnaður við langtímameðferð þeirra sem veikjast
alvarlega, eins og tafla I sýnir.
Verð á meðallegudag á spítala er fengið úr verð-
skrá Landspítala en meðalkostnaður á göngudeildar-
komu/eftirmeðferð, kostnaður við hugsanlegan far-
aldur ef ekki er bólusett og langtímakostnaður við
vægar afleiðingar og alvarlegar afleiðingar er tekinn
úr viðmiðunarrannsókninni. Kostnaðarþættir bólu-
setningar eru metnir miðað við íslenskar aðstæður;
innflytjandi efnisins gaf upp kostnaðarverð bóluefn-
isins, komið að dyrum viðtakanda og annar beinn
kostnaður var metinn í samráði við hjúkrunarfræð-
ing. Heildarkostnaður við að bólusetja einstakling
yngri en eins árs er áætlaður 4800 krónur en 2400
krónur fyrir eldri einstakling.
Þegar reiknaður er kostnaður af meðhöndlun sjúk-
dómstilfella vegna meningókokka C er stuðst við
upplýsingar sóttvarnalæknis um sjúkdómstíðni og
dánarhlutfall sjúkdómsins á íslandi (1). Gert er ráð
fyrir að virkni bólusetningarinnar sé 90% (9).
Niðurstööur
Samkvæmt töflu II mun kostnaður heilbrigðiskerfis-
ins vegna sýkinga af völdum meningókokka C lækka
um rúmlega 22,6 milljónir króna á ári eftir að bólu-
setningaráætluninni hefur verið hrint í framkvæmd.
Kostnaðarhagkvœmnisgreining á bólusetningu gegn
meningókokkum C - Islancl
Á móti þeirri kostnaðarlækkun sem að framan er tí-
unduð koma útgjöld vegna bólusetningarinnar. Eins
og áður hefur komið fram var áætlað að bólusetja
alla í landinu frá aldrinum 6 mánaða til og með 19 ára
sem eru um 82.000 manns. Ári síðar (október 2003)
höfðu um 72.000 einstaklingar (88%) verið bólusettir
og ólíklegt að náist að bólusetja fleiri úr þessum ald-
urshópi.
Bóluefnið var greitt af ríkissjóði sem og annar
kostnaður við kynningu og undirbúning átaksins.
Framkvæmd og kostnaður við bólusetninguna var á
ábyrgð heilsugæslunnar á hverjum stað og bóluefnið
gefið með annarri bólusetningu fyrir aldurshópinn 0-
2ja ára. Börn í leikskóla, á aldrinum 2-6 ára, komu
annaðhvort í hópum á heilsugæslustöðvar eða hjúkr-
unarfræðingar fóru í leikskólana og bólusettu. Síðasti
aldurshópurinn, á aldrinum 6-19 ára, voru bólusettir
af skólahjúkrunarfræðingum eða hjúkrunarfræðing-
um sem fóru í skóla þar sem skólahjúkrunarfræðing-
ur er ekki starfandi. Þeir sem ekki voru í skóla komu
til bólusetningar á heilsugæslustöðvum.
Mat á fjölda hindraðra tilfella, hindraðra dauðs-
falla og unninna lífára er gert með hliðsjón af nýgengi
Mynd 3. Fjöldi sjúkdómsvaldandi lijúpgerða meningókokka á íslandi.
Mynd 4. Aldursbundið nýgengi.
Læknablaðið 2004/90 381