Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2002, Page 82
SIGRIÐUR ÞORGEIRSDOTTIR
greining og barátta fyrir jafnrétti ktTijanna eru óhják\-æmilega sam-
ofnar.
Samk\ æmt \áðhorfinu sem hér hefur verið lýst eru femínistar eftir-
legukindur sem hafa ekki skynjað sinn vitjunartíma, en þessi afstaða
byggir á afar þröngri sýn á femínisma, eins og vikið verður að síðar.
Femínismi er hættulegur
Sú gagnrýni sem hér hefur verið lýst er góðlátleg í samanburði við aðra
og hörkulegri gagnrýni sem femínismi samtímans sætir. Samk\Tæmt
henni er femínismi ekki annað en tæld í hagsmunabaráttu. Hann gengur
út á að tryggja hagsmuni vissra hópa kvenna og skapa þeim forréttindi.
Hér er femínismi orðinn að vá! Til dæmis tun þetta viðhorf má nefna
gagnrýna þætti umræðu um átaksverkefni sem var hleypt af stokkunum
innan Háskóla Islands fýrir tveimur árum í því skyni að auka fjölda
kvenna í verk- og tæknigreinum þar sem þær eru í miklum minnihluta.5
I frétt Ríkissjónvarpsins haustið 2000 um þetta átak hélt fréttamaðurinn
því t.d. fram að vegna þess að konur væru komnar í meirihluta í háskól-
um almennt væri að bera í bakkafullan lækinn að re\ma að fjölga þeim í
þessum síðustu „karlagreinum11.6
Ekki var hirt um að velta því fyrir sér hvort umrætt átak gæti verið
nauðsynlegt þrátt fyrir að konum hafi fjölgað meðal háskólanema al-
mennt. Nauðsynin er nefnilega fólgin í því að verk- og tæknigreinar eru
afgerandi f\TÍr upplýsinga- og þekkingarsamfélagið og það veit ekki á
gott ef karlar verða næstum einráðir um þróun þess og konur koma þar
sem næst hvergi nærri. Ef þróun upplýsingatækninnar verður að mestu
í hönduni karla má búast \dð að hún endurspegli þeirra heim og stuðli
að misjafnri stöðu kynjanna. Hátt hlutfall stjórnenda sem koma úr þess-
5 Sjá upplýsingar um ,Jaffiara námsval k\Tijanna og aukinn þátt kvenna í ábyrgðar-
stöðum" sem er meðal verkefna jafnréttisneffidar Háskóla Islands, 2000-2002, http:
//u'ww.hi.is/stjom/jaffirettisn/Ataksverkefni/index.html.
6 Kvöldfféttir Rikissjónvarps, 22. október, 2000. Fréttamaður var Sigmundur Da\ið
Gunnlaugsson. I fréttinni voru tölur um nemendafjölda ffá nemendaskrá Háskólans
tengdar vafasömum staðhæfingum fféttamannsins um slæm örlög karla m.t.t. hlut-
falls þeirra meðal fanga og þeirra sem fremja sjálfsmorð, þannig að skilja mátti frétt-
ina sem svo að um einhvers konar orsakatengsl væri að ræða. Fréttamaðurinn bland-
aði saman tveimur óskyldum málum, k\Tijahlutföllum í námi við Háskóla Islands og
áðurnefndu átaksverkefni annars vegar og stöðu ákveðinna hópa drengja og karla
hins vegar.
8o