Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2002, Qupperneq 101
UM MEINTAN DAUÐA FEMÍNISMANS
Slíkur gildisfemínismi er ekki nýr af nálinni. Þetta er sá femínismi sem
kom upp í tengslum við hina svo kölluðu kvennasiðfræði, sem rannsókn-
ir Carol Gilligan um mismun í siðferðisafstöðu kynjanna hleypti af
stokkunum snemma á 9. áratug síðustu aldar. Kvennalistinn var undir
miklum áhrifum af þeim hræringum.45 Þessi tegund af gildisfemínisma
var, eins og áður sagði, gagnrýndur vegna þess að hann þótti einkum
endurspegla reynslu tiltekins hóps kvenna. Það væri því fengur í frekari
skrifum Astu um hvers konar gildisfemínismi, hvaða gildisáherslur hún
telur að gætu hleypt fjöri í femínisma samtímans. Astu er nefnilega um-
hugað um að femínísk gagnrýni feli í sér „róttækt endurmat á samfélags-
gildum.1146 Eg er henni innilega sammála um það og samþykki gagnrýni
hennar á að ffelsisfemínismi þurfi að taka skýrari afstöðu til gilda eigi
hann að geta svarað kalli um að vera samfélagsgagnrýninn. Þess vegna
væri full þörf á að árétta gildi samstöðunnar vegna þess hve miklu máli
það skiptir til að auka jafnvægi milli einkavettvangs og opinbers vett-
vangs. Samstaða er önnur meginstoð velferðarkerfis vestrænna samfé-
laga, en hin er félagslegt réttlæti. Báðar þessar stoðir eru forsendur þess
að konur geti nýtt sér frelsi sitt til jafns við karla. Frelsisfemínismi, eins
og ég vil túlka hann, byggir þess vegna á gildum samstöðu og félagslegs
réttlætis.
Augljóslega geta ekki allir femínistar sæst á slíka afstöðu, en eins og
Asta bendir sjálf á eru femínískar kenningar fjölmargar og ósjaldan í inn-
byrðis andstöðu. Það kemur glöggt fram í afstöðu bell hooks, sem full-
yrðir að femínismi verði að vera samfélagsgagnrýninn á róttækan hátt.
Þeir sem aðhyllist ekki slíka gagnrýni geta ekki átt samleið með femín-
isma að hennar mati.47
45 Sigríður Þorgeirsdóttir, „Er til kvennasiðffæði? Hugleiðingar um hugmyndir Carol
Gilligan um siðgæði kvenna og þýðingu þess fyrir hugmyndaffæði íslenskrar
kvennapólitíkur".
46 Asta Kristjana Sveinsdóttir, „Kvenna megin“, bls. 168. Gildisfemínismi gæti t.d. haff
á stefnuskrá sinni að berjast gegn ofbeldi og að skilja vald og ofbeldi.
47 hooks fullyrðir t.d. þetta: „Eg held að við verðum að berjast gegn þeirri hugmynd
að það þurfi að útvatna femínisma svo að hann virðist ekki vera byltingarkenndur -
svo að hann virðist ekki snúast um baráttu [...] Eg er þeirrar skoðunar að á því
augnabliki sem þú byrjar að andmæla karlveldinu ertu orðin framsækin. Ef það er
raunveruleg stefna okkar að breyta karlveldinu og aflétta kúgun þess þá aðhyllumst
við vinstrisinnaða, byltingarkennda hreyfingu.“ Viðtal við bell hooks, „Let’s get real
about feminism: the backlash, the myths, the movement.“ Ms. iv/2, september/-
október, 1993, bls. 37-38.
99