Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2002, Page 134
ELAINF. SHOW'ALTF.R
beinist femínísk endurskoðunarstefna að því að rétta skarðan hlut
kvenna og byggir á þeim kerfum sem f\TÍr eru. Enginn mymdi neita því
að femínísk gagnrýni er skyld öðrum gagnrýnum aðferðum og aðferða-
ffæði samtímans og að besm verk greinarinnar séu efdr vel lesna höf-
unda. Engu að síður gerir of mikil áhersla femínista á að leiðrétta,
breyta, bæta við, endurskoða, auka á mannlega þáttinn eða jafnvel ráð-
ast á gagnrýna kenningu karlmanna, okkur háðar henni og tefur fyrir
lausn vandamála í okkar eigin ffæðigrein. Þegar ég tala hér um
„gagnrýna kenningu karlmanna“, á ég við hugmyndir um sköpunargáfu,
bókmenntasögu, eða túlkun bókmennta sem byggjast aðeins á karllegri
reynslu en eru settar ffam eins og þær hafi almennt gildi. A meðan
grundvallaratriði kenninga okkar eru byggð á karlhverfum fyrirmyndum
- jafhvel þó að við setjum þær í femínískt samhengi - lærum við ekkert
nýtt. Og þegar umfjöllunin er svona einhliða og karlkyns gagnrýnendur
hreykja sér af fáffæði sinni um femínisma, er synd að enn skuli fyrirfmn-
ast femínískir gagnrýnendur sem þrá að öðlast viðurkenningu hinna
„hvítu feðra“ sem hlusta ekki á þær og virða þær ekki svars. Sumir fem-
ínískir gagnrýnendur hafa tekið að sér að stunda endurskoðandi aðferð
sem snýst upp í eins konar hyllingu; þær hafa gert Lacan að „kvenna-
manninum“ sem skrifaði Diacritics og þröngvað Pierre Macherey inn í
þau myrku húsasund sálarlífsins þar sem Engels þorði ekki að stíga fæti.
Christiane Makward heldur því ffam að þetta vandamál sé jafnvel alvar-
legra í Frakklandi en í Bandaríkjunum: „Astæða þess að nýfemínísk
kenning í Frakklandi virðist stöðnuð er sú, að hún nærist enn á orðræðu
meistaranna11.12
Tímabært er að femínískir gagnrýnendur ákveði hvort þeir ætli að
eigna sér einhvern ffæðilega traustan grunn mitt á milli átrúnaðar og
endurskoðunar. Þó að ég óski eftir femínískri gagnrýni sem sé sannar-
lega kvenhverf, sjálfstæð og standist fræðilegar kröfur, er ég ekki þar
með að lýsa yfir stuðningi við aðskilnaðardrauma róttækra femínista né
að mælast gegn nýtingu ýmissa ffæðilegra hjálpartækja. En við þurfum
að sp\Tja af miklu meiri nákvæmni hvað við okkur langar að vita og hvar
við finnum svör við spurningum sprottnum úr okkar reynsluheimi. Eg
12 Christiane Makward, „To Be or Not to Be ... A Feminist Speaker,“ í Tbe Future of Dif-
ference, ritstrj. Hester Eisenstein og Alicejardine (Boston: G.K. Hall, 1980), bls. 102. Um
Lacan, sjá Jane Gallop, „The Ladies’ Man,“ Diacritics 6 (vetur 1976), bls. 28-34; um
Macherey, sjá „Women’s Writing" eftir The Mandst-Leminist Literature Collective.