Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2002, Page 154

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2002, Page 154
ELAINE SHOWALTER mannfræðingar við Oxford-háskóla, Shirley og Edwin Ardener hafa sett fram sérlega áhugaverða greiningu á kvennamenningu. Markmið þeirra er að draga upp mynd af kvennamenningu sem ekki er sögulega tak- mörkuð og búa til hugtök um sérkenni hennar. I tveimur ritgerðum eft- ir Edwin Ardener, „Trú og spurningin um konur“ („Belief and the Problem of Women“, 1972) og „Aftur tekist á við „spurninguna““, („The „Problem“ Revisited“, 1975), heldur hann því fram að konur séu þaggaður hópur, útmörk menningar þeirra og veruleika skarist við hinn drottnandi hóp (karla) en liggi þó að hluta til utan hans. Til þess að sldlja hvernig drottnandi hópurinn lítur á konur og hvernig þær líta á sjálfar sig og aðra er nauðsynlegt að draga upp mynd af menningarlegum að- stæðum kvenna. Bæði mannfræðingar og sagnfræðingar leggja áherslu á að hin karlhverfa útgáfa af sögunni og menningunni sé ófullnægjandi og komi að litlu gagni þegar greina þurfi kvenlega reynslu. Aður var sú kvenlega reynsla sem féll ekki að karllegum hugmyndum meðhöndluð sem eins konar frávik eða ekki talin með. Rannsókn utan frá gat ekki komið í staðinn fyrir skilning sem kemur að innan. Hugmyndir Arden- ers um kvennamenningu hafa víðtæka þýðingu fyrir femínískar bók- menntakenningar samtímans, því að hugtökin skynjim, þögn og þöggun eru stór hluti umræðna um þátttöku k\ enna í bókmenningu.40 Með hugtakinu „þöggun“ gefur Ardener í skyn að viðfangsefnin séu bæði tungumál og vald. Bæði þaggaðir og ráðandi hópar mynda á órneð- vitaðan hátt skoðanir eða hugmyndir sem móta hinn félagslega veru- leika, en ráðandi hóparnir stjórna því í hvaða formi og innan hvaða kerfa má orða þessa vitund. Skoðunum þaggaðra hópa er þess vegna aðeins miðlað í gegnum leyfileg form ráðandi kerfa. Þetta mætti orða sem svo að allt tungumál sé tungumál hins ríkjandi skipulags og konur, tjái þær sig yfirhöfuð, verði að tjá sig með því. Hvernig verður þá, spyr Ardener, „táknlegur þungi þessa hóps tjáður?“ Hann telur, að konur finni tjáningu sinni farveg í trúarathöfnum og listum, og því geti þjóðfræðingur, karl- kyns eða kvenkyns, sem er tilbúinn til að skyggnast á bak váð tjöld hins ráðandi kerfis, ráðið í þessa tjáningu.41 40 Sjá, t.d., Tillie Olsen, Silences (New York: Delacorte Press, 1978); Sheila Rowbot- ham, Woman's Consciousness, Man's World (New York: Penguin Books, 1974), bls. 31-37; og Marcia Landy, „The Silent Woman: Towards a Feminist Critique“, í Di- amond og Edwards, Authority of Experience, bls. 16-27. 41 Edwin Ardener, „Belief and the Problem of Women“, í S. Ardener, Perceiving Wom- en, bls. 3. J52
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.