Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2002, Page 47
IMYNDIR OG YFIRBORÐ
láta þig dreyma um hluti sem þú munt aldrei eignast. Himinn-
irm er alltaf blár, stelpurnar eru aldrei ljótar, fullkomin ham-
ingja löguð til í Photoshop. Gallalausar myndir, áleitin tónlist.
Þegar þér tekst að kaupa draumabíhnn (þann sem ég myndaði
í síðustu herferð) eftir sársaukafullan spamað mun ég þá þegar
hafa séð til þess að hann líti út fyrir að vera gamaldags. Eg er
þremur trendum á undan og kem því þannig fyrir að þú sért
alltaf fullur gremju. Flottheit em land sem enginn kemst
nokkurn tíma tdl. Ég smita þig með nýjum hlutum en kostur-
inn við hið nýja er að það er aldrei nýtt lengi. Það era alltaf
nýir nýir hlutir sem láta þá sem á undan komu líta út fyrir að
vera gamlir. Ég vil fá þig til að slefa - það er köllun mín. Eng-
inn í minni atvinnugrein vill í raun að þú sért hamingjusamur
vegna þess að hamingjusamt fólk eyðir ekki peningum.26
Sögumaðurinn Octave Parengo er 33 ára hugmyndasmiður hjá stórri
auglýsingastofu eins og Beigbeder var. Hann er með himinhá laun, ekur
finustu sportbílum, ver stunarffíunum á dýrastu hótelum og býr í stór-
kostlegri íbúð á besta stað í París (í London í ensku þýðingunni). I fljótu
bragði virðist hann hafa allt sem hugurinn girnist en svo er aldeilis ekki.
Undir þessu glæsilega yfirborði er vondur veraleiki. Unnustan hefur
nýlega yfirgefið Octave, hann er kókaínfíkill og líður auk þess herfilega í
vinnunni vegna þess að hann hefur ímugust á gengdarlausri markaðs-
hyggjunni, neysluhyggjunni og yfirborðsmennskunni sem einkennir
starfsvettvang hans og samfélag. Kominn á ystu nöf grípur hann til þess
ráðs að vinna skemmdarverk á stórri auglýsingaherferð um mjólkurvör-
ur sem honum er falið að þróa í von um að geta komist heill frá þessari
veröld sem hann telur sjúklega.
Beigbeder sló í gegn með þessari skáldsögu í Frakklandi. Bókin met-
seldist og Beigbeder fékk gríðarlegt umtal. Auðvitað skemmdi það ekki
fyrir að hann var rekinn úr vinnunni en umfjöllunarefni sögunnar og efn-
istökin em með þeim hætti að þau hlutu að kalla á viðbrögð. Beigbeder
gengur eins langt og hann treystir sér til í lýsingum á öfgakenndri
hlutadýrkun, tilfinningalegri og líkamlegri firringu og svæsnu ofbeldi
sem endar raunar með hrottalegu morði. Að mörgu leyti minnir bókin
26 Bókin kom út á frummálinu árið 2000 (Editions Grasset & Fasquelle) en hér er
stuðst við enska, staðfærða þýðingu, £9.99, a novel (Picador, London 2002, s. 5).
45