Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2002, Page 54
ÁRMANN JAKOBSSON
það hlýtur alltaf að fléttast inn í fagurfræðina. Það er ekkert heimsku-
legra en að láta eins og 9. sinfónía Beethovens sé sambærileg við jafnvel
vánsælustu og bestu popptónlist. Tilraunir til að láta sinfóníuhljómsveit-
ir flytja Bítlalög eins og „Hey Jude“ draga skýrt fram muninn á þessu
tvennu. Fjögurra mínútna popplag er annað en flókið tónlistarverk. Þetta
skilja góðir popparar eins og Bubbi Morthens sem sagði í viðtali á
PoppTíví um daginn að Bach væri mesti tónlistarmaður allra tíma.5
Bubba dettur ekki í hug að líkja sjálfum sér við Bach þó að hann segi um
leið að þeir séu að fást við sama hlutinn.
Menningarfræðin hefur sett strik í reikninginn og á sinn þátt í að af-
þreyingarmenningin hefor með tíð og tíma orðið verðugt hlutskipti
ffæðimanna. Það er þó aðeins nýlega og enn snýst fræðileg umfjöllun um
list um annað. En heilmikið hefur gerst. Arið 2001 kom loksins að því að
Björk væri tekin til fræðilegrar umræðu, í 175. árgangi Skímis, hvort sem
það merkir að Björk hafi nú færst upp um flokk eða að afþreyingarmenn-
ingin almennt sé talin umræðu virði.6 7 En burtséð ffá því er það tímanna
tákn að tónlistarmyndbönd séu til umfjöllunar í Sktmi.
Þegar flett er nokkrum heftum af tímaritinu Biningi frá sjöunda ára-
tugnum fer ekki á milli mála að það blað snýst um framsæknar listir, há-
menningu og raunar ekki síst um að kynna ffamsækna erlenda sam-
tímalist fyrir Islendingum. Birtingsmenn voru afar samkvæmir sjálfum
sér í því. Ahugamál þeirra var framsækin list en ekki afþreying og í Birt-
ingi fer ekki milli mála að fáir snertifletir eru þar á milli.
A sjöunda áratugnum höfðu íslenskir menningarvitar sáralítinn áhuga
á afþreyingu, a.m.k. opinberlega. Upp úr 1970 fór margt að breytast.
Undir lok 8. áratugarins er „afþreyingarmenningin“ tekin til uinræðu í
stöku hefti Tímarits Máls og menningar, ekki síst fyrir áhrif að utan, eink-
um ffá Norðurlöndrmum. Þannig er dægurmenningu helgað eitt hefti
árið 1978 en annað teiknimyndasögum árið 1984. Þessi áhugi var eklo
5 Stjómendum þáttarins 70 mínútna kom þetta vitaskuld nokkuð í opna skjöldu enda
Bach ekki tíður gestur á þeim bæ.
6 Ulfhildur Dagsdóttir 2001: „Myndanir og myndbreytingar: Um myndbönd Bjark-
ar,“ Skímir 175, bls. 391-419.
7 I dægurmenningarheftinu (1. hefd ársins 1978) voru greinar eftir Erik Skvoim-Ni-
elsen, Ama Bergmann, Þráin Bertelsson og Jóhönnu Sveinsdóttur. Hugtökin dæg-
urmenning og afþreyingarmenning em notuð en Þráinn talar líka um „fi'nar" og
„ófi'nar" bókmenntdr. Þorleifur Hauksson ritstýrði Tímariti Mdls og menningar þetta
ár. I teiknimyndaheftdnu (4. hefti ársins 1984) vom tvær þýddar greinar um teikni-
52