Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2002, Blaðsíða 139
Á GRÆNUM GRUNDUM LÆTUR HANN xMIG HVÍLAST
urinn hafi sungið sig inn í fleiri hjörtu en nokkur annar texti Ritningar-
innar að faðir-vorinu einu undanskildu.1 Þessi algenga og óumdeilda
staðhæfing er forvitnileg þar sem finna má dæmi í kvikmyndum, a.m.k.
tvö sem ég veit um, þar sem sálminum er beinlínis ruglað saman við fað-
ir-vorið á þann veg að ekki verður annað sé en sá sem fer með textann
telji Sálm 23 og faðir-vorið vera einn og sama textann. Hér erum við þó
tæpast að tala um túlkun á sálminum að öðru leyti en því að augljóslega
er litið á hann sem bæn, nánast jafn áhrifaríka og bænina sem Jesús Krist-
ur kenndi lærisveinum sínum. Ekki er ástæða til að fjölyrða um þetta en
forvitnilegt er engu að síður að kvikmyndagerðarmenn ekki síður en
bibKulræðingar skuli hafa séð ákveðin tengsl milli Sálms 2 3 og þekktustu
bænar kristinna manna, þ.e. faðir-vorsins. Myndimar tvær sem ég er með
í huga em annars vegar ítalska hrylhngsmyndin City of the Living Dead
(1980) og hins vegar ástralska myndin Holy Smoke (1999). Sú staðreynd
að hér er annars vegar um að ræða ástralska mynd og hins vegar ítalska
minnir okkur á að notkun Sálms 23 í kvikmyndum er íjarri því að vera
bundin við hinn bandaríska kvikmyndaiðnað þrátt fyrir að sálminum hafi
verið líkt við veraldlegt helgitákn í bandarísku samfélagi.18
77/ vamar Gaði
í kvikmyndinni Apocalypse IV: Judgement (2001), sem gerist í fjarlægri
framtíð, má segja að Sálmur 23 þjóni beinlínis trúarvarnarlegum tilgangi.
Myndin segir ffá réttarhöldum sem haldin em yfir Guði kristinna
manna. I framtíðarmynd þessari býr leiðtogi jarðarbúa að nafhi Macal-
ousso (and-kristur) yfir guðlegu eðli og er dáður og dýrkaður sem slíkur
þó svo að harðstjóm hans sé mikil. Hann sér kristna konu eina, Helen
Hönnu, sem ógnvald og er hún dregin fyrir rétt, sökuð um glæpi gegn
mannkyni. Hin raunverulega sök hennar er að trúa ekki á Macalousso og
kraftaverk hans. I þess stað trúir hún á „fomar sögur um upprisu Krists“.
Hinir kristnu verða að fara huldu höfði neðanjarðar á stöðum sem skapa
hugrenningatengsl rið hinn dimma dal í Sálmi 23. Þáttaskil verða í
17 A. B. Rhodes 1960. The Book ofPsalms. The Layman’s Bible Commentary. John Knox
Press, Atlanta, bls. 51.
18 W.L. Holladay 1993. „How the Twenty-third Psalm Became an American Secular
Icon,“ í riti sama höfundar: The Psalms through Three Thousand Years. Prayerbook of a
Cloud ofWitnesses. Fortress Press, .Minneapolis, bls. 359-371.
137