Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2002, Page 160

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2002, Page 160
HENRY GIROUX, DA\TO SHUMWAY, PAUL SMITH OG JAMES SOSNOSKI Það væri rangt að líta svo á að þverfaglegar greinar hafi orðið að láta af gagnrýnishlutverki sínu vegna pólitískrar kúgunar. Þar sem pólitískar skoðanir fræðimanns eru ekki taldar koma vinnu hans í sínu fagi við, er allt tal og vangaveltur um pólitískar eða félagslegar spurningar álitið óviðkomandi faglegum rannsóknum á menningu. Það kemur skýrast fram í þeim kennsluaðferðum sem notaðar eru í hefðbundnum greinmn hve erfitt er að taka tillit til sögulegs samhengis og félagslegra þátta. Gallar á hefóbundnum röksemdum fyrir rannsóknum á menningu Almennt séð eru grunnforsendur hefðbundinnar húmanískrar menntun- ar þær að hún veiti nemendum aðgang að hafsjó menningarlegra verð- mæta sem saman myndi safn viðurkenndra texta. Slíkt safn er auðvitað ffernur lauslega skilgreint að því leyti að það getur innihaldið og viður- kennt undantekningar og tyrfin viðfangsefni; sem hugtakasafn getur það ekki sleppt neinu sem hefur eitthvert gildi. Gildismatið sein undir liggur sveiflast í takt við hugmyndafræðilegar þarfir - sjáið bara hversu öruggir í sessi viðurkenndir textar kvennafræði og jafnvel bókmenntaffæði eru orðnir á leslistum sumra háskóla. En á sama tíma hefur alltaf verið til „fastur staðall“ (e. „gold standard“) sem hefur haldið þessum tíma- bundnu gildishækkunum og sveiflum í skefjum. Nú fyrir skemmstu gerði formaður National Endowment for the Humanities, William Bennett, sérstaka könnun til að leiða í ljós hvaða bækur „hægt væri með réttu að ætlast til“ að hver ffamhaldsskólanemi hafi lesið áður en hann útskrifast. Bókalistinn, þrjátíu bækur alls, hafði að geyma allt frá Ríkinu eftir Plató, verk eftir Virgil, Chaucer, Dickens og Tolstoy til Bjargvœttarins í Gras- inu.u Bækur þessar og höfundar þeirra eru fastur mælikvarði á ákveðin menningarleg gildi sem hin húmanísku ffæði og afurðir þeirra eru met- in eftir. Með því að þekkja vel fastan kjarna úr þessu safni hefðarinnar er sagt að nemendur geti tileinkað sér gildi hennar og jafnvel yfirfært þá á hluta hennar sem liggja nær jaðrinum og eru skammvinnari. Síðast en ekki síst, myndu nemendur hafa aðgang að auðæfum sem hafa „mann- bætandi“ áhrif; áhrif sem þó eru hluti þess gildismats sem skapaði þessi auðæfi mannkyni til handa. Sú mikilvæga spurning hvernig vinna megi að þessu verkefni mann- legra fræða á hugmyndafræðilegum forsendum og hvernig það tengist í 13 Sjá New York Times, 13. ágúst, 1984, bls. 7. Maður furðar sig á ástæðum þess að Kommúmstaávarpið er haft með á þessum lista viðurkenndra rita. Er það merki um ofsóknaræði eða ofurvarkárni frjálslyndra, nema hvort tveggja sé? 158
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.