Þjóðlíf - 01.03.1988, Blaðsíða 10
INNLENT
máliö og tengdir stjórnarmönnunum. „Þeir
eru „hinir ósnertanlegu,“ og pólitíkusar
forðast að fetta fingur út í það sem þarna
hefur verið að gerjast árum saman,“ segir
Kópavogsbúi sem fylgist náið með bæjar-
málefnunum.
Björn Þorsteinsson, bæjarritari Kópa-
vogs, segir að embættismenn bæjarins hafi
ekkert komið nálægt þessum málum. „Ég
reikna með að nú verði gengið í eitt allsherj-
ar uppgjör á þessum málum og það er svo
bæjarstjórnar að ákveða hvaða tilhögun
verður á rekstri félagsheimilisins nú eftir að
framkvæmdum er lokið,“ segir hann.
„Ekki bruðl“
Við gerð fjárhagsáætlunar 1987 gerði eftir-
litsmaður framkvæmdanna tillögu um 30
milljón króna framlag svo þeim mætti ljúka í
eitt skipti fyrir öll í október á sama ári. Bæj-
arstjórn veitti 20 milljónum í verkið.
í september vakna menn til vitundar um
að verulegar fjárhæðir vantar umfram fjár-
hagsáætlun til að ljúka verkinu. Eru þá veitt-
ar tvær milljónir í aukafjárveitingu og stefnir
bæjarráð ákveðið að því að opna húsið 13.
febrúar 1988. A nýsamþykktri fjárhagsáætl-
un veitir bærinn enn 15 milljónum til að ljúka
framkvæmdunum en þó virðist það hvergi
nægja til að borga alla reikninga og fyrir
endanleg tækjakaup til félagsheimilisins.
Rétt er að geta þess að enginn ber brigður á
að eðlilega hafi verið staðið að útboðum
allra verkþátta endurbyggingarinnar. „Þetta
er ekki bruðl með peninga bæjarins," segir
bæjarstjóri.
„Þetta er raunverulega gamalt uppgjör
sem á sér stað og bærinn er að borga fyrir
liðna tíð — fyrir starfsemi FK í gegnum árin
og afnot Kópavogskaupstaðar af 3. hæð og
fyrir byggingarréttinn af 4. hæðinni," segir
einn viðmælandi. í veruleikanum voru þó
kaup bæjarins á byggingarrétti 4. hæðar gerð
í samningum árið 1971 og með því voru gaml-
ar skuldir vegna stofnkostnaðar þurrkaðar
út, öll árin greiddi bærinn háa leigu fyrir
starfsemi sína á 2. og 3. hæð og veitti FK auk
þess styrk til starfsemi sinnar. Heildarkostn-
aður bæjarsjóðs vegna þessarar fjögurra
hæða byggingar við Fannborg 2 er því langt-
um meiri en framlög vegna endurbyggingar-
innar segja til um. Þarna blandast saman
annars vegar stjórnsýsluhúsnæði bæjarins og
einhverskonar lítt skilgreind menningarmið-
stöð sem var að sögn aldrei mikið notuð til
meningar og félagsstarfs.
Má líka minna á að Kópavogsbær er 50%
eignaraðili að félagsheimilinu. Því er spurt:
Af hverju tók bærinn þá ekki þetta húsnæði
að sér að fullu? Svarið vefst fyrir mörgum.
Upphaflega mun húsið hafa verið gert að
félagsheimili til að njóta styrks úr félags-
heimilasjóði en hann hefur veitt nokkrunt
hundruðum þúsunda til verksins á hverju ári.
Aðalástæðan virðist hins vegar felast í því að
engin ákveðin stefnumörkun var gerð um
það hvaða skipting væri eðlileg á milli bæjar-
ins og aðildarfélaganna og hvaða hlutverki
húsið ætti að gegna.
Það verður höfuðverkur bæjarfulltrúa að
taka afstöðu til málsins þegar endanlegt upp-
gjör liggur fyrir — „og það verður ekki há-
vaðalaust," segir einn heimildarmaður okk-
ar. Stjórn FK hyggst ráða framkvæmdar-
stjóra yfir félagsheimilið með haustinu og
starfa í samræmi við rekstrarsamninginn frá
1982 sem segir einfaldlega að FK verði sjálfs-
eignarstofnun, án beinna afskipta bæjarins
sem þó tryggir starfsemina eftir sent áður,
verði tap á rekstrinum.
Menn höfðu á orði við blaðamann að
endalaust mætti deila um hvort hér væri á
ferðinni svo miklu dýrari bygging en aðrar
nýbyggingar og endurnýjun á húsnæði hins
opinbera víðast hvar í þjóðfélaginu og benda
m.a. á ráðhús í Reykjavík, endurbyggingu
listasafns o.fl. Það má þó vísa til annarrar
byggingar sveitarfélags sem opnuð var með
viðhöfn um svipað leyti og FK var opnað
almenningi. Það er glæsilegt stjórnsýsluhús í
Búðardal, 1017 fermetrar að stærð, sem kost-
aði fullbúið 45 milljónir og er jafnframt fjöl-
nota húsnæði fyrir íbúa staðarins.
Ómar Friðriksson.
DANSKAR
VORDRAGTIR
Litir:
Dökkblátt, drapplitt,
hvítt og grænt.
Stærðir: 38-48.
Verð: kr. 4.550,-og 6.900,-
Póstsendum.
^BSS^SjHSíSSSBl
V/LAUGALÆK, S. 33755, PÓSTHÓLF 958, 121 RVÍK.
10