Þjóðlíf - 01.03.1988, Blaðsíða 59
Bretland
ERLENT
Islendingar
þurfa á
rannsóknar-
þingmanni
að halda . . .
„Mér skilst að núna sé mikil þörf fyrir rannsóknarþingmann, sem stingur á meinsemd-
um samfélagsins á íslandi". Campell-Savours fylgist lítillega með íslenskum stjórn-
málum, en hann er giftur íslenskri konu.
Viðtal við Dale Campell —Savours þingmann breska
Verkamannaflokksins, sem kvæntur er íslenskri konu.
Orðhvatur, vinsæll rannsóknarþingmaður
Dale Campbell—Savours hefur verið þing-
maður breska Verkamannaflokksins frá því
1979. Hann er þingmaður fyrir VVorkington í
Cumbríu í Norður-Englandi. Hann er
kvæntur Reykvíkingnum Guðrúnu Kristínu
Runólfsdóttur og þau búa ásamt þremur
börnum sínum í Lake District héraðinu sem
er í kjördæmi hans. Hann hefur fylgst örlítið
með íslenskum stjórnmálum úr fjarlægð, en
þó ekki eins gaumgæfilega og hann hefði vilj-
að. Þegar hann var spurður uni gildi sam-
skipti þingmanna tveggja eða fleiri þjóðþinga
svaraði hann því til að það væri allt saman
gott og blessað en hins vegar væri hann sjálf-
ur ekkert fyrir pólitískt bróderí.
Það fer ekkert á milli mála að andstæðar
fylkingar innan breska Verkamannaflokks-
ins takast nú á. Endurskoðun á stefnuskrá
flokksins hófst sl. sumar eftir þriðja kosn-
ingaósigur flokksins í röð. Ýmist er talað um
að flokkurinn þurfi að hverfa aftur til hins
sósíalíska uppruna síns eða að hann þurfi að
aðlaga sósíalísk grundvallaratriði að nútíma-
samfélagi. Margt bendir til þess að flokksfor-
ystan hugi frekar á hið síðarnefnda. Tony
Benn, einn helsti talsmaður vinstri arms
flokksins, hefur hafið harða gagnrýni á
flokksforystuna. Inntak gagnrýni hans er, að
Neil Kinnock, flokksleiðtogi og hans menn
selji sósíalismann fyrir atkvæði. Með öðrum
orðum að vinsældirnar séu of dýru verði
keyptar.
Sumir álíta að þessi gagnrýni Benns marki
upphafið að framboði hans til leiðtoga
flokksins gegn Kinnock. Leiðtogakjör fer
fram á flokksþingi í haust, berist einhver
mótframboð gegn Kinnock. Eins eru getgát-
ur uppi um að John Prescott, þingmaður
flokksins frá Hull, hafi hug á að bjóða sig
fram til varaformanns gegn Roy Hattersley.
Kinnock fínnur
ekki mörkin
Þegar tíðindamaður Þjóðlífs ræddi við
Campbell-Savours á dögunum í þinghúsinu í
Westminsterhöllinni, báru þessi átök mjög á
góma. „Þetta eru naflaskoðarar", — sagði
hann þegar Benn og aðrir sem gagnrýnt hafa
flokksforystuna opinberlega, bárust í tal.
„Þeir leggja meiri áherslu á sjálfa sig og eigin
hugðarefni en hinn raunverulega andstæð-
ing, — íhaldið." Það var augljóst að þessir
flokksbræður áttu ekki upp á pallborðið hjá
Campbell-Savours. „Þeir hafa ekki lært
lexíuna sem Thatcher ætti nú að hafa kennt
þeim, en það er að einblína á kosningasigur.
Neikvæð gagnrýni, nöldur og innanflokks-
ágreiningur eykur sundrungu flokksmanna
og minnkar sigurlíkur flokksins."
Aðspurður hvort þetta væri agaleysi svar-
aði hann því til að erfitt væri að krefjast aga í
flokki sem byggði á frjálslyndri hefð. „Hug-
tökin agi og frjálslyndi eru ekki beinlínis
samheiti. Þau fallast ekki í faðma, — en hins
vegar er skortur á sjálfsaga. Það sem veldur
Neil Kinnock vandræðum er að hann finnur
ekki mörkin. Hann veit ekki hversu mikils
aga hann getur krafist án þess að misbjóða
hinni frjálslyndu hefð.“
Pólitískur umskiptingur
Campbell—Savours er pólitískur um-
skiptingur. Hann hóf afskipti af stjórnmálum
sem íhaldsmaður en tók síðar sinnaskiptum.
59