Þjóðlíf - 01.03.1988, Blaðsíða 18

Þjóðlíf - 01.03.1988, Blaðsíða 18
Þjóðlífsmótið í tölvuskák: INNLENT Fyrsta tölvumótið á íslandi Kasparov-fjölskyldan sigursæl á Þjóðlífsmótinu, en Novag stal senunni. Gífurleg spenna á fyrsta tölvumótinu á ís- landi. Spennan var rafmögnuð þegar Kasparov Express 16 og Novag Forte B hófu síðustu skákina á fyrsta skáktölvumótinu sem haldið hefur verið hér á landi. Novag Forte B þurfti að vinna Kasparov til þess að tryggja sér sigurinn — og titilinn „Þjóðlífsmeistari í tölvuskák“. Kasparovtölvan hafði mjög sótt í sig veðrið seinni hluta mótsins og var til alls líkleg. Framan af skákinni virtist hún líka standa betur og jafnvel til vinnings. Novag- tölvan lék mönnum sínum af fullkomnu áhugaleysi miðað við þann heiður sem í húfi var. En eftir að Kasparov Express lék hroða- lega af sér í 41. leik tók Novagtölvan við sér og innbyrti vinninginn án mikillar andspyrnu. Þegar Kasparov blikkaði til merkis um mát var Novag Forte B orðinn skákmeistari tölva. Þegar Mikail Botvinnik, þrefaldur heims- meistari í skák, hætti að tefla opinberlega í kringum 1970 snéri hann sér m.a. að því að vinna að þróun skáktölvu. Mikail er enn að og tölvan hans verður æ fullkomnari og hefur tekið þátt í heimsmeistarakeppninni í tölvu- skák með ágætum árangri. Sumir hafa litið svo á að í raun væri við hæfi að heimsmeistari snéri sér að því að hanna rafeindaskáksnill- ing: því fyrr eða síðar kæmi skáktölva fram á sjónarsviðið sem enginn mannlegur máttur gæti sigrað. Ennþá er engin tölva til sem sigrað getur hinn raunverulega Kasparov — og ekki held- ur Karpov eða Jóhann Hjartarson. Sterkustu skáktölvurnar ná á góðum degi að sigra al- þjóðlega meistara, en ekki meira. Þær tölvur eru hinsvegar ekki á almennum markaði, enda bæði miklar um sig og dýrar. Aftur á móti er hægt að kaupa tölvur hér á landi sem kosta frá tvöþúsund krónum og upp úr. Og þessar tölvur er alveg takk bærilega sterkar — Þjóðlífsmeistarinn ert.a.m. ekki auðunn- inn á fyrsta styrkleikastigi af fjórtán. Það fékk undirritaður áhugamaður um skák að reyna á sjálfum sér . . . Keppendurnir Tólf tölvur mættu til leiks á Þjóðlífsmótið, frá þremur framleiðendum: Novag, Kaspar- ov og Fidelity. Verð þessara tölva er á bilinu Davíð og Golíat: Tölvurnar á Þjóölífsmót- inu voru mismiklar um sig, dæmi um það er Fidelity Elegance og Nogvag VIP. Sú fyrrnefnda stendur vel undir nafni, viðar- klædd og virðuleg. Novag litli er hinsveg- ar ekki stærri en vasareiknivél. fjögur til tuttugu og fjögur þúsund og því mismikið í þær lagt, bæði að útliti og innræti. Novagtölvurnar sem þátt tóku í mótinu voru Forte B, Primo, Accord og VIP. Mikils var vænst af Kasparovtölvunum Turbo King, Contpanion 3, Express og Turbo 24k, enda hefur samnefndur heimsmeistari fyrir sitt leyti lagt blessun sína yfir þær. Fidelitytölv- urnar státuðu hinsvegar glæsilegustu nöfn- unum: Elegance, Excellence, Par Excel- lence og Classic. Tölvurnar tefldu allar innbyrðis svo sem sjá á meðfylgjandi mótstöflu. Þeim voru skammtaðar fimm sekúndur á hvern leik, og finnist einhverjum það helstil lítið skal á það bent að sæmileg tölva hugsar jafnmikið á fimm sekúndum og fótboltalið á heilu keppnistímabili. Glæsileg byrjun Forte B Það er skemmst frá því að segja að Þjóð- lífsmótið í tölvuskák varð allt eins spennandi og skákmót atvinnumanna: margar glæsileg- ar skákir sáu dagsins ljós. Tölvur eru umfram allt praktískar í skák, þær eru lítið gefnar fyrir fórnir sem ekki gefa strax í aðra hönd, annaðhvort mannsvinninga eða mát. Þær eru oft lengi að dunda við að byggja upp trausta stöðu en eru hinsvegar mislagnar við að moða úr henni. Sumar eiga það til að byrja að þráleika strax í miðtaflinu vegna skorts á ímyndunarafli. Þær eru síðan eld- snöggar að koma auga á afleiki hjá andstæð- ingi sínum og þannig verður viðureign tveggja skáktölva oft aðeins bið eftir því að önnur leiki ónákvæmt. Sumar tölvur hafa býsna þroskað stöðumat og beinlínis ryðja mótherjanum út af borðinu. í fyrstu umferð Þjóðlífsmótsins gaf Forte B fyrirheit um það sem koma skyldi þegar hún pakkaði Kasparov Turbo snyrtilega saman. Kasparov Turbo King sýndi hinsveg- ar hvað býr í þeim frændum með glæsilegum sigri á aðaltrompi Fidelity, Par Excellence. Sú tölva hreppti mikinn mótbyr í byrjun: í annarri umferð varð hún fórnarlamb Forte B og í næstu tveimur umferðum komu jafntefli. Þá tók hún sig aldeilis saman í andlitinu og vann síðustu sjö skákirnar! Það var enda- sprettur í anda Jan Timmans og Par Excel- lence stóð svo sannarlega undir nafni. Forte B var óstöðvandi í byrjun og vann fyrstu fimm skákirnar. í sjöttu umferð mætti hún Fidelity Elegance sem hefndi ófara Par Excellence með sannfærandi sigri. Eftir sex umferðir áttu fimm tölvur möguleika á að sigra: Forte B var með 5 vinninga; Kasparov Express 16, Kasparov Turbo 24 og Fidelity Elegance voru allar með fjóra og hálfan vinning og Kasparov Turbo King var með fjóra. Kasparovfjölskyldan lenti hinsvegar í erf- iðleikum síðari hluta mótsins: Turbo 24 tap- aði fimm síðustu skákunum og Express 16 þremur síðustu. Það var Kasparov Turbo King sem stóð sig best með góðum enda- sprett. Þrjár af tölvunum áttu mjög erfitt upp- dráttar, ein frá hverjum framleiðenda. Fid- elity Classic stóðst ekki snúning nútímalegri tölva og hlaut einungis einn vinning; Novag Accord fékk hálfum betur og Kasparov Companion fékk tvo vinninga. 18
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Þjóðlíf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.