Þjóðlíf - 01.03.1988, Blaðsíða 22
INNLENT
,.^a *
ábÉk
Fimm bílasímanotendur; Jón Kristjánsson, Egill Jónsson, Pálmi Jónsson, Stefán Guðmundsson og Páll Pétursson. Þeir hafa allir
þegið síma í bíla sína. Hver sími kostar um hundrað þúsund krónur.
Alþingismenn
Fjölgar nú símunum
Nú hafa tíu alþingismenn þegið síma í bíla
sína. Koma úr öllum flokkum nema Kvenna-
lista. Fimmtán símar hafa verið keyptir.
Kostnaðurinn nálgast tvær milljónir. Kostn-
aðurinn er bókfæröur sem skrifstofukostn-
aður alþingis.
Þjóðlíf sagði frá því í síðasta tölublaði að
skrifstofa alþingis hefði fjárfest í tíu bílasím-
um að andvirði einnar milljónar króna. Þá
höfðu fimm þingmenn þegið síma í bifreiðar
sínar: Karl Steinar Guðnason, Alþýðu-
flokki; Jóhann Einvarðsson, Framsóknar-
flokki; Eggert Haukdal, Sjálfstæðisflokki:
Margrét Frímannsdóttir, Alþýðubandalagi
og Óli Þ. Guðbjartsson, Borgaraflokki.
Þessar upplýsingar Þjóðlífs komu mjög á
óvart í ljósi þess að síðasta haust var horfið
frá því að kaupa bílasíma handa öllum þing-
mönnunum, enda vöktu þær hugmyndir upp
mótmæli, utan þings og innan. Þjóðlíf upp-
lýsti að símarnir væru í orði kveðnu keyptir
af skrifstofu alþingis, sem síðan „lánaði" þá
einstökum þingmönnum.
Og skrifstofa alþingis hefur ekki látið sér
nægja símana tíu, enda mun eftirsókn þing-
manna vera talsverð. Samkvæmt heimildum
Þjóðlífs hafa fimm þingmenn til viðbótar
þegið síma í bíla sína: Jón Kristjánsson, Páll
Pétursson og Stefán Guðmundsson, allir úr
Framsóknarflokknum, og Sjálfstæðismenn-
irnir Pálmi Jónsson og Egill Jónsson.
Friðrik Ólafsson, skrifstofustjóri alþingis,
tók í upphafi ákvörðun um kaup á bílasímun-
um í samráöi við Þorvald Garðar Kristjáns-
son, forseta sameinaðs þings. Friðrik aftók í
samtali við Þjóðlíf að sérstaka fjárveitingu
þyrfti til að kaupa símana. Að hans sögn
verður þessum útgjöldum bætt við skrif-
stofukostnað þingsins. Friðrik kvað ólíklegt
að margir símar yrðu keyptir til viðbótar, en
sagði ennfremur að engar sérstakar reglur
hefðu verið settar um það hverjir fengju síma
og hverjir ekki.
Bílasímamálið hefur farið mjög hljótt.
Enginn þingmaður hefur gert athugasemdir
vegna þessa, en mögulegt er að Kvennalist-
inn hugsi sér til hreyfings. Margir viðmæl-
enda okkar utan þingsins töldu enda ákaf-
lega ómóralskt að eyða milljónum í „heimil-
istæki" til einkanota fyrir þingmenn á sama
tíma og stjórnvöld boða þegnunum sínum
samdrátt á flestum sviðum. Það verður líka
að teljast mjög líklegt að fleiri þingmenn vilji
síma í bíla sína en þeir tíu sem þegar hafa
fengið þá. Þannig er útlit fyrir að milljónum
til viðbótar verði varið í bílasíma þing-
manna.
hj.
SENDIBÍLASTÖÐIN HF.
BORGARTÚNI 21 SlMI 25050 REYKJAVÍK
T raustir menn
22