Þjóðlíf - 01.03.1988, Blaðsíða 66

Þjóðlíf - 01.03.1988, Blaðsíða 66
ERLENT Hin árlega minningarganga um Rósu Luxemburg og Karl Liebknecht í Austur-Berlín 17.janúar sl. Víðtækustu mótmæla- aðgerðir í Austur-Þýskalandi Strax daginn eftir hófust almennustu og víðtækustu mótmælaaðgerðir sem um getur í sögu Alþýðulýðveldisins. Kirkjan var sá staður þar sem fólk safnaðist saman. Þar voru haldnar bænasamkomur fyrir fangana, gefnar upplýsingar um gang mála í fangels- unum og um aðgerðir fólks víðsvegar um landið því mótmælaaðgerðirnar voru í þetta sinn ekki einvörðungu bundnar við Austur- Berlín. Um allt landið áttu sér stað friðsamlegar aðgerðir stjórnvöldum til áminningar, meira að segja í svokölluðum „dal grunlausra“ en svo er Dresdenarborg og nærsveitir kallaðar því þar njóta íbúar ekki upplýsingastreymis vestrænna fjölmiðla. Það kom fljótlega í ljós að meirihluta hinna handteknu var meira umhugað að komast sem skjótast vestur yfir landamærin en að berjast fyrir umbótum inn- an lýðveldisins. Akafi sumra þeirra gekk meira að segja svo langt að bera ýmsar sakir upp á umbótasinna, til að mynda ólöglega upplýsingamiðlun. Kirkjan hafði strax í upphafi ráðið safnað- armeðlimum sínum frá þátttöku í Lúxem- burg/Liebknecht göngunni og þó svo að hún tæki skýrt fram að umbótasinnar stæðu henni nær en brottfararfíknir væri það skylda kirkjunnar að láta mál allra sem handteknir voru til sín taka. Á meðan réttarhöldin stóðu yfir áttu sér stað stöðugir fundir forráða- manna kirkjunnar og stjórnvalda. Forráða- mönnum kirkjunnar var mikið í mun að þessi mál leystust giftusamlega og án þess að það rými sem kirkjunni hafði tekist að skapa til frjálsra skoðanaskipta væri skert og von- brigði og lýðveldisleiði gripi frekar um sig. Þeir sem vildu fara skyldu fá það, hinum sleppt og ákærur dregnar til baka var krafa kirkjunnar. En það var stjórnvöldum of stór biti að kyngja, sumir umbótasinnanna höfðu þegar verið ákærðir fyrir landráð og einn þeirra, umhverfisverndarsinninn Vera Woll- enberger hafði meira að segja hlotið dóm. Það myndi grafa undan allri trú á réttvísina ef þetta fólk fengi skyndilega að fara heim og mæta svo næsta dag í vinnuna eins og ekkert væri. Miklu betra væri að losna við alla. Sú varð og raunin. Vilja austur aftur Áður en hálfur mánuður var liðinn frá handtökunum höfðu 55 mótmælendur ásamt 41 nánum ættingja, mökum og börnum, fengið afhenta farseðla til vesturfarar. Nokkrum dögum síðar undirrituðu vísna- söngvarinn Stefan Krawczyk og kona hans leikstjórinn Freya Klier umsókn um að flytja til Vestur-Þýskalands. Og þegar þrjár vikur voru liðnar frá handtökunum voru allir um- bótasinnarnir komnir vestur, þeir staðföst- ustu með vegabréf upp á vasann ásamt lof- orði stjórnvalda um að mega snúa aftur eftir um það bil hálft ár. Það er erfitt að spá einhverju um það hvort stjórnvöld muni standa við Ioforð sín og taka aftur á móti þessum svörtu sauðum hjarðar sinnar, þó er það líklegt. Strangt tekið hafa stjórnvöld Alþýðulýð- veldisins aðeins einu sinni gerst brotleg við mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna hvað sviptingu ríkisborgararéttar varðar. Það var árið 1976 þegar Wolf Biermann var meinað að snúa aftur til heimalands síns að aflokinni tónleikaferð í Vestur-Þýskalandi. í öllum öðrum tilvikum þar sem óþægilegir þegnar hafa misst ríkisborgararétt sinn hefur það á pappírunum verið samkvæmt þeirra eigin vilja. Sú staðreynd að þetta fólk sat í fangelsi þegar það reit umsóknina og átti yfir höfði sér málshöfðun og dóm segir hinn helminginn af sögunni. Það kom snemma í ljós að stjórnvöld ætl- uðu sér einnig núna að beita þessari venju- legu aðferð. Fyrstu 4 umbótasinnarnir sem kornu vestur höfðu í fangelsinu skrifað undir umsókn um að fá að yfirgefa landið. Þegar hingað kom létu þeir hins vegar ekkert tæki- færi ónotað til að lýsa því yfir að undirskrift- irnar staðfestu síður en svo fúsan og frjálsan vilja þeirra. Stefan Krawczyk kvað fáránlegt að tala um frelsi innan fangelsismúra. Og um tíma reyndust fjölmiðlar hér óþreytandi að fjalla um þessar ómannúðlegu aðferðir stjórnar Alþýðulýðveldisins. Ef hin unga ímynd austur-þýska Alþýðulýðveldisins á al- þjóðavettvangi átti ekki að bíða alvarlega hnekki var nauðsynlegt að breyta svolítið um stefnu. Þeim sem fram til þessa höfðu neitað að skrifa undir umsókn var boðið upp á tvo valkosti, sitja af sér dóma sína eða hverfa úr landi um tíma. Engar opinberar upplýsingar hafa fengist um það hvernig þessum málum var í raun komið í kring. Hvorki kirkjan né vegabréfs- hafarnir sjálfir hafa viljað eða getað gefið fjölmiðlum upplýsingar um raunverulegt markmið þessarar ráðstöfunar. Kirkjan seg- ist munu halda áfram að reyna að sannfæra stjórnvöld um nauðsyn þess að hún taki nýja strauma í samfélaginu alvarlega og hefji um- ræður við umbótasinna svo þeir megi á ný verða þátttakendur í samfélaginu. Stjórn- völd verði og að opna augun fyrir vandamál- um þeirra sem vilja flytjast á brott, sýna vilja til að búa þessu fólki samastað innan lýð- veldisins eða leyfa því að fara. Því sé nauð- synlegt að setja skýrari reglur um brottflutn- ing einkum hvað varðar biðtíma. Þess eru dæmi að fólk hafi beðið í fleiri ár eftir úr- lausn. Stöðug blóðtaka Þessi nýjasta tegund aðgerða austur- þýskra yfirvalda hefur þó þrátt fyrir allt vak- ið vonir. Því það sem æ ofan í æ hefur dregið allan mátt úr umbótahreyfingum í Austur- Þýskalandi er að þeir sem höfðu sig mest í frammi, unnu mest og bjuggu yfir víðtækustu reynslunni hafa með reglulegu millibili yfir- 66
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Þjóðlíf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.