Þjóðlíf - 01.10.1988, Blaðsíða 10

Þjóðlíf - 01.10.1988, Blaðsíða 10
INNLENT landamæra einstakra ríkja og einnig á milli landa. Eg held að Islendingar eigi ekki ann- arra kosta völ en fylgja þessari þróun ætli þeir sér að standast samkeppni við aðrar þjóðir í framtíðinni. Mig langar til að vekja athygli á því að aukin áhersla á markaðsbú- skap og frjálsræði í viðskiptum er ekki í and- stöðu við hugsjónir jafnaðarstefnunnar ef rétt er að málum staðið. Lýðræði og vald- dreifing eru meðal helstu markmiða jafnað- armanna. Aukin áhrif starfsfólks á stjórn fyrirtækja ásamt viðskiptafrelsi eru að mínu viti vænlegasta leiðin til að stuðla að fram- gangi þessara markmiða. Þú talar um nauðsyn þess að vextir verði áfram háir til að draga úr þjóðarútgjöldum, það er til að taka á tímabundnu vandamáli. En hvers eiga húsbyggjendur að gjalda sem ent að ráðast ífjárfestingu til margra áratuga? Og enn frekar er nokkurt réttlœti í þeim háu vöxtum sem hér hafa verið? — Það er búið að segja margt misviturlegt um vaxtamál að undanförnu. Það sem hefur verið ömurlegast við þá umræðu er að ágreiningurinn hefur að stórurn hluta snúist um staðreyndir. En eins og amma Nóbels- skáldsins sagði þá sæmir það ekki viti born- um mönnum að þjarka um staðreyndir því þær einfaldlega eru hvort sem mönnum líkar það betur eða ver. Hins vegar er sjálfsagt að menn skiptist á skoðunum um hluti sem hægt er að hafa skoðun á. Ég tek undir þá skoðun að vextir hér á landi séu of háir en hins vegar er það staðreynd að munurinn á raunvöxtum hér og í nágrannalöndunum er mun minni en af er látið. Þá er ég ósammála þeim sem vilja lækka vexti með valdboði eða handafli eins og það heitir þessa dagana. Raunvextir í landinu eru svo háir sem raun ber vitni af því að eftirspurn eftir lánsfé er mikil. Færi svo að vextir yrðu lækkaðir með valdboði yrðu bankastjórar á nýjan leik skömmtunarstjórar á takmörkuðu lánsfé. Það getur verið að slíkt fyrirkomulag henti vildarmönnum banka- stjóranna en ég hygg að aðgangur almenn- ings að lánsfé myndi minnka frá því sem nú er. Ég kem ekki auga á nema tvær skynsam- legar leiðir til að lækka raunvexti. Annars vegar með því að draga úr lánsfjáreftirspurn og efla sparnað. Hins vegar með því að draga úr kostnaði í bankakerfinu. Ég vék að því áðan hvernig ætti að draga úr ásókn ríkis- sjóðs í lánsfé með aukinni skattheimtu. Með- al þess sem rætt hefur verið um er skattlagn- ing vaxtatekna. Ég er þeirrar skoðunar að það sé réttlætis- og sanngirnismál að allar tekjur séu jafnar fyrir sköttum en menn verða þá að hafa í huga að skattlagning vaxtatekna minnkar ávöxtun sparifjár og dregur þar með úr sparnaði. Húsnæðiskerfið í klúðri — Gífuryrtar yfirlýsingar um að sækja fé í stórum stfl til fjármagnseigenda eru út í hött við núverandi aðstæður. Það leikur enginn vafi á því að þörf er á róttækri endurskipu- lagningu á íslenska bankakerfinu. íslenskir bankar veita að ýmsu leyti lélega þjónustu á dýru verði. Ég á hér við að útilokað er að fá nema lítil lán til skamms tíma í banka hér á landi og svo er vaxtamunur þeirra óheyrilega mikill. Fækkun og stækkun banka, sala ríkis- banka, aukin samkeppni rnilli banka og starfsemi erlendra banka hér eru helstu þætt- ir í þeirri endurskipulagningu bankakerfisins sem þarf að verða. Það er grátbroslegt að horfa upp á sömu mennina standa í vegi fyrr umbótum í bankamálum sem kvarta hæst undan háum vöxtum. — Varðandi húsbyggjendur sérstaklega þá vil ég benda á að það eru ekki vextirnir af húsnæðislánum sem eru að sliga þá. Þeir eru lægstu vextir hér á landi og mun lægri en sambærilegir vextir erlendis. Það er miklu frekar takmarkaður aðgangur að lánsfé til nógu langs tíma sem stendur húsbyggjendum fyrir þrifum. I því sambandi vil ég sérstak- lega benda á núverandi húsnæðislánakerfi sem verkalýðsforystan kom á fyrir rúmum tveimur árum. Frá sjónarmiði húsbyggjenda og íbúðakaupenda er þetta kerfi hreint klúð- ur. Það byrjaði á því að sprengja upp íbúða- verð sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu og skóp síðan fáránlega langan biðtíma eftir lánum. Þetta átti allt að vera fyrirsjáanlegt og raunar er erfitt að gera sér í hugarlund hvað höfundum þessa kerfis gekk til. Hnignun verkalýðshreyfingar Nú stendur verkalýðsforystan ekki að þess- ari ríkisstjórn, — er þá ekki pólitískt tœkifœri til að breyta þessu húsnœðiskerft og jafnvel fleiru? — Það er sannarlega brýn þörf á því að breyta húsnæðislánakefinu og ég sé ekki nokkra ástæðu til þess að verkalýðforystan komi nærri því verki. Það fer langsamlega best á því, að málefnum hins opibera hús- næðislánakerfis sé ráðið á pólitískum fors- endum á alþingi. Ég á von á því að þannig verði hagsmunir almennings best tryggðir. Hið opinbera húsnæðislánakerfi á auðvitað fyrst og fremst að gera einstaklingum og fjöl- skyldum kleift að koma sér þaki yfir höfuðið. Það nær ekki nokkurri átt að húsnæðiskerfið sé notað til þess að leysa vanda lífeyrissjóð- anna eins og mér sýnist að gert hafi verið fyrir tveimur árum. Raunar sýnist mér að afskipti verkalýðsforystunnar af húsnæðis- málum séu eitt dæmi um það hversu illa hún hefur staðið sig í því að gæta hagsmuna um- bjóðenda sinna og ekki síður almannahags- muna. Þau eru því til marks um þá hnignum verkalýðsheyfingarinnar sem orðið hefur á síðustu árum og kemur helst fram í því, að verkalýðshreyfingin semur ekki nema að litlu leyti um kaup og kjör í landinu, sagði Birgir Arnason hagfræðingur að lokum. Óskar Guðmundsson 10
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Þjóðlíf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.