Þjóðlíf - 01.10.1988, Page 66
VIÐSKIPTI OG FJÁRMÁL
Fríkirkjuvegur 11. Þetta stærsta íbúðarhús á íslandi byggði Thor Jensen og bjó fjöl-
skyldan þar þangað til hún flutti að Lágafelli í Mosfellssveit.
stórbokki, en það dró ekki úr ótrúlegri at-
hafnasemi hans. Umsýsla Skúla snerist mest
um atvinnumál, Innréttingarnar í Reykja-
vík, iðnað, verslun og útgerð. Hann stóð í
látlausu málaþrasi og átökum um reksturinn
innan lands og utan. I þau 44 ár sem hann
stóð í þessum rekstri var hann 23 vetur er-
lendis og naut þar fulltingis manna eins og
Jóns Eiríkssonar. Skúli þótti búa yfir ýmsum
kostum bísnissmanna; slægvitur, þrjóskur og
fylginn sér. Enginn íslenskur komst með
tærnar þar sem hann hafði hælana í við-
skiptalífinu á seinni hluta 18. aldar.
Uppgjör dróst í 40 ár
Þegar Skúli gamlaðist tók að syrta í álinn í
peningamálum hans. Margir telja að börn
hans og tengdabörn hafi orðið til þess að
gera hann gjaldþrota. Hann varð fyrir hverju
áfallinu á fætur öðru í tengslum við þau. Ein
dóttir hans vár gift Jóni Snorrasyni sýslu-
ntanni í Skagafirði, sem dó 1771 og lét eftir
sig miklar skuldir sem Skúli þurfti að standa
undir. Annar tengdasonur hans, Jón Arnórs-
son sýslumaður í Snæfellsnessýslu varð gjald-
þrota eftir móðuharðindin og féll mikill
kostnaður á Skúla gamla. Sonur hans Jón
Skúlason aðstoðarfógeti drukknaði og lét
eftir sig skuldir. Tengdasonur hans Bjarni
Pálsson landlæknir sem dó 1779 var einnig
gjaldþrota og þurfti Skúli að standa straum
af því þrotabúi. Keppinautar Skúla gengu á
eftir honum af mikilli harðneskju og það átti
einnig við um menn eins og Ólaf Stefánsson
ættföður Stephánunga sem sótti Skúla til
saka vegna fjárreiða. Um þetta leyti var ævi
Skúla orðin hálfgerð martröð, hann hafði
verið fógeti í 40 ár en gat ekki farið á eftir-
laun, trúlega ekki treyst sér til reikningsskila
eða að yfirgefa Viðey. Ólafur Stefánsson
varð stiftamtmaður 1790 og átti að hafa eftir-
lit með fjárreiðum landfógeta og eitt fyrsta
embættisverk hans var að fara út í Viðey og
taka fé til geymslu af fógeta. Hann fram-
kvæmdi einnig bráðabirgðarannsókn á fjár-
reiðum Skúla og þóttist verða var við fjár-
þurrð, sem Skúli viðurkenndi ekki. Þá inn-
siglaði Ólafur fjárhirslu embættisins og lét
leggja löghald í búið í Viðey. Gekk á með
kárínum milli Skúla fógeta og Ólafs stiftamt-
manns í nokkur misseri. 1793 skipaði Ólafur
Magnús Stephensen son sinn til að gegna
störfum fógeta en Skúli var þá kominn að
fótum fram. Erfiðlega gekk að ná skjölum úr
höndum Skúla, þar til þau voru sótt með
fógetaaðgerð 1794.
Ekki bætti úr skák að Skúli varð að afsala
sér Viðey, þar sem Ólafur hafði kosið sér
hana sem bústað. Fékk Skúli til afnota tvö
herbergi uppi á lofti í Viðeyjarstofu, þar sem
nú er glæsilegur samkomusalur. Ólafur hafði
eins og Skúli áhyggjur af væntanlegu sambýli
þeirra og skrifaði stjórninni: „Sá ókostur
fylgir þó þessu vali mínu, að ég verð að sitja
uppi með hinn gamla nöldrunarsama landfó-
geta, Skúla Magnússon, er varla getur skrið-
ið á fótum lengur..“
En Skúli orti hins vegar stöku um ákvörð-
un stiftamtmanns:
Stiftamtmaðurinn Stephensen
frá Stórahólmi
voldugur þó í Viðey svanili,
verður ei hræddur Skúli gamli.
Bú Skúla í Viðey var leyst upp og selt
'f/iXt
Frá Viðey á dögum Milljónafélagsins.
Báðir þeirsem sagterfrá ígreininni,Skúli
fógeti og Thor, komu við sögu Viðeyjar.
upp í skuldir snemma árs 1794. Eftirlaun
hans áttu að ganga upp í skuldir, en þeirri
ákvörðun var breytt, þannig að hluti þeirra
fór til Skúla. Það var Ólafi stiftamtmanni
tilefni til að kalla Skúla „íslands stærsta
pensionista". Þannig varð ríkasti maður ís-
lands gjaldþrota á gamals aldri. Síðustu mán-
uðina lifði hann við smánarkjör. Þegar hann
dó í nóvember 1794 stóðu öll spjót á honum
en uppgjöri á þrotabúinu var ekki lokið.
Reikningsskilin urðu örðug og taldi Ólafur
að skuldirnar næmu 5000 ríkisdölum en eign-
irnar 3000 dölum. Fullnaðarskil drógust á
langinn — í áratugi. Árið 1834 úrskurðuðu
stjórnvöld í Danmörku að innheimta ábyrgð
á hendur Skúla Magnússyni eða búi hans. Þá
voru fjórir áratugir liðnir frá andlátinu.
Þæfðist málið um hríð og voru reikningarnir
loks undirritaðir 1837 og kom í ljós að vant-
aði 1300 ríkisdali upp á að eignir dygðu fyrir
skuldum dánarbús Skúla Magnússonar.
(Heimild: Skúli fógeti, eftir Lýð Björnsson)
íslendingur frá Danmörku
Flestir Islendingar minnast Thors Jensens
með hlýju og stolti, því þó hann væri upp
runninn í Danmörku varð hann e.t.v. meiri
Islendingur en margur annar í hópi athafna-
manna aldamótanna. Hann fæddist í Dan-
mörku 1863 og kom sem verslunarsveinn til
Borðeyrar 1878,13 ára gamall. Þá hafði hann
verið á heimavistarskóla fyrir fátæk munað-
arlaus börn um margra ára skeið. Á Borð-
eyri lærði hann fljótt og vel íslensku og lifði
þar og hrærðist í íslenskri sveitamenningu.
Þar kynntist hann konuefni sínu Margréti
Þorbjörgu Kristjánsdóttur frænku Sveins
66