Þjóðlíf - 01.10.1988, Qupperneq 26

Þjóðlíf - 01.10.1988, Qupperneq 26
ERLENT Leiðtogafundurinn í Munchen 1938 50 ár liðin frá Munchen- samkomulaginu Þann 28. september 1938 hittust fjórir vold- ugustu þjóðarleiðtogar Evrópu í reisulegri byggingu við Arcisstræti 12 í Miinchen. Til- gangur þessa leiðtogafundar var að konia í veg fyrir að Hitlcr gerði alvöru úr þeirri ætl- un sinni að ráðast inní Tékkóslóvakíu. Foringinn hafði hótað láta til skarar skríða gegn Tékkum ef stjórnin í Prag neitaði að verða við þeirri kröfu hans að eftirláta Þjóð- verjum þau landamærahéruð, þar sem hinir þýskættuðu Súdetar bjuggu. Tékkar voru að vonum tregir til að ganga að þessum afar- kostum enda töldu þeir Hitler ekki eiga til- kall til umræddra svæða. Þegar hér var komið sögu hafði Foringinn þegar lagt undir sig Austurríki og gert þetta nágrannaríki Þjóðverja að héraði á landa- korti þýska ríkisins. Hernám Austurríkis hafði gengið átakalaust, enda áttu nasistar fjölda vildarvina í því landi sem gerðu sitt til að auðvelda foringjanum leikinn. Hinn bragðvísi og undirförli einræðisherra Þjóðverja var ekki á því að láta sér Austur- ríki nægja. Hann þreyttist ekki á að brýna fyrir löndum sínum nauðsyn þess að Þjóð- verjar létu sverfa til stáls. Annars vegar hamraði Hitler á því að Þjóðverjar væru að- þrengdir og þyrftu aukið landrými. Hins veg- ar taldi hann réttlætismál að héruð á borð við Súdetaland, þar sem milljónir Þjóðverja bjuggu, væru sett undir þýska stjórn. Þessi áróður Foringjans var ekki annað en yfirvarp. Ahugi hans fyrir Súdetalandi sem fram til ársins 1918 var hluti hins austurríska- ungverska keisaradæmis, var sprotttinn af hóflausri valdafíkn og þeim ásetningi að gera sem flestar Evrópuþjóðir að undirsátum Þjóðverja. Þrátt fyrir að ýmsir landar Hitlers hefðu fyrir löngu séð í gegnum Foringjann. höfðu leiðtogar Breta og Frakka haldið að sér höndum. Þeir höfðu að vísu mótmælt her- námi Austurríkis í orði, en ekki séð ástæðu til að grípa í taumana. Því hefur verið haldið fram, að Bretum og Frökkum hafi verið nokkur vorkunn í þessu tilliti. Þeir hafi átt við ærinn vanda að stríða heima fyrir og herir landanna tæpast verið í stakk búnir til að standa í vígaferlum. Það má líka vera að þeir hafi vanmetið valdagræðgi og stríðsgleði Foringjans. Þrátt fyrir að Hitler væri staðráðinn í að beygja Tékka í duftið voru ýmsir af nánustu samstarfsmönnum hans mótfallnir því að Þjóðverjar legðu til atlögu. Þar má nefna marskálkinn Göring, auk áróðursmálaráð- herrans Göbbels, sem lýsti því yfir vafninga- laust, að þýska þjóðin væri ekki undir það búin að fylkja liði gegn Tékkum. Nokkrir af æðstu mönnum þýska hersins voru jafnvel reiðubúnir að steypa Hitler af stóli, ef hann skipaði herjum sínum að ráðast inn í Tékkóslóvakíu. Þeir höfðu gert með sér samkomulag um að svipta Foringjann völd- um jafn skjótt og hann blési til orustu. Jafn- framt komu þeir þeirri ósk á framfæri við Winston Churchill, að Bretar stæðu fastir fyrir og Iétu ekki undan yfirgangi Hitlers. Þessi ráðagerð herforingjanna fór þó út um þúfur. I stað þess að láta til skarar skríða gegn Tékkum kallaði Hitler forsætisráðherra Breta og Frakka, Chamberlain og Daladier til fundar í Miinchen, að viðbættum ítalska einræðisherranum Mússólíní, sem var í hlut- verki sáttasemjara á fundinum. Þegar þeir fjórmenningarnir settust á rökstóla í húsinu við Arcisstræti (þar sem bæverski tónlistar- háskólinn er nú til húsa) var reyndar ljóst, að Hitler hefði sitt fram. A fundinum lagði Mússólíní fram tillögu, sem að líkindum var runnin undan rifjum þeirrra Görings, von Neuraths og ráðuneytisstjórans von Weizsackers, föður núverandi forseta Vest- ur-Þýskalands. I tillögunni var kveðið á um að umrædd héruð íTékkóslóvakíu féllu nasistum í skaut. Þrátt fyrir að leiðtogar Breta og Frakka væru frá upphafi reiðubúnir að fallast á þessa til- lögu, urðu snarpar orðasennur á fundinum í Múnchen. Sjónarvottar skýrðu frá því síðar, að aðaltúlkur fundarins hafi hvað eftir annað orðið að biðja fundarmenn að stilla skap sitt og tala ekki allir í einu, enda ekki vinnandi vegur að þýða slíkan orðaflaum. Chamberlain, sem var annálaður ná- kvæmnismaður er t.d. sagður hafa viljað vita hvenig Hitler hygðist bæta stjórninni í Prag þann eignamissi sem hún yrði fyrir, þegar Þjóðverjar legðu undir sig opinberar bygg- ingar. Auk þess innti hann Hitler eftir því, hvað Foringinn hygðist gera við þann búpen- ing sem los kæmist á vegna hernámsins. Hitl- er er sagður hafa fyllst bræði vegna þessara fyrirspurna og argað á hinn aldna forsætis- ráðherra Breta, að tíminn væri of dýrmætur til að elta ólar við slíka smámuni. Um klukkan 2 um nóttina var búið að þýða samkomulagið á allar tungur við- staddra. Þar var kveðið á um að þau landa- mærahéruð sem Hitler slægðist eftir yrðu sett undir þýska stjórn. Tékkar voru sjálfir aldrei spurðir álits, heldur máttu þeir kyngja þessu samkomulagi, hvort sem þeim líkaði betur eða verr. Syrovy, forsætisráðherra Tékka, lýsti því yfir hryggur í bragði, að þeir væru einir og yfirgefnir og ættu því ekki ann- arra kosta völ en að hlýða. Múnchen-samkomulaginu var hins vegar fagnað í Bretlandi, Frakklandi og Þýska- landi. Ibúar Lundúna, Parísar og Múnchens þustu útá götur og kættust yfir því að tekist hefði að koma í veg fyrir stríð. Sjálfar aðalpersónurnar í sjónleiknum í MUnchen voru þó ekki að sama skapi sáttar við þessi málalok. Bæði Chamberlain og Daladier var ljóst að þeir höfðu látið í minni pokann. í stað þess að setja Hitler stólinn fyrir dyrnar og neita að taka þátt í þessum pólitísku hrossakaupum höfðu þeir kosið að 26
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.