Þjóðlíf - 01.10.1988, Síða 62
ÞJÓÐFÉLAGSMÁL
Kópavogur
Þar eru engir biðlistar
í Kópavogi eru biðlistar eftir plássi á stofnun-
um fyrir aldraða nánast óþekkt fyrirbæri.
Allir aldraðir bæjarbúar geta fengið heimil-
ishjálp strax og þeir vilja. Meðan aldraðir
Reykvíkingar bíða þúsundum saman eftir
stofnanaplássum og hundruðum saman eftir
heimilishjálp er biðin nánast engin í því bæj-
arfélagi, sem næst liggur höfuðborginni.
Hlutfallslegur fjöldi aidraða í Kópavogi er
litlu minni en í Reykjavík, eða rúm 10 prós-
ent. Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir öldrunar-
fulltrúi lýsti þjónustunni í Kópavogi fyrir
blaðamanni Þjóðlífs:
„í Kópavogi hefur verið lögð megin-
áhersla á þjónustu utan stofnana, svokallaða
„stoðþjónustu“. Miðast þjónustan við það
að búa þannig í haginn að aldraðir geti búið
sem lengst í heimahúsum. Þar af leiðandi
hefur hvað mest áhersla verið lögð á heimil-
isþjónustu.
Þessi þjónusta er að mínu mati mjög góð
hér í Kópavogi og samvinna milli þeirra aðila
sem mynda þessa þjónustu þ.e.a.s. heimilis-
hjálparinnar, sem er á vegum Heilsugæslu-
stöðvarinnar, er með miklum ágætu, enda
slíkt forsenda fyrir svo góðri samræmdri
þjónustu sem hér er raunin á. Hvað varðar
heimilishjálpina t.d. þá er engin bið eftir
heimilishjálp nema rétt á meðan umsókn og
aðstæður eru metnar, sem tekur í mesta lagi
þrjá til fjóra daga. Þetta gefur okkur tækifæri
til að sérhæfa heimilishjálpina betur og laga
hana að persónulegum þörfum hvers og eins.
Innan félagsstarfs aldraðra, sem er til húsa
að Fannborg 2, er einnig þjónusta fyrir aldr-
Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, öldrunar-
fulltrúi í Kópavogi:,, Stór heimili ættu að
heyra fortíðinni til.“
aða. Þar er um að ræða hárgreiðslu, fótsnyrt-
ingu og mötuneyti, sem opið er 5 daga vik-
unnar. í einstaka tilfellum hefur í samvinnu
við heimilishjálpina verið sendur hádegis-
verður heim til ellilífeyrisþega. Er þá um
einstaklinga að ræða, sem að öllu jöfnu
koma í mötuneytið en komast ekki vegna
tilfallandi veikinda.
Vistrými fyrir aldraða í íbúðum, dvalarheimilum og
hjúkrunarrýmum. Fjöldi vistrýma á hverja 100 íbúa
65 ára og eldri.
Reykjavík.................................9,9
Vesturland................................7,3
Vestfirðir...............................12,8
Norðurland vestra........................16,1
Norðurland eystra.........................7,3
Austurland.................................13
Suðurland.................................9,6
Reykjanes................................13,3
Heimild: Aldraðir á íslandi, Reykjavík 1987
Frístundahópar —
ferðaþjónusta
Ennfremur er leitast við að skapa fjöl-
breytni í tómstundastarfinu. Innan félags-
starfs aldraðra er boðið upp á námskeið,
ferðalög, félagsvist, leikfimi, opið hús o.fl. I
tengslum við opið hús, sem er einu sinni í
viku, hefur myndast vísir að ferðaþjónustu,
einnig í samvinnu við heimilishjálpina. Er þá
ákveðnum einstaklingum, sem að mati
heimilishjálparinnar þurfa sérstaklega á því
að halda, fylgt til og frá Félagsheimilinu þar
sem opið hús er.
Frístundahópurinn „Hana-nú“ saman-
stendur af margs konar áhugaklúbbum fyrir
50 ára og eldri. Þar eru meðal annars bók-
menntaklúbbur, trúlista-, leiklista-, ætt-
fræði-,náttúrúskoðunar-, göngu- og dans-
klúbbar svo eitthvað sé nefnt. Hugmyndin
að baki „Hana-nú“ hópsins er aðlögun
starfsloka eða svokölluð „mjúk lending".
100 íbúðir í Vogatungu
íbúðir og dvalarheimili fyrir aldraða eru
eftirtalin:
í Vogatungu verða 14 leiguíbúðir, sem
Kópavogsbær ráðstafar til ellilífeyrisþega, 14
eignarhlutdeildaríbúðir þar sem ellilífeyris-
þegar geta keypt annaðhvort 50% eða 25%
eignarhlutdeild. Ennfremur eru þar eignar-
íbúðir, sem þeim, er náð hafa 60 ára aldri
stendur til boða að kaupa. Er það alfarið á
vegum byggingarverktaka.
Ibúar í Vogatungureitnum, eins og hann
hefur verið kallaður, geta notið heimilis-
hjálpar og heimahjúkrunar á borð við aðra
Kópavogsbúa, en að öðru leyti er engin
þjónusta við íbúðirnar sérstaklega. Kópa-
vogsbær annast allt viðhald húsanna. Gert er
ráð fyrir um 100 íbúðum í Vogatungu í fram-
tíðinni.
í Fannborg 1 búa 26 ellilífeyrisþegar í
leiguíbúðum, sem Kópavogsbær hefur til
ráðstöfunar. Er þetta húsnæði í eigu Ör-
yrkjabandalagsins og ráðstafar það 13 íbúð-
um í húsinu. Þar á meðal eru einnig nokkrir
ellilífeyrisþegar.
Allir, sem þurfa á hjálp að halda fá heima-
þjónustu í Fannborg 1, sem er samræmd
heimilishjálp og heimahjúkrun. Einnig geta
íbúar keypt sér hádegisverð á 1. hæð hússins
þar sem matsalur félagsstarfsins er. Að öðru
leyti annast hver sinn heimilisrekstur og
greiðir sína húsaleigu.
62