Þjóðlíf - 01.10.1988, Page 71
NEYTENDUR
Eftir Adolf
H. Petersen
Neytendamál
Blekkingar og sölusálfræði
Útsala! Útsala! Viö erum fljótt að bregðast
við þegar útsölur eru auglýstar. A útsölum
eigum við það til að haga okkur líkt og í
frumskóginum; að verða á undan öðrum að
tryggja okkur vörur á góðum kjörum. A út-
sölumörkuðum og í stórverslunum eru hætt-
urnar líka á hverju strái, hillurnar, körfurn-
ar, staflarnir og allt hvað það heitir má líkja
við frumskóginn. Við göngum eftir margvís-
legum stígum og rekumst ætíð á eitthvað nýtt
sem gleður augað og eykur kaupfíknina.
Reyndar erum við ekki það skynlaus að við
gleypum við hverju sem er, heldur vegum við
og metum það sem í boði er. Val okkar ræðst
síðan af verði og gæðum viðkomandi vöru
svo og smekk okkar og áhuga.
Þessu hafa sölusálfræðingar fyrir löngu
gert sér grein fyrir og er sérgrein þeirra að
sannfæra okkur um að við séum að gera góð
kaup. Aðalatriðið er að telja okkur trú um
að varan sé ódýr í samræmi við gæðin. Þó svo
að einhverjum brellum sé beitt er ekki þar
með sagt að verið sé að ljúga að okkur. Sam-
kvæmt 56. grein laga um verðmerkingar frá
1980 er kaupmönnum skylt að verðmerkja
allar vörur það greinilega að kaupandinn
geti án mikillar fyrirhafnar séð verð þeirra.
Einnig er þess getið að ef um útsölu er að
ræða sé skylt að sýna tvær upphæðir; þ.e.
fyrra verð og útsöluverð. Að öðru leyti er
ekki getið um það sem ekki má gera. Engar
reglugerðir eru til um hvernig skal verð-
merkja. í þeim efnum gilda aðeins almennar
óskráðar siðareglur, en allt er löglegt sam-
kvæmt því, einnig það sem er fullkomlega
siðlaust.
Það er því margt sem ber að varast við
frumskógarstíga vörumarkaða þar sem
„glæsileg" tilboð eru nánast á hverju strái.
Verður hér minnst á nokkrar þær hættur sem
blasa við saklausum borgurum og ræna þá
þúsundum króna í mánuði hverjum.
Hrúga í körfu
Gengið er eftir snyrtilegum gangi verslunar-
innar þar sem öllu er raðað upp í röð og
reglu. Skyndilega er rekist á innkaupavagn
þar sem niðursuðudósum hefur verið hrúgað
niður. Þessi uppsetning er freistandi fyrir þá
sem eru að leita sér að vörum á lægra verði.
En það er ekkert lögmál að slíkar vörur séu
ódýrari en aðrar. Nýlega var gerð könnun á
þessu, þannig að baunadósum var hrúgað í
körfu, en eigi langt þaðan var unnt að rekast
á sams konar dósir, snyrtilega röðuðum í
hillur. Verðið var það sama á öllum dósun-
um. I ljós kom að á einum degi höfðu körfu-
dósirnar selst helmingi betur en hilludósirn-
ar.
Handskrift og útstrikanir
Handskrifað skilti á að leiða huga okkar að
því að verð hafi verið lækkað og fyrri verð-
merkingar séu þannig úr gildi eða að skiltið
hafi verið gert í þeim tilgangi að vekja athygli
á verðlækkuninni. Kannanir í nágrannalönd-
um okkar hafa sýnt að því stærra sem skiltið
er þeim mun hagstæðara virðist okkur til-
boðið vera. Sömu sögu er að segja um skrift-
ina. Heimatilbúin og jafnvel illa skrifuð
merking er persónulegri en prentuð. Kann-
71