Þjóðlíf - 01.10.1988, Blaðsíða 76
UPPELDISMÁL
borgar, Hálsakots og Seljaskóla sé niður-
staða mikillar umræðu um þessi mál á síð-
ustu árum. Hér er um þarft brautryðjenda-
starf að ræða.
— Arið 1982 var myndaður starfshópur á
vegum Fræðsluráðs Reykjavíkurborgar og
stjórn Dagvistar Reykjavíkur, um samskipti
skóla og dagvistarheimila. í þessum starfs-
hópi sátu þau Kári Arnórsson skólastjóri,
Svanhildur Svavarsdóttir talkennári og Þór-
unn Halla Guðlaugsdóttir kennari.
— Niðurstaða þessa starfshóps var sú að
efla þyrfti samstarfið til muna. í því sam-
bandi benti hópurinn á að efla mætti hið
almenna samstarf skóla og dagvistarheimila
með því að starfsfólk þessara stofnana færi í
kynnisferðir á aðrar stofnanir í viðkomandi
hverfum, m.ö.o. að kennarar heimsæktu
dagvistarheimili hverfisins og fóstrur skól-
ana. Ennfremur lagði starfshópurinn til að
fóstrur færu með verðandi 6 ára nema í heim-
sókn í skóla síðari hluta vetrar og að börnun-
um yrði þar kynntur skólinn. í tillögum
þeirra segir hinsvegar að slíkar heimsóknir
skuli eiga sér stað af frumkvæði viðkomandi
dagheimila.
— Að mínu mati urðu tillögur þessar af-
skaplega haldlitlar af þeim sökum að nær allt
frumkvæði var lagt á fóstrurnar og dagvistar-
heimilin. Segja má að á þessum tíma hafi
ekkert orðið úr þessu almenna samstarfi,
reyndar kom fyrir að fóstrur færu með 6 ára
börn, þ.e.a.s. væntanlega nemendur í kynn-
isferðir í skólana. En um raunverulegt sam-
starf þessara uppeldisaðila var ekki að ræða.
Samstarf getur ekki byggst á frumkvæði ann-
ars aðilans. Og þar sem við töldum, og telj-
um enn að það sé mjög mikilvægt að fylgja
börrnunum inn í skólana, héldum við um-
ræðunni til streitu. Á þessum tíma sáum við
ekki og fundum ekki fyrir raunverulegum
áhuga af hálfu skólamanna á þessum sjónar-
miðum. Með þessu er ég þó ekki að segja að
skólamenn hafi ekki viljað aukið samstarf
heldur einungis það að þeir hafi talið önnur
verkefni mikilvægari —.
Næst gerðist það í þessu máli að Matthild-
ur Guðmundsdóttir kennslufulltrúi á
Fræðsluskrifstofu Reykjavíkurborgar og
Sigríður Jónsdóttir námsstjóri í Mennta-
málaráðuneytinu höfðu samband við fram-
kvæmdastjóra Dagvistar barna í Reykjavík
og óskuðu eftir að formlegt samstarf yrði
tekið upp aftur. Það varð úr árið 1986 og þá
fyrst kom fagdeild Dagvistar barna, sem ég
veiti forstöðu, inn í myndina. Við Matthildur
hittumst og ræddum þessi mál og boðuðum
síðar til fundar aðila frá Fræðsluskrifstofu
Reykjavíkur, Dagvist barna, Skólastjórafé-
lagi íslands, Kennarafélagi Reykjavíkur,
Fóstrufélagi Islands og Menntamálaráðu-
neytinu.
— Samstarfsnefnd þessi komst að þeirri
niðurstöðu að efla þyrfti samstarf skóla og
dagvistarheimila til muna og þá á grundvelli
gagnkvæms frumkvæðis. I kjölfar þessa var
boðað til hverfafunda með forstöðumönnum
dagvistarheimila og skólastjórum. Framsögu
á fundunum höfðu auk mín þær Matthildur
Guðmundsdóttir og Áslaug Brynjólfsdóttir
fræðslustjóri. Á þessum fundum voru allir
fundarmenn sammála um mikilvægi þess að
auka samstarfið og þá á gagnkvæman hátt.
Það sem mér fannst hvað athyglisverðast við
þessa fundi með skólastjórum og forstöðu-
mönnum dagvistarstofnana var sú sameigin-
lcga sýn og sú sameiginlega áhersla sem báð-
ir hóparnir lögðu á mikilvægi þess að sam-
ræma menntunina í þessum
uppeldisstofnunum. Og jafnframt kom fram
almennur skilningur á því að í rauninni er
ekki hægt að tala um samstarf á jafnréttis-
grundvelli öðruvísi en að menntunin verði
samræmd hjá kennurum og fóstrum, t.d.
með því að færa fóstrunámið yfir á háskóla-
stig á sama hátt og kennaraháskólinn útskrif-
ar kennara. Reynist hinsvegar ekki vilji fyrir
því að samræma þessa menntun ætti allavega
að vera unnt að koma þeirri námstilhögun á
legg að kennaranemar stunduðu að ein-
hverju leyti nám í fósturskólanum og fóstrur
á sama hátt nám í kennaraháskólanum. Slíkt
tíðkast annarsstaðar á Norðurlöndunum og
ég tel sjálfsagt að gera slíkt hið sama hér á
landi — allavega þar til menntunin verður
samræmd.
Má skilja þá áherslu sem þið setjið á sani-
ræmingu dagvistar-og skólastarfs og sam-
fellu í nánti barna á þessu aldursstigi á þann
veg að þið teljið þörf á að lækka skólaskyldu-
aldurinn?
— Já, það er nokkuð sem við sjáum fyrir
okkur í náinni framtíð. í rauninni viljum við
þó tala um fræðsluskyldu í þessu sambandi
en ekki skólaskyldu, eins og er fyrir 6 ára
börnin í dag. Og fræðsluskylduna tel ég mik-
ilvægt að hafa frá þeim aldri barns þegar
fæðingarorlofi móður lýkur og fram að
skólaskyldu. í þessu sambandi má geta þess
að við sem að þessum málum höfum starfað,
fögnuðum mjög þingsályktunartillögu Hjör-
leifs Guttormssonar alþingismanns um
fræðslulöggjöf fyrir þetta aldursstig, því þá
Ofl SAMVINNA GERIR
GÆFUMUNINN
Ef þú þarft að vinna mikið við Ijósritun bygg-
ist árangurinn á góðri samvinnuvið Ijósritunarvélina
þina. Ernokkuð sem þreytirþig meir en tiðar bilanir
og löng bið eftir viðgerðarmanni? Með Nashua
Ijósritunarvélerþessum áhyggjum af þér létt. Lág
bilanatíðni Nashua og fljótog örugg viðgerðar-
þjónusta Optima gerir gæfumuninn.
Pk
o mtLiumco:
76
SuðurlandsbrautlO — Simi84900