Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2012, Page 36

Frjáls verslun - 01.01.2012, Page 36
36 FRJÁLS VERSLUN 1. TBL. 2012 atvinnuleysis. Það er 7 til 8% atvinnuleysi og Hagstofan spáir að það verði mikið atvinnuleysi út árið 2016. Það er bullandi verðbólga sem í gegnum verðtrygginguna hækkar öll verðtryggð lán sjálfkrafa. Það er mesti fólksflótti frá landinu í heila öld. Verðtryggðar skuldir heimilanna eru um 1.300 milljarðar og verðtryggðar skuld ir fyrirtækja um 370 milljaðar króna, sam ­ kvæmt Seðlabankanum. Heildaskuldir heimila eru 1.542 milljarðar eða svipaðar og fyrirtækja, sem skulda 1.503 milljarða. Það er því enginn smáakkur í því að koma verðbólgunni niður. Það vekur furðu að Samtök atvinnulífsins skuli hafa skrifað undir samninga á síð ­ asta ári sem buðu upp á gamla lagið; víxl­ verkanir kaupgjalds og verðlags. Voru launþegar ekki orðnir fullsaddir á þeirri aðferðafræði og reynslunni ríkari? kAUPmáttUr ráðstöFUNAr tekNA Kaupmáttur ráðstöfunatekna skiptir mestu máli. Verðbólga og skattar ráða mestu um kaupmáttinn. Þess vegna valdi vinnu ­ mark aðurinn árið 1990 að ná fram bættum kjörum með því að draga úr verðbólgunni og fá raunhæfar kjarabætur frekar en fleiri krónur í veskið. Þess vegna urðu þjóðar­ sátt arsamningarnir til. Krafan um hærri laun frá launþega­ hreyfi ngunni í fyrra kom á sama tíma og stjórn endur fyrirtækja höfðu ekki gert neitt annað frá hruni en að endurskipuleggja fjárhaginn en skuldahlið flestra fyrirtækja varð ónýt í hruninu. Vinnan hefur gengið út á að afskrifa skuldir fyrirtækja og endursemja um lán til að blása nýju lífi í þau. Það sama hefur átt við um skuldahlið heimila. Enn er nokkuð í land með að fjár hags legri endurskipulagningu fyrirtækja sé lokið. Margt hefur áunnist í þeim efnum sem og hjá skuldugum heimilum. Fjöldi fyrirtækja hefur hins vegar nýtt þetta svigrúm til að draga til baka þær launalækkanir sem urðu í kjölfar hrunsins. Efnahagsútlitið í heiminum er ekki gott. Hag kerfi heimsins spóla og eftirspurn í heim inum dregst saman. Hættan fyrir okkur Ís lendingar er sú að þetta komi niður á út flutningi okkar. Minni tekjur af fiski, ferða mönnum og áli. Skuldavandinn í Evrópu er mikill og Evrópa sogast niður jafnt og þétt og hag ­ vöxtur þar er að minnka. Enginn sér ennþá hvernig sá hildarleikur endar. Vonandi ganga spár eftir um auk inn hagvöxt á Íslandi á þessu ári. Útflutning­ urinn skilar sínu og eftir fjárhagslega endur ­ skipulagningu margra fyrirtækja geta þau vonandi hreyft sig meira í fjárfest ingum. Er kreppan búin? Ýmsir hafa tjáð sig um það. Össur Skarphéðinsson utan ríkis­ ráðherra sagði á dögunum að svo væri. Kreppan er frá, sagði hann. En varla þegar horft er á kvarða atvinnuleysis. Það er 7 til 8% atvinnuleysi, sem er langt umfram það sem jafnan er rætt um sem náttúrulegt atvinnuleysi; þ.e. 2 til 3%. heFðI AsÍ FArIð Í verkFAll? Hvers vegna fór launþegahreyfingin í harða kjarabaráttu á síðasta ári við þessar aðstæður? Og hvers vegna sömdu atvinnurekendur við launþega hreyfi ng­ una? Voru þeir hræddir? Hvers vegna báru aðilar vinnumark að ­ arins ekki sjálfir ábyrgð á sínum samn ­ ingum – hvers vegna þurftu þeir að krefj ast stórfelldra ríkisútgjalda í leiðinni; sem aftur þrýstir á aukna lántöku, hærri vexti, minni fjárfestingar einkageirans og skattahækkanir? Margir hafa spurt sig að því hvers vegna atvinnurekendur sögðu ekki nei; við semjum ekki um hærri laun í mestu kreppu lýðveldisins. Fullyrt er að annars hefði verkalýðshreyfingin farið í hörð verkföll sem valdið hefðu enn meiri skaða. Hefði hún farið í hörð verkföll? Það er mjög hæpið. Trúir því einhver að hún hefði látið á það reyna? Verkföll hefðu sett fleiri fyrir ­ tæki á höfuðið og enn fleiri hefðu misst vinnuna. Það er þekkt úr vinnumálahagfræði að verkalýðsforingjar þurfa af og til að friða þá óstýrilátu innan sinna raða til að halda sjálfir völdum. Í dýpstu kreppu lýð­ veldisins eru slík leikrit hins vegar of dýru verði keypt. Hvers vegna mætir enginn hinna atvinnu ­ lausu á fundi í sínu verkalýðsfélagi og spyr foringjana að því hvers vegna þeir geri kröfu um hærri laun – sem minnki líkur á að fyrirtæki ráði hann í vinnu? rÍkIsPAkkI UPP á 60 mIllJArðA Samtök atvinnu lífsins og ASÍ gengu á fund ríkisstjórnarinnar til að semja um pakka Það er enn drjúp kreppa mælt á kvarða atvinnuleysis. Það er 7 til 8% atvinnuleysi og Hagstofan spáir að það verði mikið atvinnuleysi út árið 2016.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.