Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2012, Blaðsíða 47

Frjáls verslun - 01.01.2012, Blaðsíða 47
FRJÁLS VERSLUN 1TBL. 2012 47 Össur: Kreppan er frá Brot úr pistli 3. febrúar á heimur.is vegna orða Össurar skarphéðinssonar á alþingi um að kreppan sé búin. Okkur er öllum létt. Krepp an er frá. Össur segir það og þá hlýtur það að vera rétt. Í Bretlandi yrði þessu slegið upp sem Breaking News. Þetta er að vísu sami Össur og segir í Rannsóknarskýrslu Alþingis að hann hafi ekki hundsvit á efnahagsmálum. „Ég segi það algjörlega skýrt: Að mínu viti er efnahagssamdrættinum lokið, kreppan er frá. Á þriggja ára afmæli ríkis­ stjórnarinnar blasir við að það er búið að moka út úr Ágíasarfjósi Framsóknar og Sjálfstæðisflokks sem það tók þá flokka næstum því átján ár að fylla,“ sagði Öss­ ur á Alþingi í morgun. Auðvitað skiptir ekki máli þótt á þess­ um átján árum, tímabilinu frá 1991 til 2008, hafi Össur setið sex ár í ríkis­ stjórn með sjálfstæðismönnum. Eða frá 1991 til 1995 og frá 2007 til 2008. Það vill til að það er föstudagur þegar fréttatímar ljósvakamiðlanna eru rofnir með þessari stórfrétt. Þjóðin hlýtur að gera sér glaðan dag. Þetta verður lang­ ur laugardagur. Það verður víða hellt djúsi yfir ís, eins og Flosi Ólafs sagði í gömlu auglýsingunni frá Radíóbúðinni. Það er bara verst hvað djúsið er orðið dýrt! Það breytir engu. Þú færð ekki á hverjum degi Breaking News um að kreppan sé frá. Það þarf þá ekki að skipta um formann í Samfylkingunni á meðan; fara í dauðaleit niður um tvær kynslóðir fyrir næstu kosningar. Vínið hefur hækkað, tóbakið, bensínið, skattarnir, útsvarið, vatnsgjaldið og nauð ­ synjavörurnar í stórmörkuðunum. En sem betur fer er kreppan frá; við finnum það á buddunni að það er allt orðið svo létt ­ ara undir fæti. Allar greiðslur eru orðn ar léttgreiðslur. Bensínið hefur ekki hækkað nema um 18 krónur frá því um áramótin og lítrinn stefnir í 300 krónur í lok ársins. Það kostar ekki nema 10 þúsund krónur núna að skjótast til Víkur í Mýrdal og til baka á sparneytnum bíl. Lítið mál. Þeir gleðjast í ferðaþjónustunni; það verður mikið rennerí austur á næstunni. Það er ekki nema 8% atvinnuleysi. Atvinnu lausir munu fagna fram eftir næstu viku. Kreppan er frá. Fyrirtækin fagna fram eftir viku. Núna er hægt að ráða nýtt fólk til starfa eftir að atvinnu­ tryggingagjaldið fjórfaldaðist og launin hækkuðu. Það er hægt að hefja fjárfest­ ingar og slá lán. Að vísu sá Már í Seðlabankanum þensl una og góðærið fyrir síðasta haust þegar hann hækkaði vexti í land­ inu til að slá á þenslu. Hann sá þetta með hinum snillingunum í bankanum og nefnd inni. Kreppan er ekki bara frá; það er kom in bullandi þensla, að mati þeirra við Arnarhól. Bogi og Örvar hljóta að kætast. Fólksflóttinn til Noregs hlýtur að stöð v ast. Noregur hvað!? Mér er óhætt að hætta á námskeiðinu í Mími þar sem ég hef verið á hverju kvöldi svo mánuðum skiptir – enda frekar lélegur málamaður. Mesta kreppa Íslandssögunnar er að baki. Við erum ekki lengur í kreppu! Lesið af vörum mínum. Landsframleiðsl­ an féll ekki nema um 11% á árunum 2009 og 2010. Síðan höfum við skriðið eftir botninum. Hagstofan sagði okkur fyrir áramót að hagvöxtur síðasta árs hefði numið yfir 2% og útlit væri fyrir annað eins á þessu ári; ef allt gengur að óskum – en fréttir eru stundum sagðar af því að Evrópa sé að sogast niður og blikur séu á lofti í bankakerfum heimsins. Össur reiknar það út að 11% kreppa plús 3 til 4% hagvöxtur sé 0 en ekki 8 til 9% kreppa. Við féllum fram af bjarg brúninni en lentum á syllu. Guði sé lof að við fengum Jóhönnu, Steingrím og Össur til að toga okkur upp að bjarg ­ brúninni. … Þriggja ára afmælisveislan stendur enn yfir Stjórnin hefur unnið dag og nótt við að bjarga fólki og fyrirtækjum. Hún hefur að vísu sett sér það markmið að rústa sjávarútveginum, orkugeiranum og ferða þjónustunni sem þrátt fyrir allt hafa búið til þann hagvöxt sem þó hefur orðið undir stjórn Bakkabræðra. Það er svo sniðugt að bjarga fyrst öllum fyrirtækjunum sem fóru á hausinn í kreppunni – og hæla sér af því í fjöl ­ miðl um – og rústa svo fyrirtækjum, sem lifðu af og hafa skilað sínu í hagvexti, til að geta bjargað þeim síðar úr feninu. Þannig heldur björgunarstarfið enda­ laust áfram hjá þreyttum og vansvefta Bakkabræðrum. Það er þetta með að hella vatni í botn­ lausar fötur. Þjóðinni er létt. Við trúum öllu. Krepp­ an er frá. Össur sagði okkur það. jgh@heimur.is af leiðandi myndi enginn vilja hana. Menn skildu þetta loksins árið 1990 þegar gerðir voru þjóðarsáttarsamning­ ar á vinnumarkaði. Stöðugleikinn og lítil verðbólga voru sett á oddinn – og það gekk bara ágætlega í fimmtán ár eftir það, þótt við værum komin í EES og tækjum upp fjórfrelsi, m.a. frjálst fjármagnsflæði. Launþegar eru með tekjur í krónum en lán í verðtryggðum krónum. Það þykja ekki sniðug fjármálavísindi. Það er mjög auðvelt að afnema verðtrygginguna og koma á sama gjaldmiðli. Það þarf ekki nema eins og ein neyðarlög til þess. Raunar hefði átt að afnema verð trygg­ inguna tímabundið þegar neyð ar lögin voru sett. Það sáu allir haustið 2008 að verðbólgugusa var í pípun um. Það hefði verið forvörn og þá væru menn ekki að ræða núna um ríkis ábyrgð á verðtryggð­ um lánum og að ríkið ætti að greiða þau niður um 200 milljarða króna – sem er dæmigerð „eftir á“­lausn. Með verðtrygg­ inguna áfram fellur allt aftur í sama farveg. Verðtryggingin er í verð bólgu sami vandi fyrir skuldara og verðbólg­ an var fyrir sparifjáreigendur fyrir tíma verðtrygg ingarinnar. Hagstjórn og efnahagsbati er það sem þjóðin þarf á að halda; hvaða hugmyndir sem menn kunna að hafa um nýjan gjaldmiðil í fram tíðinni. Annars er hinn eini sanni gjaldmiðill þjóðarinnar samkeppnis­ hæfni hennar og framleiðni: sterkt atvinnu líf. Það er samasemmerki á milli sterks atvinnulífs og sterkrar myntar. Um 94% þjóðarinnar segja í könn un Viðskiptaráðs að atvinnulífið sé undir ­ staða lífskjara í landinu. Það er laukrétt. Hvers vegna er þá verið að hækka öll laun í landinu sem veikja atvinnulífið og stuðla að áframhaldandi kreppu; 7 til 8% atvinnuleysi? Það er í raun merkilegt að við séum að hækka í lánshæfismatseinkunn á erlend um vettvangi undir þessum kringum stæðum. Það skiptir engu máli hvaða mynt er á Íslandi, Evrópu eða Bandaríkjunum. Það hækkar enginn laun í kerfi sem hefur skroppið saman um 11% án þess að verðbólgan fari á skrið. Meira að segja fíllinn hefði sest á forn­ aldarsamninga sem þessa sem lengi þrifust hér á landi. Fíllinn er vitur; hann hefur fílsminni. Fíllinn í stofunni jgh@heimur.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.