Frjáls verslun - 01.01.2012, Qupperneq 58
58 FRJÁLS VERSLUN 1. TBL. 2012
n á sama tíma og
ástandið var heldur
óvinveitt fjárfestum
hefur Skúli Mogensen
komið eins og storm
sveipur inn í ís lenskt
viðskiptalíf og með
reglulegu millibili
er greint frá fjár
fest ingum hans í nýjum félögum. Er svo
kom ið að hann er helsti áhættufjárfestir
lands ins og tekur gjarnan að sér verkefni
sem aðrir treysta sér ekki til eins og átti
við um tölvumyndafyrirtækið Caoz. Þar
kom Skúli inn þegar aðra hluthafa þraut
örendi og tryggði um leið fjármögnun á
myndinni um hamar Þórs. Margt bendir til
þess að ekki hefði verið unnt að ljúka gerð
myndarinnar ef Skúli hefði ekki komið inn
ásamt félögum sínum úr útrásarævintýri
Oz. Engum blöðum er um það að fletta að
þau bönd sem hnýttust í Oz eru sterk og
margir af áhugaverðustu frumkvöðlum
landsins og fjárfestum tengjast félaginu
með einum eða öðrum hætti.
Skúli hvarf sem kunnugt er með eftirhreytur ævintýrafyrirtækisins Oz úr
landi þegar það var lagt niður árið 2002
eftir að Landsbankinn hafði tekið starfsemi
þess yfir. Nokkrum árum síðar var félagið
kom ið í hagnað í Kanada og síðan selt
fyrir metfé til Nokia árið 2008. Hin mikla
breyt ing sem varð á Oz skýrist hugsanlega
best á því að árið 2002 voru starfsmenn
félagsins komnir niður í 20 og veltan aðeins
um hálf milljón Bandaríkjadala. Þegar
félagið var selt sex árum síðar til Nokia
störf uðu rúmlega 200 manns hjá félaginu
og veltan komin yfir 35 milljónir dala. Jafn
framt hafði Oz tekist að fá inn rúmlega
60 milljónir dala í áhættufjármögnun frá
stór um áhættusjóðum (e. venture capital)
í NorðurAmeríku og víðar. Þar má nefna
Vantage Pointsjóðinn í Bandaríkjunum,
kanadíska fjárfesta eins og CDP og evrópska
eins og TMobile Ventures. Skúli segir að án
þessa áhættufjármagns hefði félag inu aldrei
tekist að snúa við blaðinu eins og raunin varð.
En um leið og salan var um garð gengin
hóf Skúli að skipuleggja endurkomu sína
inn í íslenskt viðskiptalíf og hóf undir bún
ing að stofnun fjárfestingafélags sem fékk
nafnið Títan, sem er reyndar ekki ókunnugt
í íslenskri viðskiptasögu. Stórskáldið Einar
Benediktsson skírði fossafélag sitt þessu
nafni og svo má geta þess að tunglið Títan,
sem sveimar um Satúrnus, er drauma stað
ur stjörnulíffræðinga!
Fjárfestingafélagið Títan tók til starfa hér
á landi 1. október 2009. Sama kvöld sat
Skúli og hlustaði á Kastljósþátt þar sem
Stein grímur J. Sigfússon fjármálaráðherra
tilkynnti að það ætti að hækka skatta upp
úr öllu valdi, ekki síst fjármagnstekjuskatta.
Tveimur dögum seinna, þegar Skúli var að
keyra í vinnuna, var skollinn á blindbylur.
Hann játaði á opnum fyrirlestri, sem hann
hélt skömmu seinna, að þá hefði hann
hugsað með sér því í ósköpunum hann
væri að koma hingað á „klakann“, eins
óvistlegur og hann virtist vera. En Skúli
segist hafa litið svo á að hér á landi leynd
ust margvísleg tækifæri. Við sama tilefni
benti hann á að Steve Jobs, stofnandi
Apple, hefði áður orðið að þola útskúfun
og fyrirlitningu en væri nú dáður af öll
um. Apple hefði verið nálægt gjaldþroti og
honum hefði verið hent út þaðan. „Síðan
snýr hann aftur og nær frábærri endur
komu,“ sagði Skúli við fundarmenn og
bætti við á ensku: „What doesn’t kill you
makes you stronger,“ og brýndi um leið
fyrir fundarmönnum að landsmenn yrðu
að fara úr þeirri neikvæðu umræðu sem hér
virtist stýra öllu. Það er ekki víst að hon um
hafi orðið að ósk sinni en af orð um hans
má ráða að fyrir hann skipti endur koman
talsverðu máli. Skipbrot fyrri tíma var ekki
það sem Skúli vildi láta minnast sín fyrir.
Vesturvíkingur og austurvíkingur
Skúli stundaði nám í heimspeki við Háskól
ann í Reykjavík árin 1989 til 1991 en var
aug ljóslega með hugann annars staðar. Einn
hans nánasti vinur var Björgólfur Thor
Björg ólfsson og saman stóðu þeir fyrir
rekstri skemmtistaðanna Hótels Borgar og
Tunglsins í Lækjargötu og voru áberandi
í skemmtanalífi Reykjavíkur. Um svipað
leyti er Skúli kominn í rekstur með Guðjóni
Má Guðjónssyni og fleirum og saman
stofna þeir fyrirtækið Oz, sama ár og Skúli
lýkur skammvinnu háskólanámi sínu. Einn
viðmælenda benti á áhugaverðar sam
lík ingar í ferli þeirra Skúla og Björgólfs
Thors en báðir enduðu þeir á að sækja
frama sinn til útlanda; Björgólfur Thor
fór í austurvíking og Skúli í vesturvíking
til Kanada. Um svipað leyti og Björgólfur
Thor er að huga að endurkomu sinni í
íslenskt viðskiptalíf er Skúli, sem er árinu
yngri, að huga að útgöngu sinni. Fyrir grá
glettni örlaganna er Björgólfur Thor orð
inn ráðandi hluthafi í Landsbankanum
þegar Skúli kaupir þaðan þrotabú Oz. Sá
sem útbjó pappírana var síðan Steinþór
Baldursson sem síðar starfaði hjá Vestia.
Það er ekkert sem bendir til þess að þessi
sala á rekstri Oz sé tortryggileg – í raun
hefði Skúla verið í lófa lagið að fara með
lykilmenn til Kanada og hefja rekstur þar. Í
ljósi aðstæðna var því ekki mikið verðmæti
í þrotabúi Oz á þessum tíma þótt Skúla
tæk ist að gera verðmæti úr því. Sú saga
er þrálát að Björgólfur Thor hafi átt hlut í
„Einn hans
nánasti vinur
var Björgólfur
Thor Björg ólfsson
og saman stóðu
þeir fyrir rekstri
skemmtistaðanna
Hótels Borgar
og Tunglsins í
Lækjargötu og
voru áberandi í
skemmtanalífi
Reykjavíkur.“