Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2012, Page 62

Frjáls verslun - 01.01.2012, Page 62
62 FRJÁLS VERSLUN 1. TBL. 2012 bækUr Allur sannleikurinn um leiðtogann Sigurður Ragnarsson gaf nýlega út bókina Forysta og samskipti. Í bókinni fjallar hann um hið viðamikla hlutverk leiðtogans og fjölbreytt svið innan stjórnunarfræðanna sem tengjast þessu mikilvæga hlutverki. Í bókinni er dreginn saman óvenjumikill fjöldi kenninga um stjórnun og leiðtogahlutverkið. Mikil gróska er í útgáfu íslenskra stjórnunarbóka nú um stundir. Ein áhugaverðra nýútkominna bóka er Forysta og samskipti eftir Sigurð Ragn­ arsson. Í bókinni fjallar höfund­ ur um hið viðamikla hlutverk leiðtogans og mjög fjölbreytt svið innan stjórnunarfræðanna sem tengjast þessu mikilvæga hlutverki. Þetta er yfirgripsmikil bók sem fjallar um leiðtogahlut­ verkið á breiðum grunni og dregur saman fjölda kenninga um þetta eftirsótta en um leið óljósa hlutverk. víða komið við Það sem fyrst kemur á óvart við lestur bókarinnar er hversu yfirgripsmikil hún er. Höfundi tekst með mikilli natni að koma inn á mikinn fjölda kenninga um leiðtogafræði og stjórnun í ekki lengri bók en þetta. Það má því segja að einn kosta bókarinn­ ar sé sá að hún inniheldur yfir gripsmikið og vandað yfirlit yfir helstu stjórnunarkenningar dags ins í dag. Þetta gerir hana að góðu uppsláttarriti fyrir þá sem vilja kynna sér helstu kenn­ ingar um leiðtogafræði. Einnig kemur höfundur inn á nýlegar rannsóknir sem málinu tengjast og sýnir svo ekki verður um villst þá sérfræðiþekkingu sem hann hefur á efninu og þeim fjölmörgu þáttum sem því tengjast. Þekktu sjálfan þig Einn grísku spekinganna mælti hin fleygu orð „þekktu sjálfan þig“. Sú speki á ekki síst við um leiðtoga en afar mikilvægt er að þeir þekki sjálfa sig. Bókin gefur lesandanum mörg góð tækifæri til að kynnast sjálfum sér með Hugarfóðri og Verkefnum í lok hvers kafla. Þessar stuttu klaus­ ur og einföldu spurningar vekja lesandann til umhugsunar um efni kaflans og vekja jafnvel enn fleiri spurningar sem nauðsyn­ legt er fyrir hvert okkar að svara fyrir okkur sjálf til að geta rækt leiðtogahlutverkið sem skyldi. Jafnvel reyndir leiðtogar ættu að finna í þessum verkefnum punkta sem vekja þá til umhugs­ unar og leiða þannig til enn meðvitaðri og vandaðri forystu en ella. Fyrir nýja leiðtogann (eða þann sem dreymir um að verða leiðtogi) eru þessar hug leiðingar ómetanlegar til að hraða þroskaferlinu og fækka þeim mistökum sem leiðtogar óhjá kvæmilega gera þegar þeir stíga sín fyrstu forystuspor. flókið samspil Það er flókið samspil margra ólíkra þátta sem myndar sterka leiðtoga. Það eru ekki bara ein kenni einstaklingsins sem þar leika lykilhlutverk heldur kringumstæðurnar einnig. Sá sem stígur með sterkum hætti fram fyrir skjöldu við tilteknar aðstæður þarf ekki endilega að vera sterkur við aðrar aðstæður. Höfundur veltir t.d. fyrir sér hvort Martin Luther King hefði orðið sá sterki leiðtogi sem hann varð hefði hann verið uppi áratugum fyrr, eða seinna. Þeirri spurningu er ómögulegt að svara en víst að aðstæðurnar leika stórt hlutverk í árangri leið­ toga. Ef leiðtoginn hins vegar hefur ekki ákveðna eiginleika mun hann aldrei geta nýtt sér aðstæður honum hliðhollar. Allt spilar þetta því saman að því að móta leiðtogann og hæfni hans. leiðtoginn og völd Þessu tengt má nefna áhuga­ verðan kafla úr bókinni sem fjallar um leiðtogann og völd. Þar er varpað fram ýmsum spurn ingum sem lúta að því hvort sá sem gerður er að leið­ toga fái sjálfkrafa völd og eins á hinn bóginn hvort sá sem ekki hefur völd geti verið leiðtogi. Sú umræða er áhugaverð fyrir þá sem ekki hafa formleg völd en eru þó klárlega leiðtogar, t.d. innan hóps eða verkefnis. Það er einhvern veginn eins og sumum veitist það auðveldara en öðrum að vera leiðtogi og gangi í það hlutverk ósjálfrátt og óumbeðið. Eru leiðtogar án þess að hafa formlegt vald. Ólíkar tegundir leiðtoga Ekki eru allir leiðtogar eins, þó Unnur Valborg Hilmarsdóttir Stjórnendaþjálfari hjá Vendum Bókin Forysta og samskipti „Forysta eða leiðtogamennska snýst um að leiða fólk og það er nauðsynlegt að tileinka sér færni í samskiptum til að geta leitt fólk. En hvað með að leiða verkefni? Við því er einfalt svar. Til þess að leiða verkefni þarf að leiða fólk.“ Forysta snýst um fólk Höfundur notar hugtakið náðarleið­ togamennska yfir enska hugtakið transformational leadership. Þar er vísað til þess að fylgjendur helga sig algerlega stefnu leiðtogans og samþykkja og framfylgja henni í þaula. Þessi tegund leiðtoga hefur sterka sýn, býr yfir persónutöfrum, tjáir sig með táknrænum hætti, dreifir valdi og verkefnum, veitir fólki vitsmunalega örvun og kemur fram af heilindum. Náðarleiðtoginn er ein þeirra leiðtogagerða sem fjallað er um í bókinni. Náðarleiðtoginn Sigurður Ragnarsson kennir og hefur kennt leiðtogafræði og fleiri náms­ greinar við Háskólann í Reykjavík, Opna háskólann, Háskólann á Bif­ röst, Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri. Hann hefur viðtæka stjórnunarreynslu og þ.á m. af eigin fyrirtækjarekstri. Sigurður er með BA­próf í mann­ auðs­ og samskiptafræðum frá Golden Gate University í San Fransisco og MBA í stjórnun og mark aðsfræðum frá sama háskóla. Sam hliða starfi sínu stundar hann doktorsnám í leiðtogafræðum við Háskóla Íslands. Um höfundinn Það sem fyrst kemur á óvart við lestur bók- arinnar er hversu yfir gripsmikil hún er. Höfundi tekst með mik illi natni að koma inn á mikinn fjölda kenninga um leiðtoga fræði og stjórn un í ekki lengri bók en þetta.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.