Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2012, Page 65

Frjáls verslun - 01.01.2012, Page 65
FRJÁLS VERSLUN 1TBL. 2012 65 fyrir tækja og þjóða. Með alla þá þekkingu sem við búum yfir um það hvað stuðlar að hamingju fólks, er þá ekki heimskulegt að nýta hana ekki til að auka ár angur? Lítum nánar á innihald þess ara fimm greina. Hagfræði velsældarinnar Justin Fox ritar greinina Hag­ fræði velsældarinnar (e. The Economics Of Well­Being). Hún hefst á orðunum „Peningar eru ekki allt“. En þótt peningar séu ekki allt hafa fjárhagslegir mælikvarðar verið ríkjandi við mat á hagsæld þjóða síðustu sjö áratugina. Frá tímum seinni heimsstyrjaldar þróuðust mæli ­ kvarðarnir verg þjóðarfram­ leiðsla (GNP) og síðar verg lands framleiðsla (GDP), sem var vissu lega framför frá því að vel­ gengni þjóða var mæld í hern ­ aðarsigrum. Mælikvarðar þjóðar­ framleiðslu og lands framleiðslu hafa verið gagnrýndir fyrir að ná ekki til allra þátta sem áhrif hafa á velgengni og fyrir að taka ekki tillit til sjálfbærni, heilsufars, menntunar, lífaldurs eða annarra mikilvægra áhrifaþátta á velsæld og þróun. Fox rekur söguna frá árinu 1781 eða frá þeim tíma að Eng l endingur að nafni Jeremy Bentham vakti athygli á því að hve miklu leyti væri hægt að búa til eða skapa ham­ ingju. Á þeim tíma tóku reglur og ákvarðanataka byggð á trúar legum forsendum að víkja fyrir ákvörðunum byggðum á vísindalegum rökum. Upp úr 1930 fóru tölulegar mælingar að þróast í þá átt sem við þekkjum í dag en með þeim annmörkum að hafa ekki mikið forspárgildi. Robert F. Kennedy gagnrýndi í kosningabaráttu sinni árið 1968 að þjóðarframleiðsla mældi ekki heilsu barnanna, gæði mennt­ unar þeirra eða gleðina í leikjum þeirra. Gagnrýni hans hlaut ekki mikla athygli en í seinni tíð hefur mikið verið vitnað til orða hans. Sameinuðu þjóðirnar hafa á þriðja áratug þróað mælikvarða á lífsgæði í skýrslu sem nefnist Human Development Index (HDI) og var fyrst birt árið 1990. Þar eru mældar tekjur, heilsu ­ far, langlífi og þekking. Síðustu ár hafa þjóðarleiðtogar eins og Nicolas Sarkozy, forseti Frakk lands, og David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, veitt þessum nýju víddum sem tengjast hamingju og velsæld aukna athygli. vísindin á bak við brosið Daniel Gilbert, prófessor í sál fræði við Harvardháskóla, veitir viðtal í greininni Vísindin á bak við brosið (e. The Science Behind The Smile). Gilbert gaf út metsölubókina Stumbling on Happiness eða Hnotið um hamingjuna árið 2005 en hún hefur verið þýdd á íslensku og var gefin út hér árið 2007. Gilbert útskýrir í viðtalinu hvers vegna áhersla á hamingjuna hefur aukist svo mikið sem raun ber vitni í umræðu um árangur og velgengni. Hann segir skýr­ inguna vera að þar til fyrir tveimur áratugum hafi það helst verið heimspekingar og ljóðskáld sem fjölluðu um tilfinningar fólks. En fyrir tveimur áratugum varð sprenging á sviði sálfræði­ rannsókna á tilfinningum og þar hafi hamingjan hlotið mesta athygli. Nýlega hafa svo hag­ fræðingar og taugasérfræðingar bæst í hópinn. Sálfræðingar vilja skilja hvernig fólki líður. Hag­ fræðingar vilja skilja gildismat fólks og taugasérfræðingar vilja skilja hvernig heili fólks bregst m.a. við umbun. Athygli þessara þriggja fræðigreina hefur komið hamingjunni í sviðsljósið og þess vegna keppast þjóðarleið­ togar nú við að finna leiðir til að mæla og auka hamingju. Aðspurður hvað það sé sem geri fólk hamingjusamt segir Gilbert það helst vera félagsleg tengsl, hæfilegar áskoranir og tíðar jákvæðar upplifanir. Margir smáir jákvæðir hlutir séu líklegri til að stuðla að langtímaham­ ingju en fáir stórir. Starfsmenn séu líklegri til að ná góðum árangri til lengri tíma ef þeir eru hvattir áfram með fyrirheitum um umbun fremur en refsingu. Til að stuðla að hamingju legg­ ur Gilbert til að við ástundum heilbrigt líferni, hreyfum okkur og sofum vel, hugleiðum og til einkum okkur fórnfýsi í auknum mæli. Leiðin að aukinni hamingju sé í raun ekki flóknari en leiðin að kjörþyngdinni – borða minna og hreyfa sig meira. að skapa langvarandi árangur Gretchen Spreitzer og Christ­ ine Porath rita greinina Að skapa langvarandi árangur (e. Creating Sustainable Per­ formance). Þær segja það geta virst fjarstæðukennt að velta fyrir sér hamingju starfsfólks á tímum þegar fólk kallast heppið að hafa atvinnu, burtséð frá því hvort hún er vel launuð eða áhugaverð. Svo sé þó ekki því rannsóknir þeirra á árangri gefa til kynna að hamingjusamir starfs­ menn nái meiri framleiðni til lengri tíma litið en starfsmenn sem eru það ekki. Þeir hamingjusömu mæta betur í vinnuna, eru ólík­ legri til að hætta, þeir leggja sig alla fram, umfram það sem ætlast er til, og þeir laða að ann­ að fólk sem hugsar eins. „Þeir eru ekki spretthlauparar heldur meira eins og maraþonhlaup­ stJÓrNUN Robert F. Kennedy. Gilbert segir að hæfi legar áskoranir og tíðar jákvæðar upp lifanir geri fólk hamingjusamt og að margir smáir jákvæðir hlutir séu líklegri til að stuðla að langtímaham- ingju en fáir stórir. Daniel Gilbert. Þeir hamingjusömu mæta betur í vinn- una, eru ólíklegri til að hætta, þeir leggja sig alla fram, um- fram það sem ætlast er til, og þeir laða að annað fólk sem hugsar eins. Gretchen Spreitzer. Christ ine Porath. Justin Fox.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.