Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2013, Side 29

Frjáls verslun - 01.04.2013, Side 29
FRJÁLS VERSLUN 4. 2013 29 maður er með kæki; „þú veist“, „heyrðu“, „ég meina“ o.s.frv. Og ef sú er raunin þá er óþarfi að mikla það fyrir sér. Undirmeðvit­ undin hjálpar manni að losna við kækina. Ég sé það þegar ég hef verið að þjálfa fólk í sjón ­ varpsframkomu.“ Að gefa og þiggja Sirrý segir að allir geti komið fram og tjáð sig af öryggi ef þeir æfa sig. „Ég er með ákveðin trix. Ég kenni öndunar ­ tækni á námskeiðunum og hvað fólk getur gert til að þora. Þetta er fyrst og fremst spurn­ ing um hugarfarið – að gera sér grein fyrir að rödd manns sjálfs skiptir jafnmiklu máli og raddir ann arra. Ef fólk er ekki vant því að tjá sig á fundum í vinnunni er kannski tími til kominn að breyta því. Mörgum hefur reynst vel að byrja einhvers staðar annars staðar en í sínu daglega umhverfi – sumir fara í lions eða rótarý og efla sig smátt og smátt og venjast því að koma fram, standa upp og hafa orðið. Svo kemur að því að fólk lætur meira að sér kveða í vinnunni.“ Sirrý segir það skipta máli að vera eðlilegur og vera mað ­ ur sjálfur, að liggja eitthvað á hjarta og tala til hópsins. „Við ­ kom andi þarf að hafa áhuga á hópnum til að áhorfendur hafi áhuga á honum sem ræðu­ manni. Þetta skortir stundum hjá fólki. Það þarf að æfa sig heima, bera sig vel og það skipt ir máli að ganga hnar­ reistur í pontu. Og það þarf að þora að láta rödd sína hljóma og passa upp á að allir í salnum heyri.“ Það þarf að gefa og þiggja, spyrja og hlusta. „Það er ekkert síður mikilvægt að hlusta. Við þurfum að tala hátt og skýrt og við þurfum líka að geta hlustað. Barack Obama er flottasti maður sem ég hef stúderað. Hann er með afburða samskipta­ færni – hvernig hann horfir á fólk, hvernig hann snertir og kynnir sig með nafni og horfir í augun á viðkomandi. Þó að samskiptin vari stutt þarf að finna einhverja tengingu við hvern og einn. Ég fjalla töluvert um þetta í fyrir­ lestrum og í bókinni og um það að geta talað við hvern sem er, hvar sem er og hvenær sem er.“ Raddir allra skipta máli Sirrý segir að margir séu miklu öruggari og flottari en þeir gera sér grein fyrir. „Mér finnst svo gaman að fá að laða þetta fram í fólki og það gefur mér mikið. Ég er þakklát fyrir hvað margir hafa gefið mér góð ráð og kennt mér margt og mér finnst gefandi að fá að miðla því áfram. Það er nákvæmlega það sem ég hef verið að gera í þess um tveimur bókum – miðla því áfram sem ég hef lært af öðrum. Það sem ég hef lært af samskiptum við fólk er að allir hafa sérstaka sögu að segja og raddir allra skipta máli. Mér finnst margir vanmeta sjálfa sig og halda að sviðsskrekkurinn sjáist of mikið. Við dæmum okk­ ur sjálf oft mun harðar en flesta aðra. Það býr gull innra með okkum öllum – eitthvað sérstakt sem hvert og eitt okkar hefur fram að færa.“ „Uppskriftin að betri rödd er: æfing, öndun, söngur, slökun og líkams- rækt. kryddist með hæfilegu kæruleysi.“ Úr bókinni „Örugg tjáning – betri samskipti“. Veröld gefur út. „það sýnir mikinn styrk þegar fólk lætur stressið ekki halda aftur af sér heldur gengst við því og hefur orð á því án þess að biðjast afsökunar og heldur áfram.“ Úr bókinni „Örugg tjáning – betri samskipti“. Veröld gefur út. Sirrý segir að allir geti komið fram og tjáð sig af öryggi ef þeir æfa sig. „Ég er með ákveðin trix. Ég kenni öndunar tækni á námskeiðun­ um og hvað fólk getur gert til að þora.“ Sigríður arnardóttir, Sirrý, er höfundur bókarinnar Örugg tjáning – betri sam skipti.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.