Frjáls verslun - 01.04.2013, Side 33
FRJÁLS VERSLUN 4. 2013 33
Jákvæðni eða neikvæðni – þitt er valið
Rannsóknir sýna að við hugsum að meðaltali um 66 þúsund hugsanir á dag. Við ráðum
í flestum tilfellum hvort þær
séu jákvæðar eða neikvæðar.
Jákvæð hugsun leiðir jákvæða
líðan af sér sem leiðir til
jákvæðrar hegðunar. Jákvætt
fólk nær betri árangri,“ segir
Thomas Möller.
„Jákvæð sálfræði er ný grein
innan sálfræðinnar sem fjallar
um hvað verður til þess að fólk
og samfélög blómstra, öðlast
hamingju og lífsfyllingu.“
Thomas segir að reginmunur
sé á viðbrögðum bjartsýns fólks
og svartsýns. „Jákvæður maður
lítur á mistök sem tækifæri til
að læra af þeim. Hann dvelur
ekki lengi í fortíðinni, hann
nýtur augnabliksins og horfir
til framtíðarinnar með bjartsýni
og jákvæðni í huga. Jákvæður
maður lítur á uppsögn í starfi
sem nýja áskorun um að finna
starf þar sem hann hugsanlega
nýtur hæfileika sína betur en
áður. Jákvæður maður hefur
skýr markmið um betra líf og
kemur settum markmiðum í
framkvæmd.“
Thomas segir að bjartsýnn
starfs maður sjái sem dæmi
tapaða sölu sem tímabundinn
atburð sem hafi engin áhrif á
fram tíðina. „Hann veit að það
kemur að því að salan mun
aukast. Hinn neikvæði sér þetta
sem hluta af örlögum sínum
og lítur á þetta sem varanlegt
ástand.
Svo er ekki amalegt að vita að
það að brosa setur andlitsvöðva
í gang sem búa til endorfín sem
skerpa á minninu og fær okkur til
að líða betur.“
THomas mölleR
– framkvæmdastjóri Rýmis
STJÓRNUN
Ásmundur Helgason segir að þegar fyrir tæki senda frá sér skilaboð í formi aug
lýsinga sé ekki hægt að búast
við að skilaboðin nái til allra í
markhópnum. „Við sem neyt
endur og þátttakendur í sam
félaginu getum verið að fá á
milli eitt og tvö þúsund skilaboð
á hverjum einasta degi. Við
getum auðvitað ekki lagt það á
okkur að taka eftir þeim öllum
svo vel að við munum hvert og
eitt þeirra. Við beitum því sem
er kallað valin eftirtekt til þess
að sía út þau skilaboð sem við
viljum taka raunverulega eftir.
Við erum líkleg til þess að taka
eftir um 80 skilaboðum og við
heyrum eða tökum eftir þessum
skilaboðum vegna þess að
þau passa við hugsanagang
okkar. Líkur á eftirtekt aukast ef
skilaboðin passa við núverandi
þörf. Maður fer t.d. að taka eftir
auglýsingum um þvottavélar
þegar maður þarf á þeim að
halda. Einnig aukast líkur á eft
irtekt ef skilaboðin koma þegar
maður á von á áreiti og enn
auk ast líkurnar ef skilaboðin eru
stærri en venjulega. Risablað
Morgunblaðsins nú í lok maí fór
ekki fram hjá mörgum þar sem
N1 kom sínum skilaboðum á
framfæri.
Við beitum líka valkvæmri
túlkun á skilaboðin, bætum við
þau, drögum úr eða breytum
með einhverjum hætti. Við
beit um svo valkvæmu minni
til þess að velja ekki nema 12
skila boð af þeim 80 sem við
tökum eftir, sem sitja eftir hjá
okkur og vekja hugsanlega
einhver viðbrögð.“
Ásmundur segir að ef fyrstu
viðbrögð við skilaboðunum eru
jákvæð og ef farið er í hugan
um yfir staðfestingar sé líklegt
að skilaboðin verði móttekin og
munað eftir þeim.
Skilaboð sem passa við
hugsanaganginn
ÁsmunDuR HelGason
– markaðsfræð ingur hjá Dynamo
AUGLÝSINGAR
Stundum er sagt að eina vindáttin í Danmörku sé mótvindur. Þessu hefur Ditlev Engel, forstjóri
danska vindmylluframleiðand
ans Vestas Wind Systems,
fengið að finna fyrir.
Veður skipuðust verulega í
lofti í rekstri fyrirtækisins þegar
fjármálakreppan skall á fyrir
nokkrum árum og tap í rekstri
keyrði um þverbak á síðasta
ári. Á síðasta ári var Engel
valinn versti forstjóri skráðra
fyrir tækja í Danmörku. Engu er
líkara en að um einhvern annan
Engel sé að ræða en þann sem
stýrði fyrirtækinu árið 2008,
en þá var hann valinn forstjóri
ársins í Danmörku. Ef til vill voru
menn í raun undir einhverjum
áhrifum hlutabréfaverðs Vestas,
sem náði þá methæðum og
vinsældum meðal fjárfesta og
greiningaraðila. Leiðin lá svo
niður á við og verðið lækkaði
um 95% áður en yfir lauk undir
lok síðasta árs. Óneitanlega var
Engel í bjartsýnna lagi þegar
uppgangurinn var sem mestur
fyrir nokkrum árum en kannski
var það það sem menn vildu?
Það hefur komið mörgum á
óvart að Engel skuli hafa lifað
af sem forstjóri fyrirtækisins en
margir af stjórnendum þess
hafa látið af störfum. Það virðist
vera nokkurt malt í Engel,
hann hefur staðið af sér miklar
skammir, og segir einfaldlega
að menn eigi að hætta störfum
þegar vel gengur, ekki þegar á
móti blæs. Og kannski er vind
urinn byrjaður að snúast Engel í
hag, a.m.k. af hálfu þeirra sem
halda að árangursrík stjórnun
felist í því að hlutabréfaverð
hækki ótt og títt, eins gáfulega
– eða ógáfulega – og það kann
að hljóma. Verð hlutabréfa í
Vestas hefur þrefaldast á stutt
um tíma.“
lofTuR Ólafsson
– sérfræðingur hjá Íslandssjóðum
ERLENDI
FORSTJÓRINN
Danmörk, Le
Danemark… núll stig
„Jákvæður maður
hefur skýr markmið
um betra líf og kem ur
settum mark miðum í
fram kvæmd.“