Frjáls verslun - 01.04.2013, Side 91
FRJÁLS VERSLUN 4. 2013 91
100 ÁhRiFamEStU koNURNaR 2013
Starfsfólki hefur þess vegna verið fjölgað til
að sinna þessum verkefnum en í dag vinna
um 800 manns hjá fyrirtækinu hér á landi.
Guðbjörg Edda segir að sex orða ævisagan
sé dóttir, systir, eiginkona, móðir og stjórn
andi lyfjafyrirtækis.
Hún segir að mikilvægt sé að ungir stjórn
endur komi fram af heilindum við alla, jafnt
yfirmenn sem undirmenn, og að þeir ávinni
sér traust þeirra og sýni öllum sanngirni. „Þá
er mikilvægt að hvetja starfsfólk sitt til dáða,
hvetja það til að þróast í starfi og taka á sig
auknar skyldur.“
Guðbjörg Edda segir að sér finnist sjálfsagt
að fyrirtæki setji sér jafnlaunastefnu sem nái
bæði til launamunar kynjanna og að sam
bærileg laun séu greidd fyrir jafnverðmæt
störf að teknu tilliti til frammistöðu starfs
mannsins. „Það nægir ekki að setja stefnuna
– einnig þarf að fylgjast með því að eftir henni
sé farið og gera reglulega úttekt á launamun.“
Varðandi nýja ríkisstjórn segir hún að brýn
ustu verkefnin séu að koma á stöðugleika
og skapa trú fólks á að endurreisn sé hafin
og að þorandi sé að leggja í fjárfestingar. „Þá
er brýnt að leggja fram raunhæfa, tímasetta
áætlun um afnám gjaldeyrishafta sem þjóðin
getur treyst að farið verði eftir. Þessi atriði,
auk einföldunar skattkerfisins, eru raunar
einnig forsenda þess að við getum vænst
erlendrar fjárfestingar á Íslandi á næstu
misserum.“
guðbjörg edda situr í stjórn Auðar
Capital hf., Össurar hf., viðskiptaráðs
Íslands, Actavis group PtC ehf., Medis
ehf. og PrimaCare ehf. Hún er varamaður
í stjórn Íslandsstofu. guðbjörg edda er
einnig President of the european generic
Medicines Association.
uM 800 starFsMenn
Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, forstjóri actavis á Íslandi:
Guðbjörg Edda Eggertsdóttir segir að það sé ánægjulegt að Actavis á Íslandi
skuli hafa verið falið að taka við ýmsum nýjum verkefnum frá systurfyrirtækjum í
öðrum löndum.
„Það sem stendur helst upp úr á þessu ári er að
Atlantsolía mun opna sína nítjándu ben sínstöð
á Egilsstöðum í sumar. Þar með höfum við náð
þeim áfanga að koma með okkar fyrstu stöð á
Austurlandið og bæta þar með dreifinetið um
talsvert. Þetta er liður í því að bæta þjónustu við
viðskiptavini okkar með bættu dreifineti.“
Guðrún Ragna segir að sex orða ævisagan sé
örlítið lengri en sex orð: Seyðisfjörður, MR, HÍ,
Barcelona, Vesturbærinn, maður og þrjú börn.
Þegar Guðrún Ragna er spurð hvort henni
finnist að setja ætti sérstaka jafnlaunastefnu
innan fyrirtækja segir hún: „Miðað við þær
upplýsingar sem við höfum um launamun
kynj anna og hvað lítið hefur orðið ágengt í
að minnka þann mun tel ég þetta vera ágætis
viðbót í þá baráttu.“
Hvað með heilræði til ungra stjórnenda?
„Hlusta á fólk og koma fram við það eins og
þú vilt að komið sé fram við þig. Bera virðingu
fyrir því að við erum ólík og höfum misjafna
sýn og skoðanir. Ekki gleyma því að oft koma
bestu hugmyndirnar frá hinum almenna
starfsmanni sem er oft í meiri tengslum við
viðskiptavinina en stjórnendurnir sjálfir.“
Guðrún Ragna segir að þau séu mörg brýn
verkefnin sem liggi fyrir hjá nýrri ríkisstjórn.
„Það verkefni sem ég tel þó brýnast er að
koma hagkerfinu í gang aftur með því að
auka fjárfestingar, sem mun leiða til aukins
hagvaxtar og aukinnar atvinnu. Þetta er svo
forsenda þess að hægt sé að fara í önnur
brýn verkefni eins og að efla menntakerfið
og heilbrigðiskerfið. Það er líka mikilvægt að
ganga frá samningum við erlenda kröfuhafa
gömlu bankanna og losa um gjaldeyrishöft.“
nítjÁnda Bensínstöðin opnuð í suMar
Guðrún Ragna Garðarsdóttir, framkvæmdastjóri atlantsolíu: